Víkurfréttir


Víkurfréttir - 01.07.2010, Blaðsíða 4

Víkurfréttir - 01.07.2010, Blaðsíða 4
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 26. TÖLUBLAÐ I 31. ÁRGANGUR4 árið 1990 hér á landi en hann barst hingað með búslóð. Næst fannst hann árið 1999 í Garðabæ. Næst er vitað um tilvik árið 2004 í Garðheimum í Reykjavík en frá og með 2006 hefur hann fundist reglulega á tiltölulega þröngu svæði í vest- urbæ Reykjavíkur. Þar með er ekki öll sagan sögð því varma- smiður hefur einnig komið sér fyrir á afmörkuðu svæði í Keflavík (Hringbraut/Smára- tún). Það fékkst staðfest í apríl 2008, að því er fram kemur á vef Náttúrufræðistofnunar. Myndirnar tók Aðalsteinn Hólm Guðjónsson og kunnum við honum bestu þakkir fyrir. TAX FREE! Pallaefni ALLT FYRIR ÚTILEGUNA TAX FREE AF ÖLLU FÚAVÖRÐU TIMBRI FYRIR SÓLPALLINN GILDIR EINNIG AF LERKI, SKJÓLVEGGJUM OG VATNSKLÆÐNINGU! Regn & vindjakki Nokkrir litir dömu, herra og barna. Vindbuxur í stíl aðeins 3.999 kr. 5868030 - 88 14.990 16.494 Tjaldborð og bekkjasett 2bekkir og borð stærð 113 x 68 x 72 sm 3899360 Tjald 3 manna Santa Barbara 5869205 7.990 9.890 Allar upplýsingar eru birtar með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. Úrval getur verið misjafnt milli verslana. Að sjálfsögðu stendur Húsasmiðjan skil á virðisaukaskatti til ríkissjóðs Tax Free gildir til 5. júlí Ungmenni í Vinnuskóla Reykjanesbæjar sendu okkur myndir af þessum bjöllum sem þau lýstu sem risastórum járnsmiðum en þau höfðu orðið vör við pöddurnar í nokkru mæli við Aðalgötu í Keflavík. Hér er greinilega um Varmasmið að ræða sem er nýlegur landnemi á Íslandi og virð- ist dafna ágætlega á afmörk- uðum svæðum í Reykjavík og Reykjanesbæ. Landnám varmasmiðs er ekki til að hafa áhyggjur af. Frekar ættu garðræktendur að fagna honum því hann gæti orð- ið virkur í baráttunni við að halda sniglum í skefjum. Við fyrstu kynni af bjöllunni líst fólki oft ekki á blikuna því varmasmiður er mun stærri padda en fólk á að venjast, um 22 mm á lengd. Varmasmiðir sem slæðst hafa inn í hús hafa jafnvel verið grunaðir um að vera kakkalakkar og valdið með því óhug, segir á vef Nátt- úrufræðistofnunar Íslands. Varmasmiður fannst fyrst Nýr landnemi dafnar vel í Keflavík Fulltrúar G- og S- lista í f r æ ðslu- og upp eld- isnefnd Grindavíkur harma vinnubrögð meirihluta D- og B-lista vegna sameiningar grunnskólanna þar í bæ. Þeir draga í efa hvort fyrirhugaðar breytingar með „tilheyrandi ólgu og óánægju séu metnar til fjár,“ eins og það er orðað í bókun minnihlutans sem lögð var fram á fundi nefnd- arinnar á mánudaginn. Þeir segja að hugsanlegur sparn- aður hafi ekki legið fyrir fyrr en tveimur klukkustundum fyrir lokaákvörðun í málinu. Meirihluti B- og D-lista bar upp tillögu þess efns að Hóps skóli yrði lagður niður og starfsemi hans færð undir Grunnskóla Grindavíkur og þar með eins skólastjóra. Áður hafði verið tekist á um málið í bæjarstjórn og á fyrri fundi fræðslu- og uppeldisnefndar. Í tillögu meirihlutans er gert ráð fyrir því að yngstu bekkjar- deildunum hins sameinaða skóla verði áfram kennt í hús- næði Hópsskóla. Tillagan ger- ir ekki ráð fyrir breytingum á högum núverandi starfsfólks Hópsskóla öðrum en þeim að staða skólastjóra verði lögð niður. „Skólastjóra og stjórnend- um Grunnskóla Grindavíkur og Hópsskóla, í samráði við skólamálafulltrúa, verði falið að undirbúa breytinguna með þeim hætti að sem minnst röskun verði fyrir nemendur og starfsmenn og starfsem- in geti hafist með eðlilegum hætti í haust. Skólamálafull- trúa í samráði við skólastjóra Grunnskóla Grindavíkur og fjármálastjóra, verði falið að ganga frá starfsmannamálum í samræmi við lög, kjarasamn- inga og ráðningarsamninga. Fræðslu- og uppeldisnefnd Grindavíkur treystir því mjög svo hæfa starfsfólki beggja skóla ti l að láta samein- inguna ganga sem best með hag nemenda og starfsfólks að leiðarljósi og tryggja sam- fellu í starfi skólanna,“ segir ennfremur í tillögunni sem var samþykkt með þremur atkvæðum meirihlutans gegn tveimur minnihlutans. Minnihlutinn lagði fram svo- hljóðandi bókun: „G- og S-listi harma þau vinnubrögð sem viðhöfð hafa verið í jafn mikilvægu máli og sameining grunnskólanna er. Það er einlæg von okkar að í framtíðinni verði slíkum breytingum gefin sanngjarn tími þar sem allir hagsmuna- aðilar eru hafðir með í ráðum frá upphafi. Þá má líka hafa í huga hvort fyrirhugaðar breyt- ingar með tilheyrandi ólgu og óánægju séu metnar til fjár. Það er að okkar mati ótækt að hugsanlegur sparnaður vegna breytinganna hafi ekki legið fyrir fyrr en tveimur klst. fyrir lokaákvörðun málsins. Hann hefði að sjálfsögðu átt að liggja fyrir um leið og B og D-listi settu málið í stefnuskrá sína fyrir kosningar. G- og S-listi vilja að lokum þakka Maggý Hrönn[skóla- stjóra Hópsskóla-innsk.blm] fyrir vel unnin störf frá því í haust og óskum við henni vel- farnaðar“. Harma vinnubrögð meirihlutans Bátur sem legið hefur bundinn við bryggju í Njarðvíkurhöfn um tíma, er sokkinn við bryggjuna. Eftir því sem VF kemst næst stóð upphaflega til að gera bátinn út til hvalaskoðunar en af þeim áformum hefur ekki orðið og hefur báturinn legið óhreyfður við bryggju í reiðileysi síðustu árin. Líklega hafa botnlokar bátsins rygðað og gefið sig með þessum afleiðingum. Ekki liggur ljóst fyrir hvert framhald málsins verður en forsvarsmenn Reykjaneshafnar segja það hlutverk eigandans að gera viðeigandi ráðstafanir með skipið. SöKK í NjaRðVíKuRhöFN

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.