Víkurfréttir - 22.04.2009, Síða 13
VÍKURFRÉTTIR I MIÐVIKUDAGURINN 22. APRÍL 2009 13STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Björgunarsveitir ósáttar á flugslysaæfingu
Viðbragðsaðilar á Suðurnesjum voru
við æfingar á Keflavíkurflugvelli
á laugardag en þar var efnt til um-
fangsmikillar viðbragðsæfingar
samkvæmt neyðaráætlun vegna
f lugverndar og f lugslysaáætlun
fyrir Keflavíkurflugvöll. Keflavíkur-
flugvöllur ohf. og lögreglustjórinn
á Suðurnesjum, í samvinnu við
almannavarnadeild ríkislögreglustjóra
standa að æfingunni.
Æfingin er almannavarnaæfing þar sem
allir viðbragðsþættir eru prófaðir fyrstu
klukkustundir eftir flugslys. Líkt er eftir
sprengjuhótun um borð í flugvél sem
endar með slysi eftir lendingu og æfð
samvinna viðbragðsaðila með áherslu
á samþættingu beggja áætlana. Er þetta
í fyrsta sinn sem viðbrögð eru æfð
samkvæmt báðum þessum áætlunum
samtímis.
Þátttakendur í æfingunni voru allir
viðbragðsaði lar á Suðurnesjum,
slökkvilið, björgunarsveitir, sjúkraflutn-
ingar, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja,
lögregla, Landhelgisgæslan og flug-
rekstrar- og þjónustuaðilar ásamt
sérsveit ríkislögreglustjóra og Sam-
hæfingarstöðinni Skógarhlíð, alls
rúmlega 300 manns. Undirbúningur
æfingarinnar hefur staðið um all langt
skeið en svo umfangsmikil æfing var
síðast haldin á Keflavíkurflugvelli
haustið 2004.
Í samtölum Víkurfrétta við viðbragðs-
aðila eftir æfinguna voru menn ánægðir
með að slík samæfing ætti sér stað. Hins
vegar eru björgunarsveitirnar ósáttar
við það sem kallast björgunarstjórn á
vettvangi og útdeilingu verkefna til þess
fjölmenna björgunarliðs sem komið
er á vettvang. Finnst þeim sem skipu-
leggjendum æfingarinnar hafi ekki
unnið heimavinnuna sína nægilega
vel og vilja sjá björgunarstjórn setta
í hendur aðila eins og Lögreglunnar
á Suðurnesjum eða Brunavarna
Suðurnesja, aðila sem eru vanir að
vinna með stóran slysavettvang úr
raunveruleikanum utan girðingar, ekki
síst í ljósi þess að Slökkvilið Keflavíkur-
f lugvallar minnkar ört og vægi
viðbragðsaðila í nágrenni Keflavíkur-
f lugval lar eykst að sama skapi.
Björgunarsveitarmönnum líkar það illa
að vera áhorfendur á hliðarlínunni með
allan sinn mannskap og tæki, ef marka
má samtöl Víkurfrétta eftir æfinguna.
Myndband frá flugslysaæfingunni á
Keflavíkurflugvelli er væntanlegt í dag
á vef Víkurfrétta, vf.is.