Víkurfréttir - 01.07.2010, Blaðsíða 13
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM Í ÞRJÁ ÁRATUGI! 13VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 1. JÚLÍ 2010
Vi g n i r A r n a r s o n , sem er 43 ára gamall
Suðurnesjamaður, lagði á
mánudaginn upp í 30 daga
gönguferð þvert yfir Noreg.
Tilgangur ferðarinnar er að
safna styrktarfé yfir UNG
BLIND sem er deild innan
Blindrafélagsins fyrir blind
og sjónskert börn og ung-
linga. Dóttir hans, Jenný
Guðbjörg, sem búsett er í
Reykjanesbæ, greindist með
ólæknandi augnsjúkdóm
fyrir tveimur árum og síð-
an þá hefur hún notið ein-
stakrar hjálpar frá Blindra-
félaginu.
Gönguferðin er sérstök að
því leyti að Vignir ætlar ein-
ungis að lifa á náttúrunni í
þá 30 daga sem gangan tekur.
Nokkrir hafa labbað þessa
leið áður en ekki með þess-
um hætti. Fyrsti dagurinn
byrjaði reyndar ekki vel við
fæðuöflun því þegar Vign-
ir ætlaði að renna fyrir fisk í
því sem átti að vera veiðivatn
samkvæmt korti, kom hann
að mýrarpolli. Hann lagði
því vatnslaus og matarlaus
í gönguna á öðrum degi og
þurfti að ganga nokkra kíló-
metra uns hann komst í vatn.
Til að nærast tók hann á sig
krók niður að strönd þar sem
hann veiddi þorsk í matinn.
Vignir hóf gönguna á Bogs-
nesi við Tysfjord í Noregi
og stefnir til Pitea á austur-
strönd Svíþjóðar, samtals um
500 km í loftlínu. Á vefnum
http://www.vignirarnarson.
com/ er hægt að fylgjast með
Vigni á gönguferðinni.
„Tilgangur ferðarinnar er að
safna áheitum fyrir barnastarf
Blindrafélagsins og einnig til
að sýna fram á hversu þægileg-
an og í rauninni einfaldan dag
við höfum sem eigum að teljast
heilbrigð. Ég er ekkert öðruvísi
en flestir aðrir með það að ég
hef eiginlega tekið lífinu, heils-
unni, heilsu barna minna og
öðru þess háttar sem sjálfsögð-
um hlut, þar til fyrir tveimur
árum er dóttir mín greindist
með ólæknandi augnsjúkdóm
og síðan þegar sonur minn
fjögurra og hálfsárs lést í fyrra.
Þegar slíkir hlutir gerast þá er
oft sem maður vakni upp við
vondan draum og átti sig á
því að maður geti ekki tekið
öllu sem sjálfsögðum hlut,“
segir Vignir um tilgang ferð-
arinnar.
Hægt að hringja í eftirfarandi
númer til að styrkja barna-
starf Blindrafélagsins:
904 1000 (1.000 kr)
904 2000 (2.000 kr)
904 3000 (3.000 kr)
Einnig hefur sérstakur reikn-
ingur hjá Blindrafélaginu ver-
ið settur upp fyrir þá sem vilja
sýna Vigni og Blindrafélaginu
stuðning.
Reikningsnúmer: 115-26-
47015
Kennitala: 470169-2149
Reikningseigandi: Blindra-
félagið
Komið hjartanlega sæl kæru Keflvíkingar.
Við erum nú loksins loksins
komnir aftur á okkar elskulega
heimavöll, Sparisjóðsvöllinn,
og hafa þessar framkvæmdir
gengið vel. Við erum nú kom-
in með glæsilegan völl, nýtt
gras, hitaleiðslur undir völlinn
og öflugt vökvunarkerfi. Þá
hefur völlurinn verið færður
aðeins nær stúkunni sem er
auðvitað hið besta mál.
Stemmningin í stúkunni í
sumar hefur verið með ágæt-
um en það má auðvitað alltaf
gera betur í þeim málum. Við
meðlimir Pumasveitarinnar
höfum mætt á alla leiki liðs-
ins í sumar og stutt dyggilega
við bakið á strákunum. Verður
bara gefið enn meira í það sem
eftir er sumars.
Við höfum þurft að gjalda fyrir
það mætingalega séð að spila á
þessum ágæta velli í Njarðvík.
Stúkan rúmar ekki alla þá
áhorfendur sem hafa verið
duglegir að mæta á völlinn
með Keflvíkingum undanfar-
in ár. Núna er þetta allt uppá-
við og við sjáum bara fram á
frábæra tíma í Pepsídeildinni í
sumar og næstu ár!
Við höfum ávallt reynt að
halda uppi góðri stemmningu
og peppað strákana áfram eins
og best getur. Höfum við Kefl-
víkingar oftar en ekki verið
tólfti maðurinn fyrir strákana
okkar. Í sumar hefur þetta ver-
ið svona upp og ofan hjá hin-
um almenna stuðningsmanni
og óskum við hér með eftir því
að allir Keflvíkingar líti í eig-
inn barm og hugsi hvað þeir
geti gert betur og meira til þess
að styðja strákana okkar.
Menn ættu að vera farnir
að þekkja flestöll lögin sem
Pumasveitin hefur í lagasafni
sínu og er það bara alveg sjálf-
sagt að þið kæru stuðnings-
menn takið hressilega undir
og hjálpið okkur að peppa
þetta enn meira og enn hærra
á hverjum einasta leik!
Við erum ekki nema um það
bil 10-15 manns í Pumasveit-
inni allajafna og tilgangur
hennar var upphaflega að
koma stemmningunni og
söngvunum af stað og svo
fylgja allir stuðningsmenn
Keflavíkur með í kjölfarið. Það
hefur ekki alveg verið lenskan
í sumar, því miður, en þó hafa
margir stuðningsmenn látið
vel í sér heyra og verið vel með
á nótunum í stúkunni.
Við ætlum okkur stóra hluti í
deildinni í sumar og því er það
ósk okkar og leikmanna að all-
ir sem mæta á leiki Keflavíkur
með stórt Keflavíkurhjarta láti
vel í sér heyra og hjálpi bæði
okkur og sérstaklega strák-
unum yfir erfiða hjalla í sumar
og búi til einstaka stemmn-
ingu sem við viljum jú að verði
aðall okkar Keflvíkinga.
Þegar stúkan og stemmningin
er í fullu fjöri, þá vitið þið að
liðið og stigin munu fylgja!
Klappið með, syngið með,
skemmtið ykkur og styðjið lið-
ið, því við erum jú öll í þessu
saman og með sama markmið;
Að hjálpa strákunum okkar að
ná því allra besta út úr þeim
sem hægt er og ef allt geng-
ur upp þá veit enginn hversu
hátt og langt við getum farið.
Okkur í Pumasveitinni er all-
verulega farið að langa í þann
stóra og treystum við okkar
frábæra liði, þjálfurum, stjórn
og öllum í kringum Keflavík-
urliðið til þess að leiða okkur á
vit glæsilegra ævintýra!
Við mætum Íslandsmeist-
urum FH á sunnudagskvöld-
ið í mögnuðum vígsluleik á
hinum nýja og stórglæsilega
Sparisjóðsvelli, og nú leggjum
við bara línurnar fyrir restina
af sumrinu og styðjum strák-
ana sem aldrei fyrr, ALLIR
SEM EINN, við erum öll með
tölu í þessu saman til þess að
ná árangri og koma liði Kefla-
víkur í sögubækurnar!
ÁFRAM KEFLAVÍK,
AÐ EILÍFU !!!!
Jóhann D. Bianco -
Jói Drummer
Vignir Arnarson gengur þvert yfir Noreg til styrktar Blindrafélaginu:
Þurfti að takast á við mót-
læti fyrsta göngudaginn
-lét það ekki slá sig út af laginu og tók á sig
krók til að nálgast mat
AÐSENT
Upp með stemmninguna,
út með rækjusamlokurnar Starfsmaður óskast
Vínbúðin Reykjanesbæ
Starfsmaður óskast í mavinnu í Vínbúðinni Reykjanesbæ.
Um er að ræða alla föstudaga og annan hvern laugardag
í sumar.
Nánari upplýsingar veiir María Jónsdóór,
verslunarstjóri í síma: -----.
Göngumessa í Húshólma
Næstkomandi sunnudag, 4. júlí kl. 10:30, stendur Grindavíkurkirkja fyrir göngumessu í Húshólma.
Safnast verður saman við kirkjuna kl. 10:30 og sameinast
í bíla og ekið á þann stað sem gengið verður frá. Gangan
sjálf mun taka um 3 klst. Þegar komið verður til baka verð-
ur gengið til kirkju til að næra líkama og sál.
Daníel Jónsson mun fara fyrir göngunni og eru allir velkomn-
ir.
Byggð var í Húshólma allt frá landnámi fram til 1151 þegar
Ögmundarhraun rann. Eftir standa tóftir af bæjarhúsum og
líklega kirkju eins og örnefnið Kirkjulág bendir til.