Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.04.2009, Side 19

Víkurfréttir - 22.04.2009, Side 19
VÍKURFRÉTTIR I MIÐVIKUDAGURINN 22. APRÍL 2009 19STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM Dag ur um hverf is ins er á laug ar dag inn þann 25. apríl. Þann sama dag ganga kjörgengnir Íslendingar til kosninga til Alþingis. Um- hverfissamtökin Blái herinn hafa fengið undanfarin ár fjárstyrk frá Alþingi. Það er og hefur verið þverpólitískur stuðningur við umhverfis- stefnu Bláa hersins frá upp- hafi eða í 10 ár. Við úthlutun fjárlaganefndar fyrir árið 2009 til handa Bláa hernum bauðst undirritaður til þess að útbúa hreinsunarverk- efni fyrir þá aðila sem eru atvinnulausir og treystu sér til þess að leggja því verkefni lið. Nefndarfólk umhverfis- nefndar Alþingis fannst þessi hugmynd alveg frábær. EN því miður verður ekkert úr þessum hugmyndum, nema þá að þessi hugmynd gæti komið sér vel fyrir okkur Suð- urnesjamenn. Blái her inn vill nefni lega hvetja sveitarstjórnarmenn á Suðurnesjum til að skoða þessa hvatningu okkar um að útbúa verkefni til handa at vinnu laus um og skoða það gaumgæfilega að jafnvel hreinsunarverkefni í sveitarfé- laginu gætu verið eitthvað sem hjálpað gæti sveitarfélaginu og þeim líka. Holl og góð hreyf- ing, góð næring fyrir sálina og góð ímynd fyrir sveitarfélagið. Það er enginn að tala um ein- hverja þrælkunarvinnu, bara að koma sér af stað, taka svæði í fóstur og hreinsa, endurvinna og stuðla að hreinna umhverfi. Umhverfissamtökin Blái her- inn eru tilbúin til viðræðna við ykkur ágæta sveitarstjórn- arfólk ef þið teljið að þessi hug- mynd sé ykkur að skapi. Blái herinn heldur áfram með sín verkefni á meðan þið skoðið þessa áskorun. Síðastliðin 10 ár hefur verið hreinsað upp á Reykjanesskaganum yfir 450 tonn af rusli og því miður enn nóg eftir. Gerum saman Reykjanesskag- ann umhverfisvænsta lands- svæði Ís lands og þrí fum strandlengjuna, opin svæði og bæjarfélögin okkar, endur- vinnum allt og skörum framúr á landsvísu. Undirritaður er sannfærður um að þetta gæti verið mikið heillaspor fyrir okkur öll. Gleðilegt sumar og gangi ykkur öllum vel í sumar. Tómas J. Knútsson formaður Bláa hersins. Áskorun til sveitarstjórn- arfólks á Reykjanesi Dagur umhverfisins Háskóli Íslands, Keilir, Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, HS Veitur og HS Orka hf. undirrituðu í sl. viku samstarfssaming um uppbyggingu rannsóknaseturs í orkuvísindum. Samstarfið felur í sér að byggja upp á Ásbrú aðstöðu til þess að stunda rannsóknir á sviði orkuvísinda, sérstaklega á sviði jarðvarma og annarrar endurnýjanlegrar orku og innlendrar orkuframleiðslu. Rannsóknarsetrið verður nýtt sem kennsluaðstaða í orkuvísindum við Keili, Háskóla Íslands og aðra innlenda skóla og kennslustofnanir. Jafnframt við rannsóknir á vegum stofnaðila sem og annarra aðila. Rannsóknarsetrið í orkuvísindum mun stórbæta alla aðstöðu til verklegrar kennslu og rannsókna í orkuvísindum á Íslandi. Markmið samningsins er fjórþætt. Í fyrsta lagi að stórefla aðstöðu á Íslandi til verklegrar kennslu og þjálfunar í verk– og tæknigreinum. Í öðru lagi að koma upp öflugri aðstöðu fyrir verklegar rannsóknir í orkuvísindum. Í þriðja lagi að efla samstarf akademíunnar og atvinnulífsins. Í fjórða lagi að ná fram sparnaði vegna samlegðar sem fæst með því að færa ákveðnar rannsóknir samningsaðila undir eitt þak. Starfssvið rannsóknarsetursins verða rannsóknir á beislun og nýtingu orku sem hægt er að virkja á Íslandi. Megináhersla verður lögð á þróun á búnaði og aðferðum til nýtingar jarðvarma (háhita- og lághitavarma). Rannsóknasetrinu verður skipt upp í fjórar sérhæfðar rannsóknarstofur sem munu vinna náið saman. Starfssvið stofanna er: varma- og straumfræði, efnisfræði, mekatróník og efnafræði. Rannsóknasetrið verður staðsett í húsnæði Keilis, Grænásbraut 910. Rannsóknasetur í orku- vísindum stofnað á Ásbrú

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.