Akureyri - 16.10.2014, Qupperneq 14
14 38. tölublað 4. árgangur 16. október 2014
Á ráðstefnunni verða aðstæður kvenna og karla á norður
heim skauts svæðinu skoðaðar í víðum skilningi og athyglinni
beint að aðgangi og yfirráðum auðlinda, þátttöku kynjanna
í ákvarðana töku og stjórnmálum, byggðaþróun, öryggi og
almennri velferð.
Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra flytur opnunarávarp
ráðstefn unnar og munu Tarja Halonen, fyrrverandi forseti Finnlands,
Okalik Eegeesiak, formaður Inuit Circumpolar Council, Alaska, Claudia
David, helsti ráð gjafi um málefni frumbyggja í Kanada og Gunn-Britt
Retter, Saami Council taka þátt í ráðstefnunni auk fjölmargra íslenskra
og erlendra sérfræðinga, fulltrúa atvinnulífsins og félagasamtaka.
Ráðstefnan er liður í áherslu utanríkisráðuneytisins á jafnréttismál
og nýtur verk efnið stuðnings Norður skauts ráðsins, Norrænu
ráðherra nefnd ar innar, Finnlands, Noregs, Svíþjóðar og Færeyja en
skipuleggjend ur ráð stefn unnar eru utanríkis ráðuneytið, Jafnréttis stofa,
Stofnun Vilhjálms Stefáns sonar og Norðurslóðanet Íslands.
Ráðstefnan er haldin í Hofi menningarhúsi á Akureyri og er öllum opin.
SKIPULEGGJENDUR STYRKTARAÐILAR
Upplýsingar um dagskrá,
fyrirlesara og skráningu
arcticiceland.is/genderequality
GENDER
EQUALITY
ARCTICin the ALÞJÓÐLEG RÁÐSTEFNA UM JAFNRÉTTI KYNJANNA Á NORÐURSLÓÐUM
AKUREYRI, 30.-31. OKTÓBER 2014
SPORTIÐ Akureyri.net
Almenningsíþróttadeild KA
Laugardaginn 4. október síðast-
liðinn var fyrsti formlegi dagurinn
í almenningsíþróttadeild KA og
var boðið upp á gönguhóp frá KA-
-heimilinu kl. 10:30 og síðan kaffi
og kökur á eftir.
„Þetta er vonandi fyrsta skref-
ið af mörgum í rétta átt hjá okkur
en hugmyndir hafa verið uppi um
að bjóða einnig upp á hlaupahópa,
hjólreiðar, badminton o.fl. allt eft-
ir því hvar áhugi almennings ligg-
ur og hvað við getum boðið upp
á,“ segir Sævar Pétursson, fram-
kvæmdarstjóri KA.
„Við tökum ekkert gjald fyrir
þátttökuna og engar kröfur gerð-
ar aðrar en að fólk mæti með góða
skapið með sér og taki þátt. Við lít-
um á þetta sem þjónustu við alla þá
félagsmenn sem hafa verið hjá okk-
ur undanfarin ár og þá foreldra sem
eru með börn hjá félaginu í dag. KA
er fyrir alla, ekki bara þá sem vilja
stunda keppnisíþróttir. Er það von
okkar að sem flestir taki þátt og ef
fólk er með hugmyndir að starfsemi
sem gætu fallið undir almennings-
íþróttadeild KA þá má það endi-
lega koma því á framfæri við okkur
og við reynum eins og hægt er til að
verða við því,“ segir Sævar. -H.B
Hörkuleikur í kvöld
Í kvöld tekur Akureyri á móti
FH í sjöundu umferð Olísdeild-
ar karla í handbolta
í leik sem fram
fer í íþróttahöll-
inni. Akureyri sem
hafði tapað tveim
heimaleikjum í röð
gerð góða ferð suð-
ur um liðna helgi
og sigraði lið Fram
örugglega með sex
marka mun. Lið
Akureyrar er í sjötta
sæti deildarinnar með 6 stig en
FH í því þriðja með fjögur stig.
Leikur Akureyrar og FH hefst
klukkan 19:00.
Á laugardag taka Hamrarn-
ir sem leika í fyrstu deild karla í
handbolta á móti Vík-
ingi í leik sem fram
fer í KA- heimilinu.
Leikur Hamranna og
Víkings hefst klukk-
an 16:00. Þá sækja
stelpurnar í KA/Þór
lið Selfyssinga heim
í Olísdeild kvenna og
er leikur liðanna lið-
ur i fimmtu umferð
deildarinnar. Sel-
fyssingar eru í 7. Sæti deildarinn-
ar með 3 stig en KA/Þór í ellefta
sætinu með 2 stig. Leikur liðanna
hefst klukkan 17:00. a
Þór spilar á morgun
Á föstudagskvöldið heldur karlalið
Þórs í körfubolta suður yfir heið-
ar og sækir lið Vals heim. Þór sem
teflir fram mikið breyttu liði hóf
keppni með tapi gegn Hetti í fyrstu
umferð á heimavelli freista þess
að sækja sigur í Vodafonehöllina.
Leikur Þórs og Vals hefst klukkan
19:30. Það verður svo stutt pása
hjá strákunum en á sunnudag fá
þeir lið Skagamanna í heimsókn
í íþróttahús Síðuskóla og hefst sá
leikur klukkan 16:00. Sama dag
hefja stelpurnar í körfuboltaliði
Þórs leik á Íslandsmótinu og fyrsta
verkefni vetrarins hjá þeim verð-
ur að sækja lið Stjörnunnar heim.
Leikur liðanna fer fram í Ásgarði
og hefst klukkan 14:30.
Ábendingar um efni í blaðið og á
vefinn itrottir@akureyri.net
ÍSHOKKÍ UM
HELGINA
Á laugardag tekur SA Víkingar á
móti SR á Íslandsmótinu í íshokkí
karla í leik sem fram fer í Skauta-
höllinni á Akureyri. Hér eigast
við tvö af sterkustu íshokkílið-
um landsins svo búast má við
hörkuleik þar sem ekkert verður
gefið eftir leikur liðanna klukkan
16:30.