Fréttatíminn - 25.07.2014, Side 28
D
avíð Helga-
son er lítt
þekktur hér
á landi þrátt
fyrir að vera
forstjóri eins
áhrifamesta
hugbúnaðarfyrirtækisins í tölvu-
leikjaheiminum, Unity, sem fram-
leiðir hugbúnað sem notaður er
til tölvuleikjagerðar. Talið er að
um helmingur allra framleiðenda
tölvuleikja fyrir snjallsíma og
spjaldtölvur í heiminum styðjist
við hugbúnað Unity sem styður
við allar gerðir tækja. Unity er
með höfuðstöðvar í Kaupmanna-
höfn þar sem fyrirtækið var stofn-
að fyrir ellefu árum af þremur vin-
um sem voru flinkir forritarar og
langaði að búa til tölvuleiki. Tölvu-
leikirnir urðu aldrei að veruleika –
en nú, rúmum áratug síðar, metur
Economist tímaritið Unity á rúma
hundrað milljarða íslenskra króna
sem gerir það jafnframt að stærsta
netfyrirtæki Danmerkur með 460
starfsmenn í 18 löndum.
Bróðir Egils Helgasonar
Það er hins vegar auðvelt að
tengja Davíð inn í íslensku þjóðar-
sálina. Hann er sonur Sigrúnar
Davíðsdóttur, fréttamanns RÚV í
London, og dr. Helga Guðmunds-
sonar, prófessors í íslenskum
fræðum sem jafnframt er faðir
Egils Helgasonar fjölmiðlamanns
og þjóðfélagsrýnis og Höllu Helga-
dóttur, framkvæmdastjóra Hönn-
unarmiðstöðvar Íslands. Bróðir
Davíðs er einnig Ingvar Helgason
fatahönnuður sem hefur vakið
athygli fyrir tískumerkið Ost-
wald Helgason sem hann stofnaði
er bökuð úr Kornax brauðhveitinu
Föstudagspizzan
ásamt unnustu sinni. Þá er ónefnd-
ur Ari, fjárfestir hjá stóru fjárfest-
ingafyrirtæki í London og tvær
ungar systur sem enn eru í námi,
Úlfhildur og Ragnhildur. Davíð er
því að mörgu leyti íslenskari en allt
sem íslenskt er þótt hann hafi ekki
búið hér síðan 1987.
Hann var tíu ára þegar hann
flutti til Kaupmannahafnar með
móður sinni, Sigrúnu, sem var um
árabil blaðamaður Morgunblaðs-
ins þar í borg þangað til hún flutti
til London þegar Davíð var tví-
tugur. „Ég hef alltaf haldið miklum
tengslum við Ísland, komið hingað
einu sinni til tvisvar á ári hið
minnsta og var hér í sumarvinnu
þegar ég var yngri,“ segir Davíð.
Ævintýri Unity
Saga Unity er ævintýraleg og
velgengnin ekki síður. Tveir vinir
komu saman árið 2002 og ætluðu
sér að forrita leiki. Þeir voru með
aðstöðu í kjallara einum í Kaup-
mannahöfn þar sem þeir sátu dag
og nótt við uppáhaldsiðjuna sína.
„Ég var flinkur forritari þegar ég
var lítill, var farinn að forrita tíu
ára gamall. Ég var ekki einn af
þessum allra bestu snillingum,
verð ég að viðurkenna, en ég var
samt frekar klár enda var þetta
mitt stærsta áhugamál,“ segir
Davíð. „Planið mitt var alltaf að
verða vísindamaður, eðlisfræðing-
ur, og ég fór í eðlisfræði í háskóla
en lauk henni ekki og flakkaði á
milli greina, fór líka í sálfræði og
lærði arabísku því ég hafði mikinn
áhuga á Mið-Austurlöndum og
fiktaði í tölvunarfræði í stuttan
tíma. Ég dróst hins vegar alltaf inn
í tölvuheiminn aftur,“ segir Davíð
og lýsir því hvernig hann starf-
aði sjálfstætt við heimasíðugerð
og hugbúnaðargerð eftir mennta-
skóla, sem honum fannst fljótt ekki
nógu mikil áskorun.
Hann og vinur hans úr mennta-
skóla ákváðu því að nota forritun-
arhæfileika sína og búa til tölvu-
leik. „Ég hafði safnað smá pening,
nóg til að borga húsaleigu og vann
svo á kaffihúsi á kvöldin og um
helgar til að eiga fyrir mat,“ segir
Davíð. Fljótlega bættist þriðji vin-
urinn í hópinn og árið 2004 stofn-
uðu þeir fyrirtækið Unity. Áður
en tölvuleikurinn leit dagsins ljós
voru þremenningarnir búnir að
forrita verkfæri fyrir þá sjálfa til að
búa til tölvuleikinn og uppgötvuðu
að tæknin sem þeir voru búnir að
búa til var nokkuð góð. „Við vorum
farnir að hafa minni áhuga á því
að gera leikina og áhuginn fyrir
tækninni jókst,“ segir Davíð. Árið
2005 gaf Unity út fyrstu alvöru út-
gáfuna af Unity, hugbúnaðarpakka
til að búa til tölvuleiki. „Þetta
var áður en sjallsímarnir urðu til
þannig að hugbúnaðurinn okkar
var stílaður inn á PC, Macintosh
og vefinn,“ segir Davíð.
Tekjulausir árum saman
Árum saman höfðu þremenning-
Framhald á næstu opnu
Saga Unity
er ævin-
týraleg og
velgengnin
ekki síður.
Tölvuleikjarisi
í Silicon Valley
Íslendingurinn Davíð Helgason er eitt af
stóru nöfnunum í tölvuleikjaiðnaðinum í
Silicon Valley í Bandaríkjunum. Hann stofnaði
fyrirtækið Unity sem framleiðir hugbúnað
fyrir leikjaframleiðendur og er talið að
um helmingur allra tölvuleikja sem fram-
leiddir eru fyrir snjallsíma og spjaldtölvur sé
gerður með hugbúnaði Unity. Davíð er sonur
Sigrúnar Davíðsdóttur, blaðamanns Spegilsins
á RÚV og jafnframt bróðir Egils Helgasonar
fjölmiðlamanns.
Davíð Helgason
er að mörgu
leyti íslenskari
en allt sem
íslenskt er þótt
hann hafi ekki
búið hér síðan
1987.
28 viðtal Helgin 25.-27. júlí 2014