Fjarðarpósturinn - 22.05.2014, Page 15
www.fjardarposturinn.is 15 Fimmtudagur 22. maí 2014
Íþróttir
Knattspyrna:
22. maí kl. 20, Keflavík
Keflavík FH
úrvalsdeild karla
23. maí kl. 20, Ásvellir
Haukar Tindastóll
1. deild karla
24. maí kl. 16.30, Torfnesvöllur
BÍ/Bolungarvík Haukar
1. deild kvenna A-riðill
27. maí kl. 18, Vestmannaeyj.
ÍBV Haukar
Bikarkeppni karla
27. maí kl. 19.15, Bessast.völl.
Áltanes Haukar
Bikarkeppni kvenna
27. maí kl. 19.15, Kópavogsv.
Breiðablik FH
úrvalsdeild karla
28. maí kl. 20, KRvöllur
KR FH
bikarkeppni karla
Handbolti úrslit:
Karlar:
Haukar ÍBV: 2829
Sjá má myndir frá þessum
spennandi leik á Facebook
síðu Fjarðarpóstins
Knattspyrna úrslit:
Karlar:
FH ÍBV: 10
HK Haukar: 11
Konur:
FH ÍA: 20
Haukar Keflavík: 50
Kosið um einkavæðingu?
Á síðustu vikum hefur komið í
ljós að fátækt meðal íslenskra
barna er meiri og alvarlegri en
hingað til hefur verið viðurkennt.
Þótt slagsíðan á Alþingi ráði
auðvitað mestu um
þetta geta sveitarfélögin
ýmislegt gert til að
koma til móts við þessi
börn sem ætla má séu
nærri þúsund talsins
hér í Hafnarfirði.
Til að rjúfa einangrun
þeirra barna sem standa
utan við íþrótta og
tómstundalíf er mikil
vægt að styrkir bæjarins
verði í stórauknum mæli látnir
renna beint til barn anna. Með því
að reikna hverju barni ákveðna
fjárhæð í formi frístundakorts
mun fjárhagur ekki hindra þátt
töku á sama hátt og verið hefur
hér sem annars staðar.
Auk frístundalífs verður að
koma algerlega í veg fyrir að
bær inn mismuni börnum gagn
vart grunnskólanámi. Í stað þess
að ganga lengra í niðurgreiddri
markaðsvæðingu verðum við að
tryggja að leik og grunnskólar á
vegum bæjarins verði í fremstu
röð. Þetta verður ekki tryggt
nema allir bæjarbúar óháð efna
hag hafi sömu hagsmuni af
viðhaldi öflugra grunnskóla.
Á meðan við í VG viljum auka
fjölbreytni og sveigjanleika í þeim
skólum sem reknir eru á vegum
bæjarins vilja aðrir nota sameigin
lega sjóði okkar til að hlaða enn
frekar undir forrétt
indaskóla handa þeim
betur settu. Kjós endur
verða að fá skýr svör við
því hvort fram bjóðendur
ætla að tryggja hér jafn
rétti til náms eða ganga
lengra í átt til aukinnar
mis skipt ingar.
Miðjuflokkarnir verða
að koma út úr skápn um
með það hvort þeir
hygg ist frek ar standa með okkur
vörð um grunnstoðir bæjarins eða
láta undan vilja sjálf stæðis manna
til aukinnar einka væð ingar. Eins
og staðan er nú er VG eini
áreiðanlegi valkost urinn gegn því
að auðræðið muni á næstu árum
naga sig fastar í grunn stoðir
bæjarins.
Markaðsvæðing í mennta og
velferðarmálum ýtir undir aukna
misskiptingu og samfélags kostn
að sem seint verður reiknaður til
fulls. Í staðinn verðum við að
tryggja að Hafnarfjörður verði
áfram bær fyrir okkur öll.
Höfundur er knattspyrnu-
mað ur og skipar 3. sæti
Vinstri grænna.
Sverrir
Garðarsson
Stjórnandi:
Hrafnhildur
Blomsterberg
Kór Flensborgarskólans
þriðjudaginn 27. maí kl. 20.00 2014
Tónleikar í Hamarssal Flensborgarskólans
Aðgangseyrir kr. 1.000
en 500 fyrir nemendur
Forsala miða er í Súfistanum í Hafnarfirði
og hjá kórfélögum.
Boðið verður upp á kaffi í hléi.
Gestir: Flensborgarkórinn
Tryggjum öflugan hús
næðis markað í Hafnarfirði
Framsóknarflokkurinn leggur
ríka áherslu á fjölskylduvænt
sam félag þar sem allir búa við
jöfn tækifæri og öryggi.
Nú hefur verkefna
stjórn um húsnæðismál
skilað af sér tillögum
sem munu hafa mikil
áhrif á húsnæðismál til
hins betra. Við í Fram
sókn viljum að bæjar
stjórn Hafnarfjarðar
taki skýra afstöðu til
hlutverks sveitar félags
ins í þeim tillögum.
Það er nauðsynlegt til að tryggja
öflugan húsnæðis markað hér í
Hafnarfirði. Svo allir þeir sem
hér vilja búa hafi val og öruggt
húsaskjól. Það skiptir miklu máli
að börnin okkar alist upp sínu
hverfi, í sínum skóla og með
sínum vin um. Jafnvel þó
fjölskyldan þurfi að stækka eða
minnka við sig. Það er því
mikilvægt að huga að nægu og
fjölbreyttu húsnæði innan hvers
hverfis í bænum.
Í stefnuskrá Framsóknar
flokks ins fyrir þessar kosningar
setjum við fram nokkur skýr
atriði sem munu hafa
áhrif á hús næðis mark
aðinn til hins betra.
Lækkun lóða gjalda
þarf að kom a til svo
byggingar aðilar sjái sér
fært að byggja hag
kvæmt hús næði. Við
viljum síðan fella niður
lóðagjöld fyrir íbúð ir
sem eru 65 m2 eða
minni til að mæta
brýnni þörf á ódýru húsnæði.
Með því að styðja við stofnun
leigufélaga og fella niður
lóðagjöld að hluta eða öllu leyti
er hægt að tryggja til fram tíðar
framboð lít illa og meðalstórra
íbúða í Hafnarfirði.
Nauðsynlegt er síðan að gera
ítarlega úttekt og þarfagreiningu
á félagslega hús næðiskerfinu hér
í Hafnarfirði þannig að þeim sem
eru í mest um vanda sé hjálpað.
Biðin eftir félagslegu húsnæði er
Jenný
Jókakimsdóttir
Aðalfundur
Badmintonfélags Hafnarfjarðar
verður haldinn
föstudaginn 23. maí kl. 18:30
í Íþróttahúsinu við Strandgötu.
Dagskrá aðalfundar er samkvæmt lögum félagsins.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
alltof löng og hefur þessari þörf
ekki verið sinnt sem skyldi
undan farin ár hjá bæjar yfir
völdum. Við í Fram sókn viljum
tryggja fjöl breytta valkosti hús
næðis fyrir alla hópa samfélagsins
og í þeim efnum þarf að vinna
hratt og vel. Til að svara brýnni
þörf þeirra sem eru í húsnæðis
vanda í dag.
Höfundur skipar 2. sæti á
lista Framsóknarflokksins.