Heima og erlendis - 01.06.1946, Side 7

Heima og erlendis - 01.06.1946, Side 7
HEIMA OG ERLENDIS Islendinga, sem ætluÓu sér utan, dreymdi fyrst og fremst um það, aÖ komast til Dan- merkur, þó aÖallega höfuöstaöarins, enda var sú menntastofnun þar, sem hugur margra ungra Islendinga stóð til. Hitt átti líka sinn þátt í þessu, að hér voru ávallt einhverjir fyrir, og varö þá útlegðin ekki eins döpur. þó aö allsnemma kæmust á undirbúnings- skólar á Islandi, svo sem Latínuskóli, Presta- skóli og Læknaskóli, var þó ennþá enginn háskóli á Islandi, og urðu því þeir, er þá nienntastofnun þurftu aö nota, að sækja til Kaupmannahafnar og dvelja þar viÖ nám oft árum sarnan. Hér sat líka um þessar mundir stjórn Islands og sá ráöherra, er mál Islands heyröu undir, enda þótt stjórnin að vísu hefði fulltrúa á Islandi. Og héðan háÓu Islendingar sjálfstæðisharáltu sína frá upp- hafi og allt fram um aldamótin síðustu. Héöan bárust líka andlegir straumar heirn til Islands, hér störfuðu Fjölnismenn, Bók- menntafélagiÖ og Jón Siguróssou, og hér hafa mörg af ísl. skáldunum ort ýms af heztu ljóÖum sínum, allt fram yfir þröskuld þessarar aldar. Og margur íslenzkur iðnaÖar- maðurinn á líka spor sín hér. Nú eru þessir tímar liðnir, en spor þeirra liggja hér ennþá. Kaupmannahöfn, einkum þó gamli bærinn, geymir ótal menjar um Islendinga, sem dvaliö hafa hér, hæði fyrr og síðar. Margt af því er skráÓ, en margt liggur líka ennþá óskráö og í minni manna, en hætt er við, aö þaö glatist meÖ öllu kom- nndi kjmslóð, verÖi ekki reynt að halda því saman, meðan þeir menn lifa, er geta verið heimildir á þessu sviði. Aöaltilgangur minn meö útgáfu blaðs þessa er því sá, aö safna og halda til haga l)yí, sem hér kann að finnast nýtilegt um Island og Islendinga, áöur en það týnist með öHu. þaÖ gætu fundist gullkorn í slíkri sögu- hrúgu en eg býst þó ekki við að finna ann- nö og meira en hversdagsmuni. En þeir e)ga líka rétt á sér, og því vil eg gera það sem hægt er til þess, aÖ þeir glatist ekki. þá er ætlun mín lika aÖ segja frá dönsk- um mönnum, er aÓ einhverju koma viÖ sögu lands vors eða aÖeins sögu Hafnaríslendinga, IQn í milli hugsa eg mér svo hitt og þetta, er verða mætti til gagns og gamans, þannig hefi eg hugsað mér greinar um merk söfn, byggingar og stofnanir hér í Höfn, sérstak- lega þó þaö, er aÖ einhverju leyti kemur viö sögu íslands og íslendinga. Hefur allt of lítið veriÖ gert aÖ því, aö kynna Islending- um hér og heima á íslandi menningarstofn- anir Dana. Muna megum vér líka, að Islend- ingar eru riðnir viÖ tvær merkar stofnanir hér, þótt ólíkar séu, en önnur þeirra er ljós- lækningastofa Finsens, hin er Tliorvaldsens safniÖ, er háðar liafa gert garðinn fræg- aun, og aldrei eru nefndar, án þess aö hug- urinn hvarfli til lieggja þjóöanna, Dana og Islendinga. Bálkur verður þá líka hér í hlaóinu um Islendiuga í Danmörku, hæÖi þá sem liafa hér fasta húsetu og þá sem aÖeins hafa dvalió nokkurra ára hil og nú eru horfnir lieim til Islands aftur. Var það ætlun mín í fyrstu, að þetta kæmi út í sérstakri hók, en þar sem eg sé ekki tök á því, eins og öllu er hagað nú, sé eg ekkert því til fyrirstöðu, að láta þetta safn, þaó sem þaö nær, koma hér, enda ætti þaÖ að hafa sömu þýðingu fyrir eftirkomendur vora. A eg engan annan þátt í þeim æfiatriÖum en búning þaim, sem þau hirtast í hér. Hefi eg oft fundiÖ sárt til þess, að margir góðir íslendingar, konur og karlar, sem dvaliÓ höföu hér langvistum, hurfu eftirtímanum með öllu, þegar moldin huldi þá aö lokum. það voru þó íslendingar alltsaman, þótt flestir þeirra liafi ekki unniÖ annað stórverk en þaÖ, aö halda heiðri ís- lands á lofli eftir hezta megni. KomiÖ hefir mér h'ka til hugar, aó liafa hér fréttir af íslendingum hér og félagsskap þeirra og ef til vill smáklausur um eitthvað þaö heima, er mér finnst, aó betur mætti fara, þó ekki stjórnmál. Hafi menn verið eins lengi erlendis, eins og raun er á um mig, getur alltaf eitthvað horiÖ á milli á ýmsum sviÖurn, og sakar þá ekki aö heyra, livaö þeim mönnum finnst ábótavant. — Sá er vinur, er til vamms segir. Lýk eg svo þessu meÖ þeirri ósk, aö Ís- lendingar lieima og í Danmörku taki vel á móti þessu blaði mínu. Tildrög þess er ræktar- semi viÖ allt þaó, sem snertir sögu Islands og Islendinga í Danmörku og á íslandi — heima og erlendis. porfinnur Kristjánsson.

x

Heima og erlendis

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima og erlendis
https://timarit.is/publication/1100

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.