Víkurfréttir - 26.01.2012, Side 9
9VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUdagUrInn 26. janúar 2012
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Sumarstörf
í Reykjanesbæ
Landsbankinn auglýsir laus til umsóknar sumarstörf í Reykjanesbæ.
Um er að ræða tímabundin störf til loka ágúst.
Helstu verkefni
» Almenn þjónusta við viðskiptavini
» Upplýsingagjöf um vörur og
þjónustu Landsbankans
» Gjaldeyrisþjónusta
» Western Union
hraðsendingarþjónusta
» Erlendar millifærslur
» Afgreiðsla endurgreiðslu
virðisaukaskatts (tax refund)
í Leifsstöð
Menntunar- og hæfniskröfur
» Stúdentspróf
» Góð tungumálakunnátta
» Nákvæmni og skipulögð
vinnubrögð
» Frumkvæði og þjónustulund
» Hæfni í mannlegum samskiptum
» Reynsla af bankastörfum
er kostur
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Berglind
Ingvarsdóttir hjá Mannauði í síma
410 7914.
Umsókn merkt „Sumarstarf í Reykja-
nesbæ“ fyllist út á vef bankans.
Umsóknarfrestur er til og með
3. febrúar næstkomandi.
L
a
n
d
s
b
a
n
k
i
n
n
h
f.
,
k
t
. 4
7
1
0
0
8
-
0
2
8
0
Útibú bankans í Reykjanesbæ er staðsett við Tjarnargötu 12 og vinnutími er frá 09:00 til 17:00 alla virka daga.
Landsbankinn starfrækir tvær afgreiðslur í Leifsstöð á Keflavíkurflugvelli sem sérhæfa sig í gjaldeyrisþjónustu
fyrir ferðamenn, bæði komu- og brottfararfarþega. Þar er jafnframt veitt ýmis almenn bankaþjónusta, s.s. afgreiðsla
innleggja, Western Union hraðsendingarþjónusta og erlendar millifærslur. Að auki annast bankinn endurgreiðslu
virðisaukaskatts (tax refund) í sérstakri afgreiðslu á brottfararsvæði. Um er að ræða vaktavinnu.
ríki. Linda, systir Helgu, er búsett í Linz en
Helga fer þangað á 5 vikna fresti en sjálf
bjó hún þar í 4 ár. „Ég er dugleg að hlusta
á austurríska útvarpið og held þannig við
þýskunni og veit þannig einnig hvað er í
gangi þar í landi,“ segir Helga.
Dorrit er fastakúnni
„Mér skilst að þeir sem sæki í mínar vörur
sé fólk sem vill svolítið litrík föt, og öðruvísi.
Það er fyrst og fremst það sem dregur fólk að
vörunum og svo líka að þær eru á viðráðan-
legu verði. Forsetafrúin Dorrit Moussaieff er
einn dyggasti viðskiptavinur Mýr design og
hefur Helga saumað á hana einar 7 peysur.
Ein slík var í vinnslu þegar blaðamaður var
í heimsókn en Helga segir að upphafið að
sambandi þeirra hafi hafist þannig að Helga
sendi Dorrit einfaldlega peysu sem heillaði
forsetafrúna upp úr skónum.
Margt spennandi framundan
Helga stefnir að því á þessu ári að taka þátt
í stórri sýningu í Vín sem heitir Blitzfang.
Á þá sýningu, sem er fyrir aðallega fyrir
nýja og upprennandi hönnuði, koma um
130.000 manns. Helga segir útlitið vera gott
og miklar líkur á því að Mýr design komist
inn á þá sýningu sem væri stórt tækifæri
fyrir merkið.
„Það er stefnan að koma línunni á almenni-
legt skrið,“ segir Helga sem nýlega hlaut
styrki frá Atvinnuþróunarráði, Impru og
Útflutningsráði sem ætlaður er til kynningar
á hönnuninni á erlendum vettvangi. Helga
segist stefna á að koma merkinu á markað
erlendis, og þá sérstaklega Austurríki en Ís-
lendingar hafa einnig tekið merkinu fagnandi
að sögn Helgu. Austurríki er markaður sem
Helga þekkir og hún treystir sér til að reyna
að ná festu þar. Helga segist hafa fengið boð
um að selja hönnun sína í verslunarkeðju í
Austurríki en hún er enn að velta því fyrir sér
í hvernig verslun hún vilji selja fötin sín. Hún
vill finna sér stað þar sem hennar vörur passa
fullkomlega.
Styrkina hefur Helga m.a. nýtt til þess að
koma heimasíðu á laggirnar og er vinnsla
hennar á lokastigi. „Hún á að vera tilbúin
núna í vikunni en þar verður hægt að versla
fötin og fylgihluti,“ segir Linda en hún hyggur
á að kynna vörur sínar út fyrir landsteinana
sem mest á komandi mánuðum. Hún er að
eigin sögn afar spennt fyrir árinu 2012.