Heima og erlendis - 01.12.1946, Side 2
hátt og komist verður, var Restaurant Ritz
og hér haföi íslendingafélagiö oft fundi sína,
þangaÖ til aö þjóÖverjar lögÖu luisiö undir
sig. YiÖ göngum áfram aÖ Ráðhústorginu,
förum yfir götuna lil liægri handar og verÖ-
ur þá fyrir okkur Bernstorffsgade, viö hana
til vinstri handar, beint á móti Járnhrautar-
stöðinni liggur Nimb. Hér var þáverandi
sendiherra íslands, Sveini Björnssyni, haldiö
skilnaðarsamsæti 24. marz 1924, er hann
flutti heim. Lengra til hægri liggur lágt hús
er heitir Keglebanen og hér hafði Islend-
ingafélagið fundi sina einn vetur, en langt
er nú síðan. YiÖ förum svo úr þessari götu
um hornið til hægri handar og nemum stað-
ar við innganginn til Wivel eins og það hét
þá. Hér uppi á öörum sal hefur félagiÖ hald-
iö raarga fundi, og einu sinni grimudans-
leik. Húsakynni eru hér skemmtileg og vist-
legt er hér. Nú heitir þetta Wivex, var eyði-
lagt 1944, en hefur nú opnað aftur einmitt
þann dag, sem þetta er skrifað.
Fullir minninga frá þessum stöÖum leggj-
um viö krók á leiÖ okkar, förum yfír Vester-
brogade og verður þá fyrir okkur Axeltorv.
Hér liggur framundan okkur Palads Teatret.
þar á 2. hæð nefndist einu sinni samkomu-
salur Den blaa Sal. IslendingafélagiÖ hafði
oft á árunum 1924—30 fundi sína á þess-
um stað og Dansk-íslenzka félagiö líka. Húsa-
kynni voru hin viðkunnanlegustu og við hæfi
félagsins.
Aður en við höldum lengra má minna á,
aÖ hér á þessum slóÖum hafa mörg lista-
verk Einars Jónssonar oröið til, vinnustofa
hans seinustu árin hér, lá aÖeins örfáa faÖma
frá þessum stað.
HéÖan höldum viö heint af auga og kom-
um í Studiestræde, á horninu hér og Vestre
Boulevard liggur samkomuhús Stúdentafé-
lagsins danska og hér hefur Islendingafé-
lagiÖ og Félag ísl. stúdenta lialdið fundi sína
um langt skeiö, SlúdentafélagiÖ oftast í
„Söngsalnum44 en Islendingafélagiö hefur
veriÖ í öllum 3 sölum hússins, þó notar þaÖ
mest „Kongesalen“ á 1. hæð, hann er nægi-
lega stór til almennra funda. A þessum staÖ
fögnuÖu Islendingar hér 17. júní 1944 og
höföu þá tvo stærstu sali hússins fyrir sig,
stóð fundurinn á 2. hæÖ eu horðaö var í
hátíðasalnum á 3. hæð, mun á þessum fundi
liafa veriÖ 300 manns. I mörg ár liefur ís-
lendingafélagiÖ haldið nýjársfagnaö sinn í
„Kongesalen“. A þessum staÖ munu Islend-
ingar kunna einna hezt við sig á fundum.
Viö hverfum nú frá þeim staÓ, sem Islend-
ingar munu hafa notað mest til funda sinna
síðustu tuttugu árin, og höldum til hægri
handar aÓ RáÖhústorginu, yfír götuna og
inn á Vesterhrogade til hægri, nemum
staðar fyrir utan Industribygningen þá hina
gömlu og hér á 2. hæö hefur Islendingafé-
lagið haldiö fundi sína nokkrum sinnum,
en aldrei unað sér vel. Nú mun þelta lagt
niÓur til almennra fundarhalda.
Nú förum við í áttina aó RáÖhústorginu
inn á „Strikið“ þ. e. Frederiksberggade, Ny-
torv og áfram að Hemmingsensgade, förum
el'tir þeirri götu og nemum staðar viÖ „Kar-
nappen“ (Kvindernes Bygning). Hér hefir
IslendingafélagiÓ liaft til húsa oft og mörgum
sinnum, meðal annars minntist þaÖ hér
25 ára sjálfstæðis Islands 1943. Nýjársfagn-
aö sinn hefur þaÖ og haldiÓ á þessum staÓ
og kvaddi þar Isl., er þeir fóru heiru aö stríö-
inu loknu og höföu verið „lokaðir inni“ í
5 ár. þá hefur stjórn félagsins líka haldið
fundi sína hér. En ekki er þetta sérstaklega
eftirsóttur staöur af Islendingum.
HéÖan förum viö aftur niður á StrikiÓ og
áfram að Gl. Mont og í götunni nr. 2 liggur
Kvindelig Læseforening. Hér hefur Stúdenta-
félagiö oftast Kvöldvökur sínar og stundum
almenna félagsfundi og IsLfélagiÖ hefur líka
haldiö fundi sína hér. A þessum slóðum
hét áöur fyrri City Selskahslokaler og hefur
Islendingafélagið notaö þá. Viö göngum áfram
aÖ Kongens Nytorv og á hægri hönd frá því
liggur Lille Kongensgade. Hér í nr. 4 heitir
Grand Kafé, á þessum staÖ liefur íslendinga-
félagiö haldiö fundi sína stöku sinnum. ViÖ
höldum áfram fram hjá Magasin du Nord
náum Landmandsbanken, og hér hlasir við
okkur „Kongen af Danmark“ og National-
hanken, en einmitt á þessum staÖ lá laust
um eða eftir aldamótin síÖuslu, gildaskáli er
nefndist Wittmacks Lokaler og hér höföu
Islendingar fundi sína ofl.
Viö snúum viÓ, förum fram hjá Konungl.
leikhúsínu og Charlottenborg (hér lijó Thor-
váldsen) og hér til vinstri handar, nr. 20,
liggur Opera Kaféen og hér hefur lslend-
ingafél. verið, og áfram aÖ Skt. Anne Plads
aö Prins Vilhelms Palæ. HöfÖu ísl. oft fundi
20