Víkurfréttir - 06.09.2012, Side 8
FIMMTUDAGURINN 6. SEPTEMBER 2012 • VÍKURFRÉTTIR8
Enginn kemst í gegnum lífið án
þess að takast á við erfiðleika eða
áföll. Umræðan sem snýr að sorg
og áföllum hefur frekar verið tengd
þeim neikvæðu afleiðingum sem
slíkt hefur í för með sér en ekki má
útiloka að í mörgum tilvikum er um
að ræða jákvæðan þroska í kjölfar
missis, þó maður mundi gjarnan
vilja vera án þeirrar erfiðu reynslu sem kallar fram
slíkan þroska.
Til að gefa dæmi um þann þroska sem fólk dregur af
áföllum má nefna breytta skynjun á sjálfan sig, en það
er ekki óalgengt að fólk upplifi nýjar hliðar á sér, verði
jafnvel sterkara á ákveðnum sviðum og þakklátara fyrir
vissa hluti sem það hefur þurft að láta reyna á. Sú til-
finning að viðkomandi sé orðinn sterkari og geti þolað
næstum hvað sem er eftir að hafa farið í gegnum áfall,
er algeng.
Fólk talar gjarnan um að það eigi í dýpri og merkingar-
bærari samböndum við aðra eftir áföll og það geri sér
betur grein fyrir hvað það er sem skiptir máli í sam-
skiptum og hvaða sambönd beri að rækta. Þá virðist
fólk eiga betur með að setja sig í spor annarra og sýna
meiri samúð og samkennd en áður. Þá tala þeir sem
hafa lent í erfiðum áföllum um að þeir eigi auðveldara
með að tjá tilfinningar sínar.
Þá hafa margir talað um breytta lífsskoðun og þá vísað
til þess að þeir öðlist nýja sýn á lífið í kjölfar áfalla og
verði ýmist mjög trúaðir eða finni nýjan tilgang með
lífinu. Fyrir suma er breytingin á lífinu svo mikil að þeir
tala um „fyrir og eftir“ atburðinn sem breytti öllu.
Það er mikilvægt að vera meðvitaður um að sorgin er
einstaklingsbundin og þar af leiðandi úrvinnsla hennar
líka. Þegar einstaklingur fer í gegnum þetta ferli skiptir
miklu máli að viðkomandi vinni í sorgarferlinu en ekki
síður að taka það í smá skömmtum og sinna öðrum
verkefnum meðfram því. Þá er leitast eftir ákveðnu
jafnvægi milli þess að takast á við íþyngjandi verk-
efni sorgarinnar og þess að eiga stundir sem ekki eru
markaðar af sorginni, þannig að jákvæðir og neikvæðir
þættir kallist á. Þannig er hægt að líta á þetta ferli sem
mikilvægan þátt í enduruppbyggingu einstaklingsins
sem vegna áfallsins getur stigið upp sterkari aðili sem
lifði af en nýtti sér á sama tíma, erfiða reynslu til að
skapa sér betra líf.
En í lífi okkar geta líka komið fyrir augnablik eða að-
stæður sem breyta okkur á þann veg að viðhorf okkar
til lífsins breytast í kjölfarið þrátt fyrir að ekki sé um
persónulegan missi eða áfall að ræða. Þannig er eins
og lífið sé að undirbúa okkur á einhvern hátt undir
það óumflýjanlega og ef við tökum á móti þá getur sú
reynsla nýst okkur á erfiðum tímum. Til þess að missa
ekki af þessum augnablikum þurfum við að vera opin
fyrir umhverfinu og hugsa meira út fyrir okkur sjálf og
þægindahringinn okkar, vera vakandi þegar við kynn-
umst nýju fólki og aðstæðum, og hlusta á hvað aðrir
hafa að segja. Lífið sjálft og okkar innri maður er í
sífelldri endurnýjun – svo framarlega sem við leyfum
því gerast!
Lífið er nú einu sinni þannig að öll þurfum við einhvern
tímann að þjást og þó við getum ekki haft áhrif á þær
aðstæður sem valda þjáningunni kunnum við hins vegar
að geta haft áhrif á afstöðu okkar til þjáningarinnar.
Þangað til næst – gangi þér vel.
Anna Lóa
Fylgstu með mér
http://www.facebook.com/Hamingjuhornid
Að vera reynslunni ríkari!
Fisktækniskólinn
Icelandic College of Fisheries
Víkurbraut 56
240 Grindavík
Sími: 412 5968
www.fiskt.is
www.facebook.com/fisktaekniskoli
info@fiskt.is
Fisktækniskólinn býður upp á stutt, skemmtilegt og hagnýtt einingabært nám sem opnar
þér ölda möguleika í vel launuð störf í sjávarútvegi auk möguleika á framhaldsnámi að
loknu grunnnámi.
Námið er til tveggja ára og með mikla áherslu á tengingu við atvinnulífið og vinnustaðaþjálfun.
Námsárið skiptist í eina önn í skóla með áherslu á faggreinar og eina önn á vinnustað undir leiðsögn
tilsjónarmanns. Fólk sem vill hasla sér völl í þeim greinum sem skólinn býður upp á fær því gott
tækifæri að mynda góðar tengingar út í atvinnulífið auk þess að búa sig undir frekara nám.
Náminu lýkur með framhaldsskólaprófi.
Fisktækniskólinn býður upp á nám í:
Fiskvinnslu, sjómennsku, fiskeldi og netagerð
Samstarfsaðilar Fisktækniskólans eru:
Einhamar ehf, Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur, Stakkavík ehf, Verkalýðs- og
sjómannafélag Keflavíkur, Verkakýðsfélag Grindavíkur, Vísir ehf, Þorbjörn ehf, Þróttur ehf
Getum bætt við okkur nemendum á haustönn
Fisktækniskóli
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Eldhúsvaskar og tæki
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Akureyri
Húsavík
Vestmannaeyjum
Bol-871 48cm þvermál
þykkt 0,8mm
6.990,-
Bol-834 80x48x18cm þykkt 0,8mm
11.990,-
AGI- Eldhústæki
3.990,-
Bol-897 66x43x18cm þykkt stáls 0,8mm
10.450,-
Bol-604 48x43x18cm Þykkt stáls 0,8mm
7.490,-
(fleiri stærðir til)
Aðalfundur Systrafélagsins verður haldinn
þriðjudaginn 11. september 2012 kl. 20:00
í Safnaðarheimilinu Innri-Njarðvík.
Allir velkomnir.
Systrafélagið
„En í lífi okkar geta líka komið fyrir augnablik eða
aðstæður sem breyta okkur á þann veg að viðhorf
okkar til lífsins breytast í kjölfarið þrátt fyrir að ekki
sé um persónulegan missi eða áfall að ræða.“