Akureyri - 16.10.2014, Side 16
16 38. tölublað 4. árgangur 16. október 2014
Þjónandi forysta
Ráðstefna Þekkingarseturs um þjónandi forystu og Háskólans á Bifröst 31. október 2014
Þjónandi forysta: Samskipti og samfélagsleg ábyrgð
Gary Kent Róbert
Guðfinnsson
Sigríður Björk
Guðjónsdóttir
Gunnar
Svanlaugsson
Anyone could lead perfect
people, – if there were any.
Reynslusaga af
Suðurnesjum
Þjónandi forysta
í félagsmálum
Er það sjálfgefið að hæft
fólk vilji vinna með manni?
Birna Dröfn Birgisdóttir
Mikilvægi þjónandi forystu fyrir sköpunargleði
Heiða Björg Ingólfsdóttir
Upplifun leiðbeinenda í leikskóla af
starfsumhverfi sínu
Auður Pálsdóttir
Þjónandi forysta og sýn ungleiðtoga í æskulýðsstarfi
Hrafnhildur Haraldsdóttir
Viðhorf framhaldsskólakennara til samskipta
og samvinnu
Alda Margrét Hauksdóttir
Þjónandi forysta og starfsánægja lífeindafræðinga
Steingerður Kristjánsdóttir
Viðhorf stjórnenda hjá ÍTR til stjórnunar og forystu
Þóranna Rósa Ólafsdóttir
Reynsla skólastjóra af vinnustaðkönnun
Reykjavíkurborgar
Sigurður Ragnarsson
Þjónandi leiðtogi: Þræll eða þrælgóður leiðtogi?
Sigrún Gunnarsdóttir
Þjónandi forysta hjá Toyota og Thor Jensen
Óttarr Proppé
Er rúm fyrir ást og umhyggju í stjórnmálum og
opinberri umræðu?
Vilhjálmur Egilsson
Bifrestingar: Heimsborgarar og sveitamenn
Aðal fyrirlesarar ráðstefnunnar:
Aðrir fyrirlesarar á ráðstefnunni:
Skráning fer fram á thjonandiforysta.is
Þjónandi forysta
Servant leadership
BRÚÐKAUP frumsýnt í
Ólafsfirði annað kvöld
LEIKFÉLAG FJALLABYGGÐAR,
sem til varð við sameiningu leikfé-
laganna á Siglufirði og Ólafsfirði, er
nú á lokaspretti við æfingar á nýju
leikriti, BRÚÐKAUP, eftir Guð-
mund Ólafsson, sem jafnframt er
leikstjóri.
Leikárið 2012 - 2013 ákváðu
leikfélögin að vinna saman að upp-
setningu á öðru leikriti eftir Guð-
mund, sem nefndist STÖNGIN INN!
Sú sýning hlaut frábærar viðtökur
og var sýnd í Menningarhúsinu
Tjarnarborg við mikinn fögnuð fjöl-
margra áhorfenda. Rúsínan í pylsu-
endanum var að sýningin var valin
„athyglisverðasta áhugaleiksýningin
árið 2013“ og fylgdi þeirri nafnbót
að verkið var sýnt í Þjóðleikhúsinu í
júní á síðasta ári fyrir troðfullu húsi,
að sögn Guðmundar Ólafssonar.
BRÚÐKAUP fjallar, einsog
titillinn bendir til, um brúðkaup.
Herdís Eva er loksins gengin út og
ætlar að ganga að eiga hann Bjarna
Þór, sem er traustur starfsmaður
Heimilistækja.
En séra Guðrún leggst í lungna-
bólgu og verður þá að kalla til fyrr-
verandi sóknarprest, sem er, því
miður, sjaldnast með allt á hreinu.
En veislan ætti að ganga vel því
veislustjórinn vinnur hjá Aríon-
banka í Reykjavík og það er sko
ekkert víst að tæknin klikki hjá
Ella. En hvað með ömmu? Er hún
lífs eða liðin? Og skyldi Alfreð móð-
urbróðir hegða sér sómasamlega?
Og hverjum dettur eiginlega í hug
að koma í krumpugalla í brúðkaup?
„Svo er það STÓRA LEYNDAR-
MÁLIÐ sem setur allt í uppnám,“
segir Guðmundur.
Þetta er fjölmenn sýning því
rúmlega tuttugu leikarar eru á
sviðinu þegar mest er ásamt tríói
tónlistarfólks.
Frumsýnt verður föstudaginn
17. október klukkan 20:00 í Menn-
iningarúsinu Tjarnarborg í Ólafs-
firði. Önnur sýning sunnudaginn 19.
október. a
AÐSEND GREIN FRIÐBJÖRG JÓHANNA SIGURJÓNSDÓTTIR
Ég elska dömulega dekurdaga
Ég elska dömulega dekurdaga, Ak-
ureyrarvöku og bíladaga en ekkert
sérstaklega 17. júní, jólin eru fer-
lega asnaleg hátíð en páskarnir æði
.... og já, ég er feministi !
Það er alveg ótrú-
lega margt skrítið sem
fullorðið fólk tekur sér
fyrir hendur, velur að
eyða tíma sínum og jafn-
vel peningum í. Eitt það
skrítnasta að mínu mati
er að fólk (karlar) stund-
ar og eyðir löngum tíma
í að horfa á, er fótbolti. Í
sumar var HM í Brasilíu,
það var þekkt og vitað að
fátækt er gríðarlega stórt
vandamál í því landi og að í að-
draganda HM og meðan á leikunum
stóð jókst eymd þessa fólks veru-
lega, barnungar stúlkur leiddust út
í vændi, fátækir og ótryggðir verka-
mann slösuðust og létust við undir-
búning keppninnar og fleira á þess-
um nótum en FIFA græðir og fólkið
horfir. Og það kemur mér ekkert
við, þeir sem horfa hafa valið það
og vilja verja tíma sínum þannig.
Komum þá að dömulegum dekur-
dögum, sem mér finnst alveg dá-
samlegir. Allt fullt af bleiku (og ég
elska bleikt), spennandi
tilboðum, uppákomum,
bærinn skreyttur o.fl. Nú
er ég afskaplega lítið fyrir
búðir almennt, en á þess-
um dögum er gaman. Allir
verslunar- og veitinga-
menn eru glaðir eftir að
hafa nostrað við að gera
dömurlega dekurdaga
jafnvel úr garði og raun
ber vitni. Flottust finnst
mér hún Vilborg í Centro,
frábær stelpa og dugn-
aðarforkur sem leggur metnað í að
lífga upp á bæinn sinn, draga að
fólk (konur) til að gera sér daga-
mun og vera í forsvari fyrir þessa
hátíð. Hvort konur vilja svo mæta
og eyða, það er undir þeim sjálfum
komið. Margar konur hafa mikin
áhuga á útliti sínu, snyrtivörum,
fötum og fylgihlutum, og þá eyða
þær og gera það sem þær vilja. Ég
hef oft farið á dömulega dekurdaga
og skemmt mér dásamlega þrátt
fyrir að eyða litlu sem engu þar
sem hvoru tveggja kemur til að ég
hef álíka mikið á milli handanna og
blessuð kirkjurottan finnur í safn-
aðarbauknum á sunnudögum og
áhugi minn liggur að takmörkuðu
leyti við útlit mitt eða klæðaburð
(á hefðbundin hátt). Mergur máls-
ins, fullorðið fólk velur, ber ábyrgð
á og verður að eiga við sjálft sig
hvað það vill gera við tíma sinn og
peninga. Sem feministi er ég mikið
meira hugsi yfir mörgum hlutum,
viðhorfum og skoðunum í samfé-
laginu sem ég tel ekki hafa góð áhrif
á samskipti kynjanna, þau viðhaldi
kynbundnum launamun, geti ýtt
undir og skapað kynbundið ofbeldi
og hafi skaðleg áhrif á andlega líð-
an, jafnt drengja sem stúlkna. Mér
var brugðið við að heyra frá ungum
foreldrum fjögurra ára drengs sem
sögðu mér að hann hefði ekki horft
á Frozen, hann væri ekki spenntur
fyrir stelpumyndum ! Ég er hugsi
yfir viðhorfum hjá pabba annars
fjögurra ára drengs sem ég heyrði
af á leikvelli um daginn en dreng-
urinn var í frekar slæmu skapi og
skeytti því á umhverfi sínu en þá
segir pabbinn ,,oohhh hann er svo
mikill gaur, það alveg bullar í hon-
um testósterónið“, hvaða skilaboð til
barns eru það! Mér finnst ömurlegt
þegar talað er um bóndakonur, eru
þá til kennarakonur og kennarar,
forsetakonur og forsetar ! Ég verð
feminískt úfin (og reyndar alveg
feminískt brjáluð) þegar hrós og
athygli sem beint er til barna er
kynjað þannig að stelpum er hrósað
fyrir útlit, hár og föt en strákum fyr-
ir að vera stórir, sterkir, og hlaupa
hratt. Hvernig líður svo strákunum
sem verða ekki hávaxnir, sterkir eða
geta hlaupið hratt en hafa allt ann-
að til að bera ! Eða stelpunum sem
leggja sig allar fram í að ná árangri
í sínu áhugamáli en fá mesta athygli
fyrir útlitið, hárið og fötin ! Og af
hverju verð ég feminískt brjáluð, jú
af því að þetta er algert rugl sem við
og samfélagið höfum búið til og er
einfaldlega rangt. Hvert barn, hver
einstaklingur á að hafa rétt til að
lifa, þroskast og líða vel með sjálfan
sig, eins og hann er.
Gæti skrifað svo miklu meira
og á eftir að skrifa um allar hinar
hátíðarnar í fyrirsögninni en hef
bara ekki meiri tíma í bili, ég er
nefnilega að fara að skella á mig
glossinu, áður en ég fer upp á skot-
svæði að leika við strákana.
Ps. strákunum er alveg sama
hvort ég er með gloss eða ekki, ég
hitti heldur ekkert betur þó ég sé
með glossið. Mér finnst bara meira
gaman, með gloss.
Bestu kveðjur,
Friðbjörg Jóhanna.
VERKSMIÐJUKRÓNIKAN
FRUMSÝND Í KVÖLD
Leikfélag Hörgdæla frumsýnir í kvöld leikritið Verksmiðjukrónikan eftir
Stefaníu Elísabetu Hallbjörnsdóttur og Sögu Jónsdóttur .
Leikritið gerist á Akureyri um 1940. Verkafólk á verksmiðjunum stendur
í verkfallsbaráttu, Bretar eru komnir og miklar breytingar verða í bænum.
Karlmenn eru uggandi yfir þeim áhrifum sem hermenn hafa t.d. á ungu
stúlkurnar. Bretaþvottur er ekki öllum að skapi.
Um tuttugu leikarar taka þátt í sýningunni og segir í tilkynningu að
margar skemmtilegar og sérstakar persónur líti dagsins ljós. Leikritið byggir
á ýmsum atburðum sem þær stöllur hafa lesið eða heyrt um en margt er
fært í stílinn. Leikritið er ekki sagnfræðileg heimild.
Sýnt er að Melum í Hörgársveit , leikstjóri er Saga Jónsdóttir.
Friðbjörg Jóhanna
Sigurjónsdóttir