Fjarðarpósturinn - 04.09.2014, Page 6
6 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 4. september 2014
Söngur og framkoma10 vikur fyrir
10-12 ára, 13-15 ára, 16 ára og eldri.
Einsöngvaranám - 12 vikur
16 ára og eldri.
Söngleikir - MasterClass
6. - 13. nóvember - 3. skipti.
Áheyrnarprufur-Námskeið
2.- 9. október - 3 skipti.
Hvernig á að undirbúa sig fyrir
söngvakeppnir, leikhúsprufur og
inntökupróf?
Haustnámskeið
hefjast 15.september
nýtt
nýtt
www.meiriskoli.is
Kennsla fer fram í Hafnarfirði og Reykjavík
Nánari upplýsingar eru á
facebookinu okkar “MEiriskóli” og
á heimasíðunni www.meiriskoli.is.
Skráning er á netfangið
meiriskoli@meiriskoli.is
og í síma 822 0837.
Lærðu á röddina lærðu á sjálfan þig
Það er alltaf gaman þegar vel gengur í íþróttum. Árangur
mælist þó ekki eingöngu í
unnum sigrum heldur og miklu
frekar mælist hann í framförum,
gleði og góðu samstarfi.
Stelpurnar í 6. flokki Hauka í
fótbolta spiluðu í síðustu viku til
úrslita á Íslandsmótinu og stóðu
sig mjög vel og voru ánægðar
með sinn árangur. Sigruðu þær
Breiðablik 41 í fyrsta leik, en
töpuð svo 01 fyrir Grindavík og
13 fyrir ÍBV sem hampaði
Íslandsmeistarabikarnum í flokki
Aliða en Hauka stúlkur urðu í
þriðja sæti. Ekki slæmur árangur
það! Leikið var í Vestmanna
eyjum.
Þá höfnuðu Haukar líka í 3.
sæti í flokki Dliða, Valur2 varð
Íslandsmeistari en FH í öðru sæti
og FH 2 í 4. sæti. Leikið var í
Kaplakrika.
Eva Dís, Kristín Björk, Hildur Jana, Krista Sól, Telma Ýr, Sóley
og Hera Brá ásamt þjálfara liðsins, Andra Rafni Ottesen.
Kepptu til úrslita
Eldhressar Haukastelpur í fótbolta
Ný kvenfataverslun
á Dalshrauni 11
Kvenfatnaður frá small og upp úr
skart og fl.
Opið kl. 11 til 18 alla virka daga
og fyrsta laugardag hvers mánaðar
Hlökkum til að sjá ykkur
Forever fashion | Dalshrauni 11 | Finndu okkur á Facebook
Haukar Hafnarfjarðarmeistarar
Sleppa ekki takinu á FH-ingum
Íslandsmótið í handknattleik
hefst innan skamms. Hafnar
fjarðarmótið í handbolta karla er
einn liður í undirbúningi
félaganna fyrir Íslandsmótið en
að þessu sinn kepptu auk FH og
Hauka, ÍBV og Akureyri.
Hafnarfjarðarliðin sigruðu sína
andstæðinga nokkuð auðveld
lega og léku því til úrslita. Þar
höfðu Haukar yfirhöndina,
hleyptu FHingum aldrei nálægt
sér. Mest munaði um gríðarlega
sterka vörn Haukanna sem frekar
lágvaxið lið FHinga réð illa við.
Það voru því Haukar sem
hampa Hafnarfjarðarmeistara
titlinum og ekki síður mont
réttinum sem FHingar hljóta að
vera orðnir mjög óþreyjufullir
eftir að ná af Haukunum.
Akureyri sigraði svo ÍBV í leik
um þriðja sætið, 2827 eftir að
hafa verið 9 mörkum undir í
hálfleik.
Fyrsti leikur FH og Hauka í
Íslandsmótinu verður 25.
september í Kaplakrika.
Adam Haukur Baumruk skoraði 6 mörk fyrir Hauka.
Hafnarfjarðarmeistar Hauka, greinilega tilbúnir fyrir Íslandsmótið í handknattleik.
Stundum slapp boltinn framhjá.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n