Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.04.2009, Blaðsíða 13

Víkurfréttir - 22.04.2009, Blaðsíða 13
VÍKURFRÉTTIR I MIÐVIKUDAGURINN 22. APRÍL 2009 13STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM Björgunarsveitir ósáttar á flugslysaæfingu Viðbragðsaðilar á Suðurnesjum voru við æfingar á Keflavíkurflugvelli á laugardag en þar var efnt til um- fangsmikillar viðbragðsæfingar samkvæmt neyðaráætlun vegna f lugverndar og f lugslysaáætlun fyrir Keflavíkurflugvöll. Keflavíkur- flugvöllur ohf. og lögreglustjórinn á Suðurnesjum, í samvinnu við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra standa að æfingunni. Æfingin er almannavarnaæfing þar sem allir viðbragðsþættir eru prófaðir fyrstu klukkustundir eftir flugslys. Líkt er eftir sprengjuhótun um borð í flugvél sem endar með slysi eftir lendingu og æfð samvinna viðbragðsaðila með áherslu á samþættingu beggja áætlana. Er þetta í fyrsta sinn sem viðbrögð eru æfð samkvæmt báðum þessum áætlunum samtímis. Þátttakendur í æfingunni voru allir viðbragðsaði lar á Suðurnesjum, slökkvilið, björgunarsveitir, sjúkraflutn- ingar, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, lögregla, Landhelgisgæslan og flug- rekstrar- og þjónustuaðilar ásamt sérsveit ríkislögreglustjóra og Sam- hæfingarstöðinni Skógarhlíð, alls rúmlega 300 manns. Undirbúningur æfingarinnar hefur staðið um all langt skeið en svo umfangsmikil æfing var síðast haldin á Keflavíkurflugvelli haustið 2004. Í samtölum Víkurfrétta við viðbragðs- aðila eftir æfinguna voru menn ánægðir með að slík samæfing ætti sér stað. Hins vegar eru björgunarsveitirnar ósáttar við það sem kallast björgunarstjórn á vettvangi og útdeilingu verkefna til þess fjölmenna björgunarliðs sem komið er á vettvang. Finnst þeim sem skipu- leggjendum æfingarinnar hafi ekki unnið heimavinnuna sína nægilega vel og vilja sjá björgunarstjórn setta í hendur aðila eins og Lögreglunnar á Suðurnesjum eða Brunavarna Suðurnesja, aðila sem eru vanir að vinna með stóran slysavettvang úr raunveruleikanum utan girðingar, ekki síst í ljósi þess að Slökkvilið Keflavíkur- f lugvallar minnkar ört og vægi viðbragðsaðila í nágrenni Keflavíkur- f lugval lar eykst að sama skapi. Björgunarsveitarmönnum líkar það illa að vera áhorfendur á hliðarlínunni með allan sinn mannskap og tæki, ef marka má samtöl Víkurfrétta eftir æfinguna. Myndband frá flugslysaæfingunni á Keflavíkurflugvelli er væntanlegt í dag á vef Víkurfrétta, vf.is.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.