Akureyri


Akureyri - 16.10.2014, Qupperneq 2

Akureyri - 16.10.2014, Qupperneq 2
2 38. tölublað 4. árgangur 16. október 2014 Felgulökkun Sandblásum og lökkum felgur undir öll farartæki. Haf ið samband og kynn ið ykkur mál ið ! D r a u p n i s g a t a 7 m l s í m i 4 6 2 - 6 6 0 0 / 8 9 7 - 8 4 5 4 l p o l y a k @ s i m n e t . i s Áttu vandaðar felgur sem farnar eru að láta á sjá? Notum innbrennda duftlökkun sem er slitsterkasta lökkunaraðferð sem býðst og hentar því einstaklega vel til lökkunar á bílfelgum. Það borgar sig að láta okkur duftlakka gömlu felgurnar og gera þær sem nýjar. Lökkum / húðum einnig alla málma og gler. Er ekki tímabært að lagfæra felgurnar fyrir veturinn? Fótbolti í boði Samherja „Styrkurinn frá Samherja er með því skilyrði að hann fari óskiptur í að greiða niður æfinga-og keppn- iskostnað yngri flokka svo að hann hefur þarna svo sannarlega áhrif,“ segir Jón Óðinn Waage, kunnur júdóþjálfari á Akureyri sem þjálfar einnig börn í fótbolta. Aðrir við- mælendur blaðsins innan íþrótta- geirans á Akureyri ganga svo langt að segja að Samherji haldi hrein- lega íþróttastarfi uppi. „Fótboltinn hér er nánast í boði Samherja, það má segja það, að vísu með hæfi- legum ýkjum,“ segir einn stjórn- armanna stóru knattspyrnufélag- anna. Verðlagseftirlit ASÍ tók saman æfingagjöld í knattspyrnu hjá 16 fjölmennustu íþróttafélögunum víðsvegar um landið. Skoðuð var gjaldskrá hjá 4. og 6. flokki íþrótta- félaganna og reyndist ódýrast að æfa fótbolta hjá Þór en í öðru sæti er KA. Hjá KA þarf að greiða kr. 20.444 fyrir 4. flokk, haustönn 2014 en 17.778 fyrir 6. flokk. 20.000 krón- ur sléttar kostar önnin hjá 4. Flokki hjá Þór en 17.500 fyrir 6. flokk. Dýrast er að æfa hjá Breiðabliki þegar horft er til 4. flokks en þar kostar mánuðurinn 7.833 kr. eða 31.333 kr. fyrir 4 mánuði. Hjá Þór á Akureyri kostar mánuðurinn 5.000 kr. eða 20.000 kr. fyrir 4 mánuði það er eftir að niðurgreiðslur frá Samherja hafa verið teknar með í reikninginn. Verðmunurinn er 57% eða 11.333 kr. Verðlagseftirlitið bar einnig saman gjaldskrá fyrir 6. flokk eða 8 og 9 ára börn. Dýrast er að æfa hjá Breiðabliki og Íþróttabanda- lagi Akraness en þar kostar mánuð- urinn 6.667 kr. eða 26.667 kr. fyrir 4 mánuði. Ódýrast er að æfa hjá Íþróttafélaginu Þór á Akureyri en þar kostar mánuðurinn 4.375 kr. eða 17.500 kr. Verðmunurinn er 52% eða 9.167 kr. -BÞ Ívilnanir fyrir EFTA? Ívilnunarsamningar íslenskra stjórnvalda við fimm fyrirtæki: Becromal, Verne, Íslenska Kísil- félagið, Thorsil og GMR Endur- vinnsluna, fólu í sér ríkisaðstoð sem gengur gegn EES-samningnum. Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hef- ur því gefið íslenskum stjórnvöld- um fyrirmæli um að endurheimta alla þá ríkisaðstoð sem veitt var á grundvelli umræddra samninga. Í október 2010 samþykkti ESA styrkjakerfi til nýfjárfestinga sem íslensk stjórnvöld höfðu ákveðið til að efla atvinnuþróun á landsbyggð- inni. Styrkjakerfið sem Ísland kom á fót byggðist á lögum um ívilnanir vegna nýfjárfestinga. Lögin heimil- uðu ríkisstyrki til fyrirtækja eink- um í formi skattaívilnana og á þeim grundvelli undirrituðu íslensk stjórnvöld ívilnunarsamninga við fyrirtækin fimm á tímabilinu 2010- 2012. Lögin féllu úr gildi í árslok 2013. Í apríl 2013 ákvað ESA að hefja formlega rannsókn á ríkisað- stoð á grundvelli styrkjakerfisins, breytingum sem gerðar höfðu verið á því og ívilnunarsamningum sem undirritaðir höfðu verið. Markmið rannsóknarinnar var að meta hvor- tríkisaðstoðin væri í samræmi við EES-samninginn. Niðurstaða rannsóknar ESA er að fyrirtækin Becromal og Verne hafi verið búin að taka ákvarðanir um fjárfestingu á Íslandi og ráð- ist í framkvæmdir án fyrirheita um ríkisaðstoð. Til að ríkisaðstoð sé lögmæt þarf hún að hvetja til nýfjárfestingar sem hefði annars ekki orðið. Ríkisaðstoðin var því ekki í samræmi EES-samninginn og ber íslenskum stjórnvöldum að endurheimta hana ásamt vöxtum og vaxtavöxtum frá þeim tíma sem aðstoðin var veitt. Oddvitar meirihlutaflokkanna á Akureyri segja ótímabært að segja hvað þetta þýði fyrir bærinn. „Það er of snemmt er að segja nokkuð til um þetta því ekki er ljóst hvort niðurstaða ESA hafi áhrif á fyrirtæki sem voru með ívilnunar- samning við íslensk stjórnvöld. Stjórnvöld eiga m.a. eftir að ákveða hvort þau fari með málið til EFTA dómstólsins,“ segja oddvitar meirihlutans á Akureyri í skriflegu svari við fyrirspurn blaðsins um hvaða áhrif gætu orðið af málinu hvað varðar Becromal. Framkvæmdastjóri Becromal svaraði ekki skilaboðum frá blað- inu. -BÞ Ásýnd sundlaugar látið á sjá Oddvitar meirihlutaflokkanna í bæjarstjórn Akureyrar hafa ákveðið að reyna að fresta upp- setningu 100 milljóna króna renni- brautar eins og síðasti meirihluti hafði á stefnuskrá. Verið er að vinna framkvæmdastefnu fyrir sundlaugarsvæðið sem ætlað er að ljúki 2017. „Því miður hefur ásýnd sund- laugarinnar látið á sjá og mikil- vægt er að huga að viðhaldi og endurbótum með það að markmiði að styrkja og bæta aðstöðuna fyrir sundlaugargesti. Gerður var samn- ingur við fyrirtækið Altís um kaup á rennibraut sem hluta af þeim áformum að bæta aðstöðuna en Akureyrarbær stendur nú í samn- ingaviðræðum við fyrirtækið um að fresta kaupunum og huga fyrst að brýnni verkefnum við sundlaugina,“ segir Guðmundur Baldvin Guð- mundsson formaður bæjarráðs. Eiríki Birni Björgvinssyni bæj- arstjóra verður falið að semja við Altis um frestun í ljósi þess að aðr- ar endurbætur séu mikilvægari og viðhald brýnna. Ragnheiður Runólfsdóttir sund- drottning og þjálfari hjá sundfé- laginu Óðni er í hópi þeirra sem hafa gagnrýnt þá forgangsröðun að eyða stórfé til nýrra rennibrautar. Nær væri að huga betur að aðstæð- um keppnisfólks. -BÞ Prófessorar í verkfall? Svo kann að fara að nemendur um allt land og þá ekki síst við Háskól- ann á Akureyri lendi í verkfalli pró- fessora í próftíð haustannar, fari svo að ekki semjist um launahækkanir. Í bréfi formanns Félags prófessora við ríkisháskóla til félagsmanna segir að stjórn félagsins hafi farið yfir helstu möguleika til að þrýsta á um gerð kjarasamnings. Með tilliti til nauðsynlegs undirbúningstíma og virkni aðgerða komi fátt annað til greina en að ganga til almennrar atkvæðagreiðslu um boðun verk- falls lögum samkvæmt. Til að kanna hug félagsmanna til verkfallsboðunar stendur nú yfir könnun meðal prófessora. Stjórn félagsins mun hafa niðurstöðurn- ar til hliðsjónar þegar ákvarðanir verða teknar um hvort gengið verði til bindandi almennrar atkvæða- greiðslu um boðun verkfalls til að knýja á um gerð kjarasamnings. -BÞ Mikilvægi gagnrýninna frétta Ný rannsókn Herdísar Helgadóttur sýnir að starfsmenn staðarmiðla á Akureyri vinna starf sitt af hugsjón vegna áhuga á samfélaginu. Þeir láta langan vinnutíma ekki fæla sig frá starfinu og finnst gaman í vinnunni. Herdís hefur lokið meistara- námi í Stjórnun og stefnumótun við Viðskiptafræðideild HÍ. Óbirt lokaritgerð hennar hverfist um rannsókn sem hún gerði með við- tölum við níu blaðamenn staðar- miðla á Akureyri. Ýmis áhyggju- efni komu fram í rannsókninni um starf miðlanna þótt blaðamenn séu ánægðir í starfi. Ritstjórnarlegu sjálfstæði er ógnað, bæði vegna ná- lægðarvanda og vegna þess hversu fáliðaðir miðlarnir eru. „Þetta er áhyggjuefni því landsdekk- andi fjölmiðlar segja einungis frá stærri málum í litlum samfélögum. Því er mikilvægt að staðarmiðlar sinni varðhundshlutverkinu á sem bestan hátt. Mikilvægi varðhunds- hlutverksins er gríðarlegt og því er það afar óæskilegt ef því er ekki sinnt í minni samfélögum,“ segir í lokaorðum ritgerðarinnar. Upbygging og jákvæðni voru mörgum viðmælendum einnig ofar- lega í huga. „Það er í samræmi við það sem rannsóknir hafa sýnt, að staðarmiðlar leggi gjarnan áherslu á það jákvæða í samfélaginu,“ segir Herdís. Viðmælendur voru sammála um að jafnvægi hafi náðst á fjölmiða- markaði á Akureyri og hæfilega mikið væri af aðhaldsfréttum og hæfilega mikið af uppbyggjandi umfjöllun. -BÞ

x

Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.