Víkurfréttir - 20.04.2011, Blaðsíða 30
30 Miðvikudagurinn 20. apríl 2011VÍKURFRÉTTIR
„Þetta er í þriðja skiptið sem mót-
ið er haldið en á síðasta ári sóttu
mótið um 40 keppendur og við
búumst við enn meiri þátttöku í
ár,“ sagði Haraldur Hreggviðs-
son, hjólagarpur úr Njarðvík.
Reykjanesmótið í hjólreiðum fer
fram laugardaginn 30. apríl kl.
10:00 þar sem ræst verður frá
sundlauginni í Sandgerði.
Keppt verður í tveimur flokkum.
Annars vegar verður keppt í 62
km leið og hins vegar í 32 km leið.
Í þeirri fyrri verður hjólað út að
Reykjanesvirkjun og aftur til baka
í Sandgerði en í þeirri seinni verð-
ur hjólað út að Hafnarvegi og til
baka. Veitingar verða á staðnum en
í lokin verður dregið um verðlaun
auk þess að allir keppendur fá frítt
í sund.
„Í fyrra var talið að þetta væri eitt
fjölmennasta götuíþróttamót sem
haldið hefði verið á Íslandi, um
40 keppendur, en í ár reiknum við
með mun fleiri en það. Við höldum
þetta mót fyrst og fremst fyrir Hjól-
reiðafélag Reykjavíkur. Þá tengist
þríþrautadeild UMFN þessu aðeins
en margir í þeirri deild koma til
með að taka þátt í þessu móti býst
ég við,“ sagði Haraldur bjartsýnn á
komandi hjólreiðakeppni.
Haraldur sagði þetta hafa byrjað
vegna Hjólreiðafélags Reykjavík-
ur en það langaði til þess að halda
eitt mót hér á Suðurnesjunum.
„Nokkrir forsvarsmenn félagsins
höfðu samband við Inga Þór Ein-
arsson, sundþjálfara, en hann hafði
eitthvað verið í kringum hjólanefnd
ÍSÍ á sínum tíma og hann fékk mig
svo í kjölfarið til að aðstoða sig við
þetta. Við höfum gert miklu meira
úr þessu móti en öðrum þar sem
öll umgjörð mótsins er mun stærri.
Keppendur fá að fara í sund og það
eru alls kyns veitingar svo þetta mót
er eitt af þeim flottari.“ Gjaldinu er
stillt í hóf og kostar í lengri leiðina
2.000 kr. en 1.000 kr. í þá styttri.
Haraldur hjólaði hringinn í kring-
um landið síðasta sumar en það
var sérstakt verkefni sem var kall-
að Hjólað til heilla og var það til
styrktar krabbameinssjúkum börn-
um. Haraldur, ásamt nafna sínum
Helgasyni, fóru hringinn saman og
söfnuðu áheitum þar sem sá fyrr-
nefndi hjólaði en sá síðarnefndi
keyrði bíl með ýmsum birgðum.
„Þessi ferð tók tólf daga. Nafni
hjólaði smá spöl með mér til að
hressa sig við en annars sá hann
alfarið um bílinn. Þetta var í fyrsta
skipti sem Lionsklúbburinn fór út
í svona stóra söfnun en þeir hafa
alltaf verið mjög öflugir í að styrkja
líknarstarf.“
Á meðan á þessari söfnun stóð gat
fólk hjólað með köppunum hvar
sem því þóknaðist og sagði Har-
aldur það hafa gert þetta mun
skemmtilegra. En er svona lagað
ekki erfitt?
„Þetta tekur heldur betur á lík-
amann. Ég er búinn að vera að
hjóla í mörg ár þó að ég sé kominn
af léttasta skeiðinu, rúmlega fimm-
tugur en þetta er mjög góð líkams-
rækt og mjög skemmtilegt. Ég hafði
ekki hjólað svona vegalengd áður
en ég hjólaði eitt skipti á Akureyri
og hef verið að taka nokkra langa
túra þegar tími gefst til.“
Aðspurður hvort þeir ætluðu ekki
að bjóða Einari Bárðarsyni í mót-
ið sagðist Haraldur vera búinn að
senda honum línu en Einar hefði
ekkert svarað henni. „Ég hef samt
fulla trú á því að Einar láti sjá sig
þar sem hann býr hérna á Suður-
nesjunum. Það væri líka tilvalið
fyrir hann að kynna sér þríþrauta-
deild UMFN fyrst hann er byrjaður
að hjóla bæjanna á milli,“ sagði
Haraldur.
siggi@vf.is
›› Fjölmennasta götuíþróttamót landsins í Sandgerði
„Gert mun meira úr
þessu móti en öðrum“
-segir Haraldur Hreggviðsson, hjólagarpur úr Njarðvík.
■ Eitt fjölmennasta
götuíþróttamótið.
■ Keppendur fá
frítt í sund.
30 i i ri . ríl VÍKURFRÉTTIR
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Eignarhaldsfélags Suðurnesja hf.
verður haldinn föstudaginn 29. apríl 2011
kl. 15:00 í sal Verslunarmannafélags
Suðurnesja, Vatnsnesvegi 14, Reykjanesbæ.
Dagskrá:
- venjuleg aðalfundarstörf
- önnur mál
Stjórnin
ATVINNA
Óskum eftir vönum bifvélavirkja til starfa
um mánaðamótin.
Upplýsingar gefur Björn í síma 421 6901 eða 893 9531.
bilageirinn@bilageirinn.is
Liðsmenn ÍG frá Grindavík urðu í fyrrakvöld Íslands-
meistarar í 2. deild karla eftir sig-
ur á ÍA í úrslitaviðureign deild-
arinnar. Liðin mættust í Íþrótta-
húsi Kennaraháskólans í Reykja-
vík þar sem lokatölur voru 95-82
ÍG í vil.
ÍG byrjaði mun betur og að loknum
fyrri hálfleik var allt sem benti til
öruggs sigurs Grindvíkinga enda
staðan 62-37 en Skagamenn gerðu
leikinn spennandi í síðari hálfleik
með góðri baráttu. Liðsmenn ÍG
lentu hver á fætur öðrum í villu-
vandræðum og þá meiddist Berg-
vin Ólafarson í upphafi síðari hálf-
leiks en kappinn var heitur í þeim
fyrri og lék Skagamenn nokkrum
sinnum grátt með 27 stig á 20 mín-
útum.
vf.is
ÍG sigurvegari í 2. deild karla
Í fjórða leikhluta náðu Skagamenn
að minnka muninn í tíu stig en
nær komust þeir ekki og ÍG kláraði
dæmið 95-82.
Stigahæstir hjá ÍG:
ÍG: Guðmundur Ásgeirsson 30,
Bergvin Ólafarson 27, Ásgeir 10,
Helgi 9, Davíð Arthur 8, Gylfi 8.
ÍG frá GrindavÍk siGruðu Í 2. deild
njarðvíkingar eru Íslandsmeistarar í drengjaflokki í körfubolta eftir
84-86 spennusigur gegn kr í laugardalshöll sl. sunnudag. Ólafur
Helgi Jónsson fór á kostum í liði njarðvíkinga og gerði 40 stig, tók 20
fráköst og gaf 4 stoðsendingar og var valinn besti maður leiksins en
kappinn setti niður 10 af 14 þriggja stiga skotum sínum í leiknum.