Heima og erlendis - 01.06.1946, Side 12

Heima og erlendis - 01.06.1946, Side 12
HAFNAR-ANNÁLL Félagsskapur íslendinga í Danmörku mun sjaldan liafa verið l)orinn uppi af eldlegum áhuga og brennandi löngun til [)ess að vera helzt þar, sem Islendingar einir ráða húsum. Flestir þeirra, sem ílendast hér, þreyt- ast til lengdar á að sækja mót íslendinga, eða hverfa þaðan af öðrum ástæðum. þó eru undantekningar hér, eins og á öllum öðrum sviðum. þann liðuga aldarfjórðung, sem eg liefi dvalið hér, minnist eg oft að hafa séð sömu andlitin, fund eftir fund, en þau skifta ekki mörgum tugum. Annar ilokkur manna kemur á ilest helztu mót íslendinga, eins og á sínum líma t. des. og sumardaginn fyrsla eða önnur sérstök tækifæri, þjóðlegs efnis. En hezt sækja þeir fundi íslendinga hér, er nýlega eru komnir að heiman, þá girnir að „sýna sig og sjá aðra£‘, og skulu þeir ávalt vera velkomnir. Og hver er þá félagsskapur íslendinga hér og hvert er markmið hans. Er fyrst að telja elzta félagið og það fjöl- mennasta: íslendingafélagið. Yeit enginn með vissu, hve gamalt það er, en þeir sem hezt J>ykjast vita, telja það vera komið um sjötugt. Tilgangur félagsins er „að gefa ís- lendingum af öllum stéttum, sem i Kaup- mannaliöfn dveljast, tækifæri til þess aö koma saman þar sem íslenzk tunga sé töluð og íslenzkur andi ríki“. þessu leitast félagið við að ná með fræðandi og skemmtandi efni á fundum sínum. AÖ j)essu hefír |)á líka verið keppt, oftast flytur einhver erindi á fundum þess, þá að- stoðar einhver með söng eða upplestri, en þar er ekki milli margra að velja, því sjald- an er leitað aðstoðar til annara en þess ísl. listafólks, sem hér er að staðaldri, og þó að |>að sé úrvals fólk á sínu sviði, væri þó oft æskilegt, að hafa íleira að velja um. En stjórn Islendingafélagsins hefír verið svo ein- sýn á þessu sviði, að hún hefír sjaldan viljað leita til danskra listamanna, og tel eg það miður farið. Flestir fundir enda á dansi, og hefír mér ávallt fundist svo, að sá lióur dagskrár liefði mestan áhuga fólks; oft er i byrjun fundar aöeins 40—(50 manns, en geta orðið 100 — 150 áður en fundi lýkur. AÖ vísu loðir óstundvísi mjög vió íslendinga hér, hverju sem það er að kenna, og getur það átt sinn [)átt í því, að menn koma oft ekki á fundina, fyrr en eftir „dúk og disk“. Félagið heldur 6—8 mót á ári og oftast er farin skógarför einhvern tíma sumarsins; þá kemur líka fyrir, aö félagið efni til kaffí- drykkju, er einhvers sérstaks er að minnast meðal Isl. liér, eins og þegar hiö mikla skaró varð í hópinn i fyrra, er loksins rofaði i lofti eftir 5 ára skálmöld, eða ef góða gesti ber að garði heiman af ísl., og verður ekki annað sagt, en að slíkar samkomur séu vel sóttar, eru þar oft 150—200 manns og stund- um þar yfír; félagatalan er uppi við 500. Stjórn félagsins skipa 5 menn og er Agn- ar Tryggvason, framkvæmdarstjóri, formaður þess. Martin Bartels, hankafulJtrúi, liefír veriö í stjórn félagsins um 20 ár, og mestan |)ann tíma form. þess, en sagði sig úr stjórn þess síðastliðið liaust. Skal í næsta blaði vikió að þeim öðrum félögum, er hér fínnast meðal íslendinga. Stefán G. Stefánsson, er lengi var aöstoðar- maóur og siðar fulltrúi í fjármálaráðuneyt- inu danska, en seinustu 15—20 árin hefír verið amtmannsfulltrúi í Yarde á Jótlandi, lét af þeim starfa siðastl. ár, fíuttist til Hafn- ar, en hýr nú i Holte á Sjálandi. Varð hann sjötugur 13. apríl, en ekki þjáir ellin hann meira en það, að hann hrá sér á reiðhjóli sínu til Hafnar alla leið frá Varde. JVIargir íslendingar hafa verið hér á ferð heiman af Islandi, síðan samgöngur hófust að nýju; fæst af þessu fólki mun þó ílengj- ast hér, flest af þvi fer áfram til SvíJ)jóðar, aðrir dvelja hér stuttan tíma, en hverfa svo heim til ísl. aftur. V ið háskólann danska dvelja nú aðeins 8 — 10 ísl. stúdentar. Mun langt vera síðan, að svo fáir ísl. hafí verið við þá menntastofnun. Allar greinar i ldaðinu að þessu sinni eru skrifaðar af J)orf. Kr„ þó ekki sé nafn hans undir þeim, nema einni. Næsta thl. HEIMA OG ERLENDIS kemur út í ágústm.; koma alls (5 tbl. á ári. Prentað hjá S. L. Moller, Kaupmaunahöfn. 8

x

Heima og erlendis

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima og erlendis
https://timarit.is/publication/1100

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.