Akureyri


Akureyri - 16.10.2014, Síða 6

Akureyri - 16.10.2014, Síða 6
6 38. tölublað 4. árgangur 16. október 2014 Starf sálfræðings er laust til umsóknar www.skagafjordur.is Fjölskylduþjónusta Skagfirðinga óskar eftir að ráða sálfræðing til starfa. Starfið er hvort tveggja á sviði skólaþjónustu og félagsþjónustu. Fjölskylduþjónustan leggur áherslu á samþætta þjónustu og hefur á að skipa vel menntuðu fagfólki, félagsráðgjöfum, uppeldis- og sálfræðiráðgjafa, þroskaþjálfum, sérkennurum, kennsluráðgjöfum, námsráðgjafa og talmeinafræðingi. Helstu verkefni sálfræðings: • Sálfræðilegar athuganir og greiningar á börnum. • Ráðgjöf við foreldra og starfsmenn leik- og grunnskóla. • Þverfaglegt starf í skóla, félagsþjónustu, barnavernd o.fl. Umsóknarfrestur er til og með 26. október 2014 Nánari upplýsingar um starfið má finna á heimasíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar www.skagafjordur.is (störf í boði) N Ý P R EN T e h f. Ekkert hlustað á óskir heimamanna Sameiningar heilbrigðisstofnana í þremur heilbrigðisumdæmum sem tóku gildi 1. október sl. þýða að eftir sameininguna fækkaði heil- brigðisstofnunum á Norðurlandi, Suðurlandi og á Vestfjörðum úr ell- efu í þrjár. Í geinargerð nokkurra þingmanna til þingsályktunar segir að mikillar óánægju hafi gætt með sameiningarnar þar sem þau sjón- armið hafi komið fram að þessar að- gerðir dragi úr öryggi og þjónustu, og leiði til þess að störf fyrir há- skólamenntaða flytjist frá dreifðari byggðum til þéttbýliskjarna. „Þannig draga aðgerðirnar líka úr fjölda háskólamenntaðra þjón- ustustarfa í viðkomandi byggðum. Þrátt fyrir óánægjuna virðist ekk- ert hafa verið hlustað á óskir eða ráðgjöf heimamanna á hverjum stað,“ segir í greinargerð níu þing- manna Samfylkingarinnar með til- lögunni. „Mikilvægt er að grunnþjónusta í mennta- og heilbrigðiskerfinu sé aðgengileg í heimabyggð. Heima- menn þurfa að hafa sem mest að segja um hvernig þjónustan er veitt og geta haft áhrif á samspil henn- ar við þjónustu sveitarfélaga. Við gerð fjárlaga þarf að standa vörð um aðgengi allra íbúa að menntun hvar sem þeir búa. Styrkja þarf framhaldsskóla til að þjóna þörf- um nærsamfélagsins og stuðla að uppbyggingu menntasetra. Hér er um að ræða eina mikilvægustu jafnræðisaðgerðina sem stjórn- völd geta gripið til gagnvart æsku landsins. Skoða verður sérstaklega í fjárlagavinnunni hvort sjónarmið um fjárhagslega hagræðingu koma niður á öryggi sjúklinga og gæðum heilbrigðisþjónustu í landsbyggð- unum og hvort sameiningar stofn- ana hefur neikvæð áhrif á atvinnu- þróun í dreifðum byggðum,“ segir einnig. AKUREYRI SÉRSTAKT ÁHYGGJUEFNI. Þingmennirnir segja að athuga þurfi hvaða áhrif sameining heil- brigðisstofnana hafi á samstarf þeirra og félagsþjónustu sveitarfé- laga. Mikilvægt sé að gott samstarf sé þar á milli og að heimamenn hafi aðkomu að ákvörðunum heil- brigðisstofnananna sem snúi að samstarfinu. „Sérstakt áhyggjuefni er að heilbrigðisráðherra leggi nú til algera öfugþróun í langþráðri samþættingu heilsugæslu og fé- lagsþjónustu með því að leggja af þann samrekstur þessara þátta sem tíðkaður hefur verið á Akureyri um áratugaskeið með góðum árangri. Tryggja þarf að lögum um umdæm- issjúkrahús og öfluga grunnþjón- ustu, þ.m.t. heilsugæslu og þjón- ustu við aldraða, verði framfylgt og tillit verði tekið til landfræðilegra aðstæðna og erfiðra samgangna.“ Í tillögu þingmannanna til þingsályktunar sem fjallar um bráðaaðgerðir í byggðamálum er óskað að Alþingi álykti að fela ríkisstjórninni að grípa til bráða- aðgerða til að bregðast við því „alvarlega ástandi sem upp er kom- ið í byggðamálum og kallar á taf- arlausan stuðning við atvinnuþró- un, menntun, velferðarþjónustu og uppbyggingu innviða í landsbyggð- unum“ eins og það er kallað. ÚRBÆTUR Í 11 LIÐUM Byggt verði áfram á aðferðafræði sóknaráætlana landshluta og fjár- heimildir sem nú eru vistaðar í ólík- um ráðuneytum sameinaðar. Aukið fjármagn verði veitt til sóknaráætl- ana og lykiláhrif heimamanna á út- hlutun þess tryggð. Aukin verði fjárframlög til sam- göngumála, sem voru skorin niður við samþykkt fjárlaga fyrir árið 2014, til samræmis við fjárfesting- aráætlun síðustu ríkisstjórnar um vega- og jarðgangagerð og til að hægt sé að standa við samninga um eflingu almenningssamgangna milli ríkis og landshlutasamtaka. Sjávarútvegs- og landbúnað- arráðherra leggi fyrir Alþingi sem fyrst frumvarp um breytingu á lög- um um veiðigjöld sem tryggi sjávar- byggðum hlutdeild í tekjum af sérs- töku veiðigjaldi og tryggi að aukinn byggðakvóti fari til Byggðastofn- unar til að sinna verkefnum tengd- um brothættum byggðum. Iðnaðar- og viðskiptaráðherra leggi fyrir Alþingi frumvarp að rammalöggjöf um ívilnanir vegna nýfjárfestinga sem útfærð verði á þann veg að hún nýtist sérstaklega uppbyggingu í landsbyggðunum. ðnaðar- og viðskiptaráðherra leggi fyrir Alþingi frumvarp um jöfnun húshitunarkostnaðar sem feli í sér að jöfnunargjald verði lagt á alla notendur raforku, þar á með- al stóriðju og aðra stórnotendur. Félags- og húsnæðismálaráð- herra leggi fyrir Íbúðalánasjóð að koma ónýttu húsnæði án tafar í not á þeim svæðum þar sem eftirspurn eftir húsnæði er meiri en framboð. Í því skyni verði samið við sveitar- félög um yfirtöku húsnæðis ef þörf er á. Iðnaðar- og viðskiptaráðherra leggi fyrir Alþingi frumvarp til laga sem tryggi sveitarfélögum hlutdeild í tekjum af ferðamönn- um til að gera sveitarfélögunum sjálfum kleift að byggja upp segla til að draga að ferðamenn og dreifa þannig betur flæði ferðamanna um landið. Innanríkisráðherra leggi fyrir Alþingi tímasetta og kostnaðar- greinda áætlun um uppbyggingu háhraðatenginga og hringtengingu ljósleiðara um land allt. Iðnaðar- og viðskiptaráðherra leggi fram tímasetta og kostnað- argreinda áætlun um uppbyggingu dreifikerfis raforku til að tryggja afhendingaröryggi og fullnægjandi flutningsgetu um land allt. Sjávarútvegs- og landbún- aðarráðherra leggi fyrir Alþingi frumvarp um eflingu á kerfi jöfn- unar flutningskostnaðar á þann veg að styrkir taki einnig til verslunar. Nægar fjárveitingar verði í fjárlögum til að bæta aðgengi að menntun og tryggja öryggi sjúk- linga og gæði heilbrigðisþjónustu um allt land. -BÞ Dreifbýlisbörn þyngri en borgarbörn Miklar áhyggjur komu fram af lýðheilsu ungs fólks í umræðu á Alþingi í síðustu viku. Höskld- ur Þór Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins í NA-kjördæmi, var málshefjandi sérstakr- ar umræðu sem bar yfirskriftina: Þjóðarvá vegna lífsstílstengdra sjúkdóma barna og unglinga. Höskuldur Þór ræddi lífsstílstengda sjúkdóma og vitnið í gögn frá WHO um að lífsstílssjúkdómar væru nú 75% af sjúk- dómum Evrópuþjóða. Undir það féllu krabbamein, hjartasjúkdómar, lungnasjúkdómar og sykursýki svo nokkuð sé nefnt. Flestir áhættu- þættir væru þekktir, hreyfingar- leysi, reykingar, áfengi og óhollt mataræði þar á meðal. Heilbrigðisráðherra sagði hreyf- ingarleysi sérstakt áhyggjuefni hjá ungu fólki. Um fimmta hvert barn á Íslandi væri of þungt eða feitt. Töluverður munur væri á ung- mennum landsbyggðanna og höfuð- borgarsvæðisins hinum fyrrnefndu í óhag. Rannsókn sýndi að hartnær fjórða hvert barn væri of þungt í dreifbýli. Valgerður Bjarna- dóttir þingmaður benti á að árið 1938 voru 0,2% barna of feit en 60 árum síðar var þetta hlutfall komið upp í 20%. „Í ljósi þessara upplýsinga er ótrúlegt að ríkisstjórnin ætli að lækka verð á sykruðum vörum, það er út í hött,“ sagði Val- gerður og vísaði þar til sykurskatts- ins sem ríkisstjórnin hyggst afnema. Helgi Hrafn, þingmaður Pírata, hafnaði tali um „þjóðarvá“. Hann sagðist hafa fengið nóg af þessu „blæti Íslendinga á gífuryrðum. Hann sagðist þó ekki gera lítið úr vandanum en gagnrýndi hve orða- lagið væri hástemmt. -BÞ Heilsugæslustöðin á Akureyri. Sérstakt áhyggjuefni er að Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra leggi til algera öfugþróun í langþráðri samþættingu heilsugæslu og félagsþjónustu með því að leggja af samrekstur þessara þátta sem tíðkaður hefur verið á Akureyri um áratugaskeið með góðum árangri, segja nokkrir þingmenn Samfylkingarinnar. Höskuldur Þór Þórhallsson.

x

Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.