Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 06.02.2014, Page 16

Fjarðarpósturinn - 06.02.2014, Page 16
16 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 6. febrúar 2014 30 ára Stofnuð 1983 Viðgerðir fyrir öll tryggingafélög Suðurhrauni 2 Garðabæ sími 554 4060, fax 554 4061 versus@simnet.is styrkir barna- og unglingastarf SH Sundstund gefur gull í mund Kæra sjálfstæðisfólk. Ég færi ykkur innilegar þakkir fyrir góðan stuðning í 1. sætið í prófkjöri Sjálfstæðisokksins um sl. helgi. Samhent stefnum við að sigri í kosningunum í vor - það er kominn tími á breytingar í Hafnarrði. Márus Björgvin og Ísak Breki sungu best Keppa fyrir hönd Hafnarfjarðar í Söngkeppni Samfés í Laugardalshöll í mars Márus Björgvin Gunnarsson úr félagsmiðstöðinni Vitanum í Lækjarskóla og Ísak Breki Gunnars son úr Setrinu í Set­ bergsskóla sigruðu söng keppni Hafnarfjarðar og verða fulltrúar Hafnarfjarðar í Söngkeppni Sam fés í Laugardalshöll í mars. Márus Björgvin söng lagið „Tannlæknir“ úr söngleiknum Litla Hryllingsbúðin en Ísak Breki söng „Vor í Vaglaskógi“ í útsetningu Kaleo. Kamilla Rós Bjarnadóttir úr Setrinu söng lagið „Á leið til þín“ og lenti í öðru sæti en Mar­ grét Hörn Jóhannsdóttir úr Hrauninu í Víðistaðaskóla í því þriðja með laginu „Umvafin englum“ við undirleik Irmu Hlynsdóttur. Rúmlega 20 keppendur í 16 atriðum stigu á stokk fyrir troðfullu húsi í Hrauninu í Víði­ staðaskóla. Var góð stemmning og flytjendum vel tekið. Dómnefndina skipuðu þau Björk Jakobsdóttir, leikkona, Þórir Úlfars son og Steinar Helgason tónlistarmenn. F.v.: Ísak Breki Gunnarsson úr Vitanum, Kamilla Rós Bjarnadóttir úr Setrinu, Margrét Hörn Jóhannsdóttir og Irma Hlynsdóttir úr Hrauninu og Márus Björgvin Gunnarsson úr Vitanum. Margir sungu mjög vel en náðu samt ekki á pall. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lífshlaupið ræst í Hraun­ vallas kóla Í gær var Lífshlaupið ræst í sjöunda sinn í Hraunvallaskóla. Hafsteinn Pálsson, formaður almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, Magnús Ragnarson, aðstoðar­ maður mennta­ og menningar­ málaráðherra, Áslaug Einars­ dóttir velferðaráðuneytið, Geir Gunnlaugsson, landlæknir, Guð rún Ágústa Guðmunds­ dóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar­ bæjar og Lars Jóhann Imsland, skólastjóri Hraunvallaskóla ávörp uðu gesti og kepptu síðan í skemmtilegri þraut í anda Skólahreysti. Þeir fullorðnu sluppu þó allir við armlyftur en fengu að hlaupa í gegnum dekkjaþraut og sippa. Platínumerki Afhent verða platínumerki Lífshlaupsins til einstaklinga sem náðu þeim frábæra árangri að hreyfa sig í a.m.k. 30 mínútur daglega frá 6. febrúar 2013 til 6. janúar 2014 eða samfleytt í 335 daga. Markmið Lífshlaupsins er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig og huga að sinni dag­ legu hreyfingu í frítíma, heim­ ilis störfum, vinnu, skóla og við val á ferðamáta. Skrá má alla hreyf ingu inn á lifshlaupid.is svo framarlega sem hún nær ráð­ leggingum Lýðheilsustöðvar um hreyfingu. Börnum og ungl ­ ingum er ráðlagt að hreyfa sig í a.m.k. 60 mínútur á dag og full­ orðnir a.m.k. 30 mínútur á dag. Glæsileg tilþrif á fimleikamóti hjá Björk Þrepamót í 4.-5. þrepi Þrepamót Fimleikasambands Íslands fyrir 4­5. þrep var haldið um síðustu helgi í íþrótta­ miðstöðinni Björk í Hafnarfirði. Góð þátttaka var og yfir 360 iðkendur voru skráðir til keppni. Að venju var troðfullt á áhorf­ enda pöllum og mynd bandsvélar í röðum að vista árangur barn­ anna. Lj ós m .:B jö rk fi m le ik ar Brynhildur Gígja Ingvarsdóttir sýnir listir sínar á slánni. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.