Víkurfréttir - 06.09.2012, Blaðsíða 19
VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 6. SEPTEMBER 2012 19
Menningarráð Suðurnesja hefur ákveðið að efna til samkeppni um
auðkennismerki (logo). Merkið verður notað í kynningarstarfi
Menningarráðs í auglýsingar, á bréfsefni, á vefsíðu og annað
hefðbundið markaðs- og kynningarefni.
Öllum er frjálst að taka þátt í samkeppninni. Engin skilyrði eru sett við
hönnun merkisins önnur en þau að merkið þarf að geta gengið í einum lit.
Með tillögum á að fylgja stutt lýsing á hugmyndinni að auðkennismerkinu.
Einnig skal fylgja tillögunni í lokuðu umslagi, helstu upplýsingar um
eiganda tillögunnar s.s. nafn, símanúmer og netfang.
Skilafrestur er til kl. 16:00 föstudaginn 21. september 2012 og skal
tillögum skilað á skrifstofu Heklunnar, Grænásbraut 506, 235
Reykjanesbæ, merktar „lógó“.
Sveitarfélögin á Suðurnesjum standa að Menningarráði Suðurnesja í
samræmi við gildandi samstarfssamning sveitarfélaganna. Hlutverk
Menningarráðs er meðal annars að samræma aðgerðir á sviði
menningarmála á Suðurnesjum, standa fyrir öflugu þróunarstarfi í
menningarmálum og nýsköpun sem meðal annars styðji við
menningartengda ferðaþjónustu.
DÓMNEFND VELUR Á MILLI HUGMYNDA
Veitt verða 50.000 króna verðlaun fyrir vinningstillöguna
og verður merkið þá eign Menningarráðs.
Frekari upplýsingar veitir verkefnastjóri Menningarráðs Suðurnesja,
Björk Guðjónsdóttir s. 420-3288/894-1116 – netfang: bjork@heklan.is
SUÐURNES | GARÐUR | GRINDAVÍK | REYKJANESBÆR | SANDGERÐI | VOGAR
MENNINGARRÁÐ
SUÐURNESJA
EFNIR TIL SAMKEPPNI
UM AUÐKENNISMERKI
http://menning.sss.is
Ný námskeið í Gargandi snilld
Nánari upplýsingar veitir Guðný Kristjánsdóttir í síma 8691006 eftir kl.16.00 alla daga.
Kennt er í Frumleikhúsinu, Vesturbraut 17, Reykjanesbæ.
Námskeiðið er fyrir öll hress börn og unglinga á aldrinum 8-15 ára.
Kennsla hefst mánudaginn 17.september. Skráning fer fram á www.gargandisnilld.is
Nú eru að heast ný námskeið í leiklist, söng og tjáningu hjá Gargandi snilld. Eins og áður verða
tímarnir byggðir upp á hópei, leikjum og hinum ýmsu leiklistarængum með það að markmiði að
byggja upp og auka sjálfstraust þátttakenda. Auk þess verður farið í undirstöðuatriði í söng, notkun
hljóðnema, framkomu á sviði o.
Innifalið í námskeiðsverðinu er einn tími í hljóðveri þar sem þátttakendur fá að syngja lag að eigin vali
inn á disk sem þeir fá til eignar í lok námskeiðsins.
Unnið er í fámennum hópum, einu sinni í viku á mánudögum eða miðvikudögum, klukkustund í senn.
Framhalds og byrjendarhópar.