Heima og erlendis - 01.06.1946, Blaðsíða 10

Heima og erlendis - 01.06.1946, Blaðsíða 10
PRENTSMIÐJA S. L. M0LLERS í KAUPMANNAHÖFN það er ekki ætlun mín að fara aÖ ryfja upp hér í blaÖinu allar þær prentsmiÖjur í Kaupmannahöfn eÖa Danmörku yfírleitt, sem íslenzkir fræöi- eÖa stjórnmálamenn kunna aÖ hafa leitaÓ til um prentun rita, blaÖa eÖa ritlinga sinna á ýmsum tímum, um eitt- hvaö þaö, er þeir l)áru fyrir hrjósti og þurftu aÖkoma út meÖal landa sinna heima, til þess aÖ vekja þá, annaðhvort á hókmenntalegu sviÖi eða í þágu frelsis- og framfara haráttu Prentsmiðja S. L. Mollers, Rosenorns Allé 29. þjóðar sinnar. þaÖ eitt fyrir sig hefír ekki svo mikla sögulega þýðingu. En sú prent- smiÓja, sem hér ræðir um, hefir að minni hyggju liaft svo mikla þýðingu fyrir l)ók- menntir Islendinga og frelsisbaráttu þjóöar vorrar fyrr á tímum, að rétt þykir aÖ geta hennar hér. AÖ Islendingar höfðu svo mikil mök við hana frá byrjun 19. aldar stafar af því, að framgjarn íslenzkur prentari stýrói um eitt skeið og hafði seinna á leigu þá prentsmiÓju, sem þessi prentsmiója er hyggð upp af og eignaðist hana aö lokum. þessi maður var þorsteinn Einarsson Rangel, en sá maður, sem studdi hann tjárhagslega, því Rangel var bláfátækur, var Grímur Jónsson Tliorkelín, prófessor, seinna skjalavörÖur viÖ kgl. leyndarskjalasafniö. þegar Rangel hætti störfum sakir heilsubilunar, taka við prent- smiðjunni sonur og stjúpsonur lians, en 1825 er stjúpsonur Rangels, S. L. Moller, orðinn eigandi prentsmiðjunnar meó peningaláni frá Rókmenntafélaginu. íslendingar hafa því haft viðskifti viö þessa prentsmiðju í því nær liálfa aÓra öld. Hafn- ardeild Bókmenntafélagsins lét aö sjálfsögðu prenta bækur sínar liér aÖ mestu, þar til Hafnardeildin lluttist til íslands 1911. Héöan mun stafa samband Jóns Sigurössonar við prentsmiÖjuna, enda lét hann líka prenta hér ýmislegt af því, sem hann gaf út sjálfur. Hér fekk líka dr. Yaltýr GuÖmundsson prent- aöa Eimreiðina, meöan hann haföi hana, og FræÖafélagið hefír látiö prenta flestar hækur sínar hér, síöan þaö var stofnaö 1912. En þaö sem mér fínnst réttlæta það, aó draga þessa prentsmiðju fram í dagsbirtuna fyrir Islendinga, er það, aÖ hún var íslenzk- um fræöi- og stjórnmálamönnum hér í Höfn hin mesta hjálparhella á þeim tímum. er þeir þörfnuðust mest styrktar, en þeir höfÖu víst oftast lítiÓ fé milli handa, og kom prent- smiðjan þeim þá oft lil hjálpar meÖ greiðslu- fresti. Mun þetta oft hafa komiÖ sér vel fyrir Jón SigurÓsson og fyrr og seinna aðra Islendinga, er einhverju vildu koma á prent, en höföu litil peningaráð. Prentun var for- vígismönnum ísl. þjóðarinnar hér nauðsyn- leg, ætti þeim aÖ vinnast eittlivaÖ á í sókn- inni. Og aÖ því er eg hezt veit, hefír prent- smiöjan ávallt látiÖ Islendinga njóta þess, aö hún er af „ísl. ætt<£ og naut ísl. peningaláns við stofnun hennar. Jón SigurÖsson kom oft í prentsmiöjuna, og þótti honum stundum prentunin ganga seint. þá er prentsmiðjueigandi vissi sök á sig að þessu leyti, kvaÖ honum ekki hafa veriö um aÓ verÖa á vegi Jóns, því aÖ liann kvað hafa verið hvass í orðum, er honum þótli miÖur; en þá er liann liaföi ausið úr sér og fengið loforð um hót og betrun, var hann hinn bezti. Gamall prentari, er lært haföi í prentsmiðjunni og unnið þar í 50 ár, Christian Nielsen, hefir sagt mér, aö engar sendifarir hafí hann farið með ljúfara geÖi en þær til Jóns. Var hann ávalt ljúfur i viÖ- móti viÖ drenginn, og baö hann aö fara fram í eldhús til Ingihjargar og fá kaffisopa, meöan Jón fór yfir prófarkirnar, væru það loka- prófarkir. þá er önnur hlið á þessu máli, sem að visu veit aö prentsmiÖjunni, en að mínu viti hefir haft mikla þýÖingu fyrir ísl. prentara- 6

x

Heima og erlendis

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima og erlendis
https://timarit.is/publication/1100

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.