Víkurfréttir


Víkurfréttir - 01.07.2010, Blaðsíða 9

Víkurfréttir - 01.07.2010, Blaðsíða 9
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM Í ÞRJÁ ÁRATUGI! 9VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 1. JÚLÍ 2010 ákváðum þetta fyrir nokkrum árum í stað þess að hanga yfir örfáum ferðalöngum á veturna. Við höfum einnig í mörg ár tekið við börnum hingað í vist- un frá Félagsmálastofnun.“ Hestar hafa góð áhrif Þau hafa greinilega fengið mikið út úr því að aðstoða þau börn og unglinga, sem hafa verið send til þeirra og nefnir Gísli að hestarnir þeirra hafi einnig haft mikil og góð áhrif á krakkana. „Hestarnir eru svo góðir í svona starf, þeir hjálpa krökkunum að gleyma sér og fá þau til að upplifa náttúruna aftur, fá jafnvægi þaðan. Hest- arnir skynja líka svo vel hvern og einn, þeir eru stundum eins og góðir sálfræðingar“, segir Gísli. Gísli er með nokkra hesta sjálf- ur og rollur, þannig að hann fær ennþá smá útrás fyrir bóndann í sér með veitinga- húsarekstrinum. „Í dag sér konan að mestu um Vegamót en ég sinni hrossabændum og fleirum hér í sveitinni. Nú er verið að heyja, svo er mað- ur stundum í viðgerðum og fleira sem fellur til. Hér eru næg verkefni fyrir mig“, segir Gísli, „á veturna er ég að gefa og sinna hrossum. Það var ekki mikil hestapest í þeim hrossum sem ég hafði umsjón með í vet- ur, þau sluppu furðuvel. Dýra- læknirinn okkar segir þessa pest ekkert nýnæmi, hér á landi hafi pestin verið undanfarin 50 til 60 ár. Hún var að vísu slæm þetta skiptið en honum fannst þetta fyrst og fremst óttalegt fjölmiðlafár. Við ákváðum að leyfa hestunum hérna að vinna á þessu sjálfir, þeir réðu alveg við þetta. Þannig voru þeir einnig að styrkja ónæmiskerfi sitt í leiðinni.“ Sveitin er nærandi Þegar þau eru spurð út í sam- gang í sveitinni þá segja þau fólk hittast á þorrablótum og á boðsböllum, þ.e. þegar hrepp- urinn býður öllum á ball. Ann- ars segja þau fólk vera sjálfu sér nóg. Maður veltir því fyrir sér hvort fólk uni sér betur og sé rólegra í strjálbýli, þar sem náttúran umvefur það? Það gleymir sér kannski úti í móa á fallegu sumarkvöldi eða niðri við lygna tjörn eins og blaðasnáp- ur gerði. Þau hjónin segja bæði að það sé mikil ró, sem fylgi því að búa svona fyrir utan þéttbýlið, jafnvel þótt það fyllist allt af fólki í veitingasölunni, þá er alltaf ákveðin ró yfir öllu. Það er líklega þessi innri og ytri kyrrð sem nærir og fær þau Hrefnu og Gísla til að búa hér áfram. Fimmtudagurinn 11. júní markaði nokkur tíma- mót. Þá voru 21 ÍAK einka- þjálfari brautskráður á veg- um Keilis. Þetta er í fyrsta sinn sem slík athöfn fer fram á vegum Keilis utan Ásbrúar. Fram kom í ræðu Hjálmars Árnasonar, framkvæmda- stjóra Keils, að stefna skól- ans væri að veita nemendum sínum sem besta þjónustu. Liður í því væri að færa kennsluna sem næst nem- endum. Á Akureyri hefði sl. haust orðið til myndarleg- ur hópur nemenda í ÍAK einkaþjálfun. Því hefði verið ákveðið að færa kennsluna til þeirra. Með afar góðri tækni hefði bóklega nám- ið farið fram í fjarnámi en verklegir þættir hins vegar á Akureyri í húsnæði Bjarg- ar – líkamsræktarstöðvar undir leiðsögn fagfólks. Dav- íð Kristinsson og Tinna Stef- ánsdóttir önnuðust verklega þjálfun á Akureyri. Keilir hefur nú 2 starfsstöðvar á Akureyri, eina á Austurlandi, eina í Vestmannaeyjum (vegna flugsins) og eina í Þýskalandi þar sem margir af „Silfur- drengjunum“ í handbolta stunda nám ÍAK einkaþjálfara. Gunnhildur Vilbergsdótt- ir, forstöðukona Heilsuskóla Keilis, afhenti prófskírteini. Kom m.a. fram í máli hennar að norðlenski hópurinn hefði náð ótrúlegum námsárangri en strangar kröfur eru gerðar um námsárangur. Gunnhild- ur vakti athygli á því að í raun gæti hver sem er tekið að sér leiðsögn í líkamsræktarstöð. Því miður hefði borið á hættu- legum leiðbeiningum frá fólki án menntunar. Vart hefði hins vegar orðið við mikla ánægju með starfskrafta ÍAK einka- þjálfara, m.a. frá læknum. Næsta vetur yrðu teknir inn 60 nýir umsækjendur í ÍAK einkaþjálfun en þegar væri komnar um 140 umsóknir. Fremst meðal jafningja var Sigríður Katrín Magnúsdóttir með 9,64 í meðaleinkunn og fékk fyrir vikið viðurkenn- ingu frá Keili. Flutti hún jafn- framt ávarp fyrir hönd braut- skráðra þar sem hún þakkaði öllum skemmtilegt samstarf. Kom fram í máli Sigríðar Katrínar að hinir nýútskrif- uðu einkaþjálfarar myndu nú dreifast til ýmissa starfa í líkamsræktarstöðvum, með heilbrigðisstéttum o.s.frv. Við upphaf og lok athafn- arinnar í Ketilshúsi fluttu þær Fabúla og Unnur Birna Björnsdóttir fallega tónlist . ÍAK EINKAÞJÁLFARAR ÚTSKRIFAÐIR Á AKUREYRI ÚTSALAN HEFST Í DAG 20% - 40% AFSLÁTTU R Hafnargata 29 - s. 421 8585

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.