Fjarðarpósturinn - 06.02.2014, Qupperneq 15
www.fjardarposturinn.is 15 Fimmtudagur 6. febrúar 2014
og Hraunbúa enda eru markmið
gildisskáta m.a. að að flytja hinn
sanna skátaanda inn í samfélagið,
að veita skátastarfinu stuðning,
að útbreiða skátahugsjónina og
að stuðla að varðveislu skáta
minja. Eldri skátar starfa í anda
skátahugsjónarinnar og halda
áfram að varðveita barnið í sér í
leik og starfi á sama tíma og þeir
reyna að styðja við starf hinna
ungu skáta. Gildisskátar eiga
skátaskála við Hvaleyrarvatn og
þar hefur gróðurinn vaxið hátt
upp og er staðurinn orðinn mikil
útivistarparadís í góðu nágrenni
við Skógræktarfélag Hafnar
fjarðar. Formlegir fundir eru að
jafnaði mánaðarlega a.m.k., oft í
skál anum en einnig í skáta
heimilinu Hraunbyrgi og víðar.
Söngurinn er í hávegum hafður
eins og skáta er siður en á fund
um er einnig hlýtt á fróðlega
fyrir lestra um ýmis málefni en á
dag skránni má einnig finna leik
hús ferðir, gönguferðir og fleira.
Viltu vera með?
Þeir sem áhuga hafa á að starfa
með nýju skátagildi eða St.
Georgsgildinu í Hafnarfirði geta
fundið nánari upplýsingar á
http://stgildi.hraunbuar.is og á
www.skatagildi.is Stofnfundur
nýja skátagildisins, sem Harpa
Hrönn Grétarsdóttir og Guðni
Gíslason hafa lagt grunninn að,
verður í Hraunbyrgi fimmtu
daginn 13. febrúar kl. 20. Boðið
verður upp á kakó og rjóma.
Íþróttir
Handbolti:
6. feb. kl. 18, Ásvellir
Haukar - Akureyri
úrvalsdeild karla
6. feb. kl. 19.30, Kaplakriki
FH - ÍR
úrvalsdeil karla
8. feb. kl. 13.30, Hlíðarendi
Valur Haukar
úrvalsdeild kvenna
8. feb. kl. 14.30, KA heimili
KA/Þór FH
úrvalsdeild kvenna
8. feb. kl. 16, Strandgata
ÍH - Afturelding
1. deild karla
10. feb. kl. 19, Akureyri
Akureyri FH
bikarkeppni karla
10. feb. kl. 19.30, Hlíðarendi
Valur Haukar
bikarkeppni karla
Körfubolti:
9. feb. kl. 19.15, Keflavík
Keflavík Haukar
úrvalsdeild kvenna
10. feb. kl. 19.15, Ásvellir
Haukar - Stjarnan
úrvalsdeild karla
10. feb. kl. 19.15, Ásvellir
Haukar Njarðvík
úrvalsdeild kvenna
Handbolti úrslit:
Konur:
Haukar Fylkir: 3431
Stjarnan FH: 2518
Haukar KA/Þór: 3425
FH Fylkir: 2921
Karlar:
Fjölnir ÍH: 1925
ÍR Haukar: 2429
Fram FH: 2523
Körfubolti úrslit:
Konur:
Haukar Hamar: (miðv.d.)
Keflavík Haukar: 6676
Snæfell Haukar: 7964
Karlar:
Snæfell Haukar: 9682
Bílaþjónustan
Bilaði Bíllinn
– bilaði bíllinn hjá þér?
Gerum við bremsur,
stýrisenda, spindilkúlur,
hjólalegur, startara,
alternatora, dempara,
gorma, skiptum um
rafgeyma, perur, ásamt
fleiru.
Miðhellu 2, Hafnarfirði
Opið virka daga kl. 8-18 • Laugardaga kl. 10-16
Tímapantanir í síma 615 2562
– ódýr og góð þjónusta.
Erum með notaða parta í eldri gerðir af bílum
Sjálfsþjónusta
Leigjum út aðgang á lyftu ásamt verkfærum
og suðuvél ef þú vilt gera við bíllin þinn sjálfur.
Skátastarf í Hafnarfirði á sér
tæpra 89 ára sögu og meðal
stofnenda voru ekki ómerkari
menn en Benjamín J. Eiríksson
síðar hagfræðingur og banka
stjóri og Jón Oddgeir Jónsson
sem síðar gerði garðinn frægan
m.a. hjá Slysavarnarfélagi
Ís lands. Þeir, ásamt öðrum
stjórn endum voru þá ungir að
ár um. Flestir eiga gullaldarár sín
í skátaaldri ungir að árum og
sumir eru ekki í skipulagði starfi
nema örfá ár en gleyma aldrei
þeim minningum. Það er því
ekki út í loftið að segja Eitt sinn
skáti ávallt skáti, enda er skáta
starfið lífstíll fremur en tóm
stundastarf.
50 ára skátagildi
Skátastarf í Hafnarfirði hefur
ávallt verið öflugt og í dag
blómstr ar skátastarfið í Hraun
búum í höndum öflugra skáta
foringja og framtíðin er björt.
Eldri skátar hafa ávallt verið
virkir í starfi, ýmist með sínum
skáta félögum eða í sértækum
hópum. Árið 1963 stofnuðu
skát ar, sem flestir voru rétt um
þrítugt, St. Georgsgildi í Hafnar
firði, félag eldri skáta. Félagið
fagnaði 50 ára afmæli sínu með
góðri veislu sl. haust. Nú eru
félag arnir 87 og starfið blómlegt.
Meðalaldurinn er rúmlega 70 ár
en nýir félagar hafa þó vegið upp
á móti hækkandi meðalaldri. Það
er því ekki að ástæðulausu að
blásið sé í glæðurnar og stofn
fundur nýs skátagildis hefur ver
ið boðaður í Hraunbyrgi 13. feb.
Í góðu samtarfi við Hraunbúa
Í dag er mikil áhersla lögð á
gott samstarf St. Georgsgildisins
Öflugir Hraunbúar á Landsmóti skáta á Úlfljótsvatni.
Uppgangur í starfi eldri skáta í Hafnarfirði
Annað skátagildi stofnað í Hafnarfirði
Nýlega voru 7 nýir félagar teknir inn í gamla skátagildið.
Kærar þakkir
– við erum rétt að byrja!
Prófkjöri sjálfstæðismanna í
Hafnarfirði er lokið og við
gerum upp niðurstöðurnar. Þegar
upp er staðið tóku yfir 1.300
Hafnfirðingar þátt í að velja fólk
á framboðslista okkar
fyrir komandi bæjar
stjórn ar kosningar og
fjölgaði umtalsvert frá
þátttökunni fyrir fjórum
árum, sem gefur okkur
byr í seglin. Konur
náðu sérstaklega góð
um árangri í prófkjör
inu, frambjóðenda hóp
urinn var einstaklega
vel skipaður og allir
sýndu frambjóðendurnir að þeir
ættu fullt erindi í bæjarmálin í
Hafnarfirði, með góðum mál
flutn ingi og kynningu á sér og
stefnumálum sínum. Hvar sem
frambjóðendur röðuðust í lok
prófkjörsins er ljóst að þeir eiga
allir góðan hljómgrunn meðal
stuðningsmanna og Hafnfirðinga
og það mannval viljum við
virkja með okkur áfram.
Áhrif í forystusæti
Sjálfur hlaut ég kosningu í 2.
sæti framboðslistans. Ég þakka
það traust sem því fylgir og met
það mikils, sérstaklega í ljósi
þess hve afgerandi sú kosning
var, svo og hins að samtals hlaut
ég flest atkvæði frambjóðenda,
eða yfir 1.000, sem staðfestir
víðtækan stuðning meðal allra
þátttakenda. Ég óska Rósu
Guðbjartsdóttur til hamingju
með kjörið í fyrsta sæti
listans og öllum fram
bjóðendum þakka ég
gott samstarf, sem við
munum núna styrkja
enn frekar í aðdraganda
bæjar stjórnar kosning
anna.
Hvatning til
stuðningsmanna
Ég þakka öllum þeim
sem störfuðu með mér,
hvöttu mig og studdu í
prófkjörinu. Árangur okk ar var
frábær og hann tryggir rödd
okkar og sjónarmið inn í
forystusæti í bæjarstjórn. Ég
mun beita mér fyrir hönd okkar
og gera mitt til þess að sjónarmið
mín og stuðningsmanna minna
skili sér í stefnumálum og ásýnd
Sjálfstæðisflokksins í kosn inga
starfinu og á komandi kjör
tímabili. Til þess þarf ég áfram
haldandi stuðning og hvatningu
ykkar, sem lögðuð mér lið í
prófkjörinu. Við eigum verk að
vinna.
Höfundur er verkfræðingur
og bæjarfulltrúi
Kristinn
Andersen
Í prófkjörsreglum Samfylk
ingar innar eru ákvæði um að
kostnaður frambjóðenda vegna
þátttöku í prófkjörinu megi ekki
fara yfir 150 þúsund kr. Þeim er
nokkuð í sjálfsvald sett hvernig
þeir nota þessa upphæð eða
hvort þeir noti hana nema hvað
að þeir mega ekki auglýsa í ljós
vakamiðlum, prentmiðlum eða
vefmiðlum!
Fjarðarpósturinn hefur áður
gagnrýnt þessar reglur því á
sama tíma hvetur kjörstjórn
fram bjóðendur til að skrifa
grein ar í blöð, þ.m.t. Fjarðar
póstinn sem á því skv. því að
fjár magna prófkjörsslaginn!
Kynningar til sölu!
Fjarðarpósturinn býður fram
bjóðendum og stuðn ings mönn
um að kaupa kynningu á fram
bjóðendum enda geta fram
bjóðendur ekki búist við því að
tryggð verði birting allra greina
fyrir prófkjörið.
Mega ekki auglýsa!
Frambjóðendur mega þó eyða 150 þús. kr.
Framsóknarfélögin í Hafnar
firði auglýsa eftir áhugasömum
frambjóðendum eða ábendingum
um frambærilega frambjóðendur.
Hefur fulltrúaráðsfundur í
Fram sókn arfélögunum í Hafnar
firði falið uppstillingarnefnd að
gera tillögu að framboðslista
Fram sóknarflokksins fyrir kosn
ingar til bæjarstjórnar í Hafnar
firði í vor. Leitar nefndin nú eftir
fólki til að taka sæti á lista og
öðrum sem áhuga hafa á að
starfa með flokknum fyrir og
eftir kosningar og í tilkynningu
frá flokknum eru nefndarstörf
sem til koma með veru flokksins
í bæjarstjórn. Framboðsfrestur er
til hádegis 12. febrúar.
Framsókn stillir upp
Kallar eftir áhugasömu fólki