Fréttatíminn


Fréttatíminn - 25.07.2014, Blaðsíða 44

Fréttatíminn - 25.07.2014, Blaðsíða 44
44 bílar Helgin 25.-27. júlí 2014 M itsubishi Outlander PHEV er fyrsti fjór-hjóladrifni tvíorkubíllinn á Íslandi. Hann ætti því að vera góður kostur fyrir bíleigendur sem vilja vera umhverfisvænir en líka komast stundum út fyrir malbikið. Fullhlaðinn kemst hann 50 kílómetra svo það er hægt að komast áfram á rafmagni í innan- bæjarsnatti en um leið og haldið er í langferð, og þegar gefið er hressi- lega í, skiptir hann sjálfkrafa yfir í bensínnotkun. Og á meðan þú keyrir á bensíninu, þá hleður raf- hlaðan sig. Mjög sniðugt.  reynsluakstur Mitsubishi Outlander PheV Retro- fútúrísk upplifun Mitsubishi Outlander PHEV er fyrsti fjórhjóladrifni tvíorkubíllinn á Íslandi. Hann er hugsaður sem rafbíll í innanbæjarakstri en bensínbíll þegar haldið er í langferðir. Hann er því skref í hárrétta átt fyrir bílaeigendur sem er umhugað um um- hverfið, en þó ekki alveg alla. Hleðslustöðvar Heimahleðsla(10A) tekur um 5 tíma en hleðsla á hraðhleðslustöð tekur um 30 mínútur. Nú eru 7 hraðhleðslustöðvar á landinu en fleiri eru væntanlegar. Þær eru á ON Bæjarhálsi, BL Sævartúni, Smáralind, Fitjum Keflavík, Shell Miklubraut, IKEA Garðabæ og N1 Borgar- nesi. Meðalakstur á ein- stakling á Íslandi er innan við 50 kílómetrar á dag. Ef farið er af stað með fullhlaðið batterí frá heimili og ekki ekið lengra en það, er ein- göngu keyrt á rafmagni og bensíneyðslan því 0. Miðað við að kílówattið kosti 14 krónur, kostar hleðslan 168 krónur á dag. Eða um það bil 68 þúsund krónur á ári. Til samanburðar má nefna að dísilbíll, sömu stærðar og fjórhjóladrifinn, eyðir um 440 þúsund krónum á ári í eldsneyti. T Ú R I S T I Einfaldari lEit að ódýrum hótElum í útlöndum Leitaðu og berðu saman tilboð á hótElum út um aLLan heim og skoðaðu úrvaLið af sérvöLdum gististöðum, orLofsíbúðum og gistiheimiLum fyrir næstu utanLandsferð á túristi.is. Lesendur okkar fá einnig regLuLega sérkjör á gististöðum út í heimi. Verð: frá 6.690.000 m. Útvarp og geislaspilari með USB og iPod tengi Isofix barnabílstólafestingar FCM og LDW öryggiskerfi og bakkskynjari. CO2 vegið 44 G/km KOStir Sparneytinn. Mjög rúmgóður. Gott útsýni. Gott farangursrými.(463 l.) Gott verð. Hefur að geyma sömu eiginleika og flestir sídrifsbílar í sama flokki, eins og Toyota RAV, Hyundai Santa Fe og Honda CrV. Gallar Miðjusætið aftur í ekki þægilegt. Þetta var mín fyrsta rafmagnsbílaupplifun og ekkert nema gott um hana að segja. Það tók mig smá tíma að venjast hljóð- leysinu, sérstaklega þar sem venjulega keyri ég um á háværum mengun- arspúandi bensínhák, en svo venst maður og aksturinn verður eitthvað svo áreynslulaus. Mér fannst ég vera alveg í takt við framtíðina undir stýri, hvorki mengandi hljóðið né loftið. En framtíðartilfinn- ingin breyttist snögglega í eitthvað allt annað þegar við tók að hlaða bílinn. Þá uppgötvaði ég að þessi bíll er kannski ekki fyrir allt umhverfisvænt fjallafólk, allavega ekki það sem býr í miðbænum. Það er eitt- hvað mjög spes við að vera á glænýjum bíl, sem svífur áfram á rafmagni, en þurfa svo að stinga honum í samband með gamaldags rafmagnssnúru. Jú, þetta er framtíðin, en samt eitt- hvað „retro“ við að troða framlengingarsnúru inn um glugga á fjölbýlishúsi til að hlaða farartækið. Og eiginlega virkar ekki alveg þar sem það tekur nokkra klukkutíma að fullhlaða í heimilisinn- stungu. Það væri allavega frekar mikið ónæði fyrir gangandi vegfarendur af allir í götunni tækju upp á að loka gangstéttinni með rafmagnssnúrum. Kannski verður þetta allt snúru- laust í næstu framtíð? Það er auðvitað hægt að fara á hraðhleðslustöð og þá tekur aðeins 30 mínútur að fullhlaða og auðvitað er þetta ekkert mál ef þú býrð í raðhúsi eða einbýli. Þá bara hleður þú bílinn á nóttunni, mengar miklu minna og sparar þér hell- ing í bensíni. Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.