Víkurfréttir - 06.09.2012, Side 2
FIMMTUDAGURINN 6. SEPTEMBER 2012 • VÍKURFRÉTTIR2
›› FRÉTTIR ‹‹
HEILSULEIKSKÓLINN
HEIÐARSEL
Heilsuleikskólinn Heiðarsel óskar eftir að ráða
leikskólakennara, þroskaþjálfa eða starfsmann með
aðra uppeldismenntun í 90-100% stöðu sem fyrst.
Einnig leitum við að starfsmanni í skilastöðu frá
15:00-16:15.
Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri Heiðarsels í
síma 4203131, eða á netfangið
heidarsel@reykjanesbaer.is
Umsóknarfrestur er til 20. september.
Sækja skal um starfið á vef Reykjanesbæjar.
UPPSKERUHÁTÍÐ
SUMARLESTURS
Um leið og við þökkum þeim tæplega 300 börnum
sem tóku þátt í sumarlestri Bókasafnsins í sumar,
bjóðum við til uppskeruhátíðar á alþjóðlegum degi
læsis, laugardaginn 8. september kl. 13:30.
Ragnheiður Gestsdóttir rithöfundur les brot úr nýrri
bók og allir sem mæta verða leystir út með góðri gjöf.
Heppnir fiskar sem veiddir verða úr búrinu fá sérstaka
viðurkenningu.
Við minnum á að laugardagar eru fjölskyldudagar á
Bókasafninu.
Opið á laugardögum kl. 10:00 til 16:00 í vetur.
NESVELLIR
LÉTTUR FÖSTUDAGUR
7. SEPTEMBER KL 14:00
Kynning á tómstundastarfi fyrir eldri borgara
Allir hjartanlega velkomnir
LAUGARDAGS-
FUNDUR
Fyrsti laugardagsfundur vetrarins verður haldinn þann 8. september
kl. 10:30 í félagsheimili Framsóknar, Hafnargötu 62.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélag Reykjanesbæjar.
Í vímu hjólaði
á ljósastaur
Karlmaður á þrítugsaldri
slasaðist þegar
hann hjólaði
á ljósastaur í
Reykjanesbæ
um helgina.
Hann tjáði lögreglunni á Suður-
nesjum að hann hefði verið eitt-
hvað ryðgaður í kollinum eftir
grasreykingar og því hafnað
á staurnum. Hann var fluttur
með sjúkrabifreið á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja þar sem
gert var að meiðslum hans. Þau
munu vera minni háttar. Þá var
lögreglu tilkynnt um að ekið
hefði verið á ljósastaur í Sand-
gerði. Sá sem það gerði lét sig
hverfa af vettvangi, án þess að
gera viðvart um ákeyrsluna.
Tveimur loft-
pressum stolið
Lögreglunni á Suðurnesjum
barst á mánudag
tilkynning um
innbrot í áhalda-
húsið í Vogum.
Þaðan hafði
tveimur loft-
pressum verið stolið úr áhalda-
geymslu golfklúbbsins á Vatns-
leysuströnd. Þá hafði bensínorfi
einnig verið stolið. Sá eða þeir
sem þarna voru að verki höfðu
brotið niður hurð á vesturhlið
hússins og komist inn með þeim
hætti. Lögregla beinir þeim til-
mælum til þeirra sem kunna að
búa yfir upplýsingum um málið
að hafa samband í síma 420-1800.
Fundu tvo
fíkniefnapoka
Tveimur pokum með
kannabisefnum
var komið til
lögreglunnar á
Suðurnesjum í
byrjun vikunnar.
Annar pokanna fannst fyrir
utan skemmtistað í umdæminu,
þegar starfsmenn staðarins
voru að vinna þar við þrif.
Hinn pokinn fannst innan
dyra á öðrum skemmtistað.
Þar voru starfsmenn einnig
við þrif þegar þeir fundu hann
undir borði. Báðir pokarnir
innihéldu lítið magn af efnum.
Landsbankinn hefur ákveðið að sameina útibú bankans í
Reykjanesbæ og afgreiðslur hans
í Garði og Vogum á einn stað frá
og með 14. september. Sameinuð
starfsemi verður í húsnæði bank-
ans við Tjarnargötu 12 í Reykja-
nesbæ fyrst um sinn, en verður
flutt í nýtt og glæsilegt húsnæði
að Krossmóa 4a í hjarta bæjarins
síðar á þessu ári. Við þann flutn-
ing verður afgreiðsla bankans að
Grundarvegi 23 í Reykjanesbæ
einnig sameinuð útibúinu. Áfram
verður rekin afgreiðsla í Sand-
gerði.
Ekki verður um neinar uppsagnir
að ræða þar sem þeim starfs-
mönnum sem nú starfa í Garði,
Vogum og afgreiðslu í Reykjanesbæ
verður boðið starf í útibúinu eða í
afgreiðslunni í Sandgerði.
Óhjákvæmilegt er að við þetta
verði nokkur breyting á starfsemi
Landsbankans á Reykjanesi en
mikil áhersla er lögð á að þjónusta
við viðskiptavini skerðist eins lítið
og unnt er. Starfsfólk bankans
mun leggja sig fram um að halda
þeim óþægindum sem skapast í
lágmarki. Engar breytingar verða
á reikningsnúmerum og ekki er
þörf á endurnýjun greiðslukorta.
Hraðbanki verður áfram í Garði
og settur verður upp hraðbanki í
Vogum.
Útibúið í Reykjanesbæ verður að
breytingum loknum enn öflugra
og hagkvæmara en það hefur verið
og þjónusta þess mun eflast. Um
45 manns munu starfa í samein-
uðu útibúi en að auki sinna um
20 starfsmenn í Reykjanesbæ bak-
vinnsluverkefnum fyrir bankann í
heild og þar verður áfram stærsti
vinnustaður Landsbankans utan
Reykjavíkur. Landsbankinn rekur
einnig útibú í Grindavík og af-
greiðslu í Leifsstöð og samanlagt
starfa tæplega 100 manns hjá bank-
anum á Reykjanesi þegar allt er
talið.
Líkt og ítrekað hefur komið fram er
rekstur Landsbankans til stöðugrar
skoðunar með það fyrir augum að
hagræða þar sem því verður við
komið og leggja niður óhagkvæmar
einingar ef þarf. Þessar aðgerðir
fylgja þeirri stefnu en nauðsynlegt
er að draga frekar úr kostnaði við
reksturinn. Þá hefur tæknilausnum
í bankaþjónustu fleygt gríðarlega
fram, heimsóknum í útibú og af-
greiðslur fer hratt fækkandi af
þeim sökum og samgöngur verða
æ betri. Fækkun afgreiðslustaða er
því í senn eðlileg og óhjákvæmileg.
Reiknað er með að Landsbankinn
spari tæplega 150 milljónir króna á
ári í rekstri sínum með þeim breyt-
ingum sem hér eru kynntar.
Fækkun útibúa og afgreiðslustaða
banka nú er hluti af þróun sem
staðið hefur um langa hríð. Frá
árinu 1998 hefur afgreiðslustöðum
Landsbankans t.a.m. fækkað úr 64
í 38 (fjölgaði tímabundið árið 2011
vegna samruna við Spkef) og verða
eftir þessar breytingar 35. Útibúum
Landsbankans og Spkef hefur
samanlagt fækkað um tæplega
þriðjung á síðustu tveimur árum,
segir í tilkynningu frá bankanum.
Landsbankinn lokar
í Garði og Vogum
- nýtt sameinað útibú opnar í Krossmóa síðar á árinu
Daglegar fréttir
www.vf.is
Landsbankinn lokar útibúi sínu í Garði þann 14. september nk.
Hér opnar Landsbankinn nýtt sameinað útibú
í Reykjanesbæ síðar á árinu.