Víkurfréttir - 06.09.2012, Qupperneq 16
FIMMTUDAGURINN 6. SEPTEMBER 2012 • VÍKURFRÉTTIR16
Tekin með
29 skammta af
amfetamíni
Lögreglan á Suðurnesjum handtók um helgina fimm
manns sem voru á leið í Reykja-
nesbæ með um 30 grömm af
amfetamíni meðferðis. Lögreglu-
menn stöðvuðu bifreið á Reykja-
nesbraut sem fólkið, fjórir karl-
menn og ein kona, voru í. Einn
mannanna henti þá strax frá sér
kúlu sem innihélt fíkniefni. Við
leit fundust svo tuttugu og átta
pakkningar til viðbótar, samtals
um þrjátíu grömm, eins og áður
sagði. Fólkið var fært á lögreglu-
stöð, þar sem það var yfirheyrt
og sleppt að því loknu. Grunur
leikur á að efnin hafi verið ætluð
til sölu í Reykjanesbæ.
Á ofsahraða
innanbæjar
Lögreglumenn voru við hefð-bundið eftirlit í Keflavík á
dögunum þegar þeir heyrðu
gríðarlegan vélarhávaða nálgast.
Skömmu síðar kom bifreið í ljós,
sem ekið var á mikilli ferð, langt
umfram leyfilegan ökuhraða, í
þéttbýlinu. Ökumaður, rúmlega
tvítugur karlmaður, var stöðv-
aður og honum tilkynnt að skýrsla
yrði rituð um athæfi hans. Þá var
annar ökumaður, tæplega tvítug
kona, staðin að ölvun við akstur.
Þriðji ökumaðurinn, rúmlega
þrítugur karlmaður, var staðinn
að akstri undir áhrifum fíkniefna.
Með honum í bílnum var félagi
hans, sem játaði við yfirheyrslur
að hafa brotist inn í bifreið, með
því að brjóta rúðu í henni, og
stolið úr henni veski.
Eggin gleymdust
á eldavél
Lögreglunni á Suðurnesjum barst aðfaranótt þriðjudags
tilkynning um að mikil reykjar-
lykt væri í stigagangi fjölbýlishúss
í umdæminu. Þegar lögreglu-
menn komu á staðinn var mikil
brunalykt þar og reyndist hana
leggja frá potti á eldavél í einni
af íbúðunum. Húsráðandi hafði
verið að sjóða sér egg og sofnað
út frá eldamennskunni með þeim
afleiðingum að eggin brunnu við.
Hann kvaðst sjálfur myndu reyk-
ræsta íbúð sína.
Ók fjórhjóli fram
af hengju og slas-
aðist alvarlega
Ökumaður slasaðist alvarlega eftir að hann ók fjórhjóli
fram af hengju og hafnaði ofan
í malarnámu. Hann hafði ekið
eftir slóða sem lá að námunni í
nágrenni við Suðurstrandarveg
þegar slysið varð. Hann var fluttur
með sjúkrabifreið á Landspítala.
Dráttarbíll var fenginn til að
fjarlægja fjórhjólið. Lögreglan á
Suðurnesjum fer með rannsókn
málsins.
›› FRÉTTIR ‹‹
„Ég byrjaði að æfa aflraunir af
krafti fyrir keppnina í fyrra,“ segir
Hannes sem hefur þegar tekið þátt
í nokkrum af stærri keppnunum
í kraftaheiminum á Íslandi, m.a.
Vestfjarðarvíkingnum, Austfjarðar-
tröllinu og keppninni um Sterk-
asta mann Íslands sem fram fór í
Grindavík í ár.
Hannes sem er uppalinn í Garð-
inum segist hafa byrjað að fikta við
lyftingar um 19 ára aldur. Hann
hafði ekkert sérstaklega gaman
af því að hanga yfir lóðunum í
lyftingasalnum en fann sig síðar í
aflraunum. „Ég tók þátt í keppn-
inni Sterkasti maður Suðurnesja
árið 2009 og þá kviknaði áhug-
inn á aflraunum fyrir alvöru.“
Um síðastliðna helgi atti Hannes
kappi við John Russell í keppninni
sem fer jafnan fram á Ljósanótt.
Á fyrri degi keppninnar vann
Russell fyrstu tvær greinarnar,
þannig að seinni daginn var að duga
eða drepast fyrir Hannes. Hann tók
til sinna ráða og vann allar þrjár
greinarnar þann daginn og tryggði
sér sigur annað árið í röð eins og
fyrr segir. „Það var komin spenna í
þetta þegar við vorum orðnir jafnir
fyrir lokagreinina. Það vildi svo
heppilega til að ég fékk að fara á
eftir honum og vissi því upp á hár
hvað ég þyrfti að gera til að vinna.“
Greinin var náttúrusteinahleðsla
og það er grein sem Hannes hefur
æft mikið og er hvað sterkastur í.
Undir manni sjálfum komið
Hannes æfir yfirleitt fimm sinnum í
viku en hann segir að hér á svæðinu
sé ekki ýkja góð aðstaða fyrir þá sem
ætla sér að ná langt í aflraunum.
Hann æfir því töluvert í Reykjavík
þar sem hann hefur verið undir
handleiðslu Stefáns Sölva Péturs-
sonar sem hefur unnið til fjölda
titla í aflraunum. „Að vera þarna
með svona öflugum mönnum gefur
manni óneitanlega svolítið spark í
rassinn. Maður stefnir því alltaf á
það að verða jafn sterkur og þeir.“
Til þess þarf hann augljóslega að
innbyrða heil ósköp af mat en
það er ekkert grín að fæða svona
skrokk. „Fæðubótarefnin vega upp
á móti fæðinu þannig að maður
þarf ekki alveg að vera að borða
öllum stundum sem maður er vak-
andi,“ segir Hannes léttur í bragði.
„Alveg frá því að maður sá Jón Pál
Sigmarsson í sjónvarpinu í gamla
daga hefur maður haft gaman af
því að vera að lyfta steinum og þess
háttar,“ segir Hannes en markmiðin
eru háleit hjá honum og ætlar hann
sér að ná langt. „Maður stefnir alltaf
á það að verða sterkari en sá sterk-
asti. Það er eini hugsunarhátturinn
sem er hægt að temja sér í þessu.
Maður vonast bara til þess að slasa
sig ekkert á leiðinni,“ en meiðsli
eru algeng í þessari íþrótt og álagið
er mikið á líkamann. „Oft á tíðum
snýst þetta hreinlega um það hversu
vel þú þolir sársaukann.“
Á sínum yngri árum stundaði
Hannes knattspyrnu en hann fann
sig ekki alveg þar. „Maður var alltaf
að hugsa um að slasa ekki neinn
þar sem maður var svo miklu stærri
en allir aðrir. Þetta var ekki alveg
mín íþrótt en mér finnst mikið um
það í hópíþróttum að menn séu að
kenna hver öðrum um það sem illa
fer. Í einstaklingsíþróttum er þetta
allt undir manni sjálfum komið.“
En hvað er svona skemmtilegt við
þetta sport?
„Það er gríðarlega mikil samheldni
HannEs ÞorsTEinsson er 25 ára kraftajötunn. Hann varð sterkasti
maður suðurnesja annað árið í röð núna á Ljósanótt. Hannes er rétt tæpir
tveir metrar á hæð og vegur u.þ.b. 150 kíló. Hann ætlar sér að ná langt í heimi
aflrauna og er aðeins rétt að byrja.
Alltaf verið
með hálfgerða
kraftadellu
á milli keppenda. Það er alveg sama
hver á í hlut, það eru allir að hvetja
hvern annan áfram. Alltaf er verið
að ýta mönnum áfram til þess að
gera betur. Menn eru einbeittir
þegar þeir eru t.d. í ákveðinni grein
og þá er keppnisskapið til staðar.
En um leið og sú grein er búin þá
eru allir orðnir bestu vinir aftur,“
félagsskapurinn er því það sem
Hannes sækist hvað helst í.
Fær fisk og kjöt frá
fjölskyldunni
Um helgar sinnir Hannes dyragæslu
á skemmtistöðum og það segir
hann hjálpa til við aflraunirnar.
Hann hefur því nokkkuð sveigjan-
lega dagskrá á virkum dögum sem
gerir honum kleift að æfa mikið.
Hann fær mikinn stuðning og hjálp
frá sínum nánustu og m.a. hefur
hann verið að fá gefins fisk og kjöt
frá ættingjum sem vinna í slíkum
iðnaði, sem hann segir hjálpa sér
mikið.
Hann segir stemninguna í keppnum
eins og Vestfjarðarvíkingnum vera
einstaka en allir keppendur ferðast
saman í rútu á milli bæjarfélaga á
Vestfjörðum.
„Þar er maður að keppa gegn ansi
öflugum mönnum. Þar á meðal
mönnum eins og Hafþóri Júlíusi
Björnssyni og Stefáni Sölva sem
eru orðnir heimsklassa menn í afl-
raunum,“ segir Hannes. „Ef maður
ætlar sér að ná langt í aflraunum þá
verður maður að æfa þessar greinar
sem keppt er í, það er ekki nóg að
lyfta bara stönginni í ræktinni.“
Sumarið er tíminn sem flestar
aflaraunakeppnir fara fram og því
mun Hannes nýta veturinn vel til
æfinga. Hann ætlar sér að koma
enn öflugri inn í næsta sumar og
refsa lóðunum þangað til.
Hvernig er hópurinn sem er að
stunda aflraunir á Suðurnesj-
unum?
„Þetta er frekar lítill hópur. Hann
mætti alveg vera stærri því hér er
hellingur að öflugum strákum sem
gæti reynt fyrir sér í þessu. Maður
er þó alltaf að reyna að draga fleiri
með sér á æfingar og margir hverjir
eru hrifnari af aflraununum en
lyftingum. Í þessu reynir oft meira
á úthald en í almennum kraftlyft-
ingum, það er aðeins meira „action“
í gangi í þessu,“ segir þessi efnilegi
aflraunamaður að lokum.
Texti: Eyþór Sæmundsson • Ljósmyndir: Hörður Birkisson