Víkurfréttir - 06.09.2012, Side 20
FIMMTUDAGURINN 6. SEPTEMBER 2012 • VÍKURFRÉTTIR20
Auglýst eftir
IPA-verkefnistillögum
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur auglýst eftir hugmyndum
að IPA-verkefnum á Íslandi en markmið þeirra er að undirbúa mögulega
þátttöku í uppbyggingarsjóðum ESB komi til aðildar að sambandinu.
Auglýst er eftir verkefnum á sviði:
Atvinnuþróunar og byggðamála
Velferðar- og vinnumarkaðsmála
Til ráðstöfunar eru u.þ.b. 8,3 milljónir evra. Stefnt er að því að verja þeim til allt að
20 verkefna um allt land á árinu 2013.
Verkefni skulu taka mið af „Ísland 2020“ stefnumörkuninni og vera unnin í samstarfi
a.m.k. þriggja aðila. Lágmarksstyrkur til hvers verkefnis er 200 þús. evrur og að hámarki
ein milljón evra.
Umsóknafrestur er til 30. nóvember 2012
Frekari upplýsingar um IPA og umsóknargögn eru aðgengileg á slóðinni:
www.byggdastofnun.is/ipa
➤
➤
➤ Kynningarfundir verða haldnir á eftirfarandi stöðum á næstunni:
Grand hóteli Reykjavík 10. september kl. 13-17.30
Háskólanum á Akureyri 11. september kl. 13-17.30
Hótel Héraði á Egilsstöðum 12. september kl. 13-17.30
Hægt verður að fylgjast með fundinum þann 11. september á vefsíðu Byggðastofnunar.
Fundirnir eru öllum opnir og aðgangur er ókeypis. Tilkynna þarf um þátttöku
á netfangið ipa@byggdastofnun.is með a.m.k. sólarhrings fyrirvara.
Við í árgangi ´56
höfum flest náð því að
verða 56 ára á árinu.
Jósefína varð 56 ára 30.
ágúst sl. Hún dó dag-
inn eftir. Hetjuleg bar-
átta fyrir lífinu endaði
með sigri dauðans.
Við kynntumst árið
1973, fyrir 39 árum,
þá 17 ára nemendur
í Héraðsskólanum í Reykholti.
Systa úr Axarfirði í norðri, ég frá
Eyjum í suðri að flýja eldgos í
heimabyggðinni. Bæði ættuð frá
Arnarhól í okkar heimabyggð.
Ég komst að því síðar að þetta
ár kynntist hún Magnúsi Torfa-
syni frá Miðhúsum í Garði sem
reynist vera frændi minn. Svona
er margbreytileiki lífsins, ýmist
leikur eða daður sem endaði með
ævitrúnaði og ást þeirra tveggja. Í
Ásbyrgi um sumarið var tónninn
gefinn. Ævintýrin héldu áfram
í þessari miklu náttúru, hóffari
Sleipnis sem varð þeirra sælu-
reitur. Markaði upphaf á traustu
og góðu sambandi við rauðgló-
andi geisla röðulsins sem seig í sæ
við ysta haf Axarfjarðar og fyrstu
ástarblossarnir geisluðu inn í líf
þeirra.
Kvöldið er fagurt, sól er sest
og sefur fugl á grein.
Við skulum koma vina mín
og vera saman ein.
Við Systa hittum aftur eftir 35
ár, vorið 2009 þegar við Sigga
fluttum í Garðinn. Við rifjuðum
upp góðar minningar, vökvuðum
vináttuna og fundum hvað það
var gott að hittast aftur. Hún færði
mér á skrifstofuna handunnið
tré í litlum potti. Hún vildi færa
mér lífsins tré sem ég gæti skýlt
mér við í stormum lífsins og ég
notið um leið fágaðs handbragðs
skólasystur minnar og gott að líta
upp úr erli dagsins. Við áttum
samleið í stjórn DS en hún vann
lengst af á Garðvangi
og var fulltrúi starfs-
fólksins í stjórninni.
Þar fann ég heiðar-
leika hennar og um-
hyggju fyrir því starfi
sem hún sinnti. Fyrir
gamla fólkinu sem
hún gaf allt af sér svo
það gæti átt ánægju-
legt ævikvöld í ná-
vist hennar. Seinna ætlaði hún
að njóta þess sama með Magga,
barnabörnunum og fjölskyldu.
Það varð ekki og nú hefur þessi
heilsteypta kona bundið bagga
hildar og kvatt okkur á besta ævi-
skeiði lífs síns. Þau áttu lengst af
heima við Sunnubraut 12 í Garði,
Systa og Maggi. Snyrtimennskan
þeim báðum í brjóst borin og
við innganginn blasti við hand-
málaður steinn. Hér búa Systa,
Maggi og Jóhann Daði. Steinum
og gróðri raðað snyrtilega upp,
allt hafið sinn stað. Húsið,
garðurinn og heimilið látlaust og
hógvært, í stíl við húsmóðurina
sem byggði fjölskyldunni fallegt
heimili. Þau voru samtaka hjón
og gerðu hlutina saman. Lífið og
ævikvöldið sem þau ætluðu að
lifa saman beið eftir þeim með
þeirri rómantík sem það hófst á.
Þau hófu samleiðina í Ásbyrgi á
fögru sumarkvöldi og kveðjast nú
hinstu kveðju eftir sólríkt sumar.
Blómin eru að gefa eftir en minn-
ingin lifir um góðan lífsförunaut.
Ég leiði þig í lundinn minn,
mín ljúfa, komdu nú.
Jörðin þó eigi ótal blóm.
Mín eina rós ert þú.
Nú skilja leiðir en minningin um
Systu lifir. Við söknum góðs vinar
og vottum Magnúsi og börnum
þeirra samúð.
Ásmundur Friðriksson
Sigríður Magnúsdóttir
Þegar sumri lýkur fara far-fuglarnir að hefja sig til flugs
og það sama má segja um söng-
fuglana í Kvennakór Suðurnesja.
Kórkonur eru reyndar aðeins
búnar að hita upp fyrir veturinn
með söng á Ljósanótt en kórinn
tók þátt í tónlistardagskrá í Duus-
húsum. Kvennakór Suðurnesja
hefur tekið þátt í hátíðinni frá
upphafi enda er þetta frábær
vettvangur fyrir menningarstarf
og skemmtileg leið til að kveðja
sumarið og hefja vetrarstarfið.
Kvennakórinn tók líka þátt í
Sandgerðisdögum en þar sáu
kórkonur um kósýkvöld kvenna
sem var haldið í sundlauginni í
Sandgerði og tókst það frábær-
lega. Góð mæting var enda flott
dagskrá í boði. Bláa lónið var með
kynningu á vörum sínum, lesið
var úr bókum frá bókaútgáfunni
Lesstofunni, glæsilegt happdrætti
með flottum vinningum, söngur
og tískusýning þar sem kórkonur
brugðu sér í hlutverk fyrirsætna
og sýndu föt frá hönnuðum af
Suðurnesjum.
Vetrarstarfið hefst síðan af fullum
krafti mánudaginn 10. september
en þá verður haldin opin æfing í
Listasmiðjunni, Keilisbraut 773 á
Ásbrú en þar er kórinn með æf-
ingaaðstöðu. Kvennakórinn hvetur
allar konur sem hafa áhuga á söng til
að kíkja við því þó það séu margar
skemmtilegar og söngelskar konur
í kórnum er nóg pláss fyrir fleiri.
Kórkonur ætla líka að slá upp Pá-
línuboði og verður eflaust ýmislegt
girnilegt á borðum. Æfingin hefst
kl. 20.
Kvennakór Suðurnesja er elsti starf-
andi kvennakór á landinu en hann
var stofnaður 22. febrúar 1968 og
verður því 45 ára í vetur. Dagskrá
vetrarins er ekki fullmótuð en gert
er ráð fyrir að kórinn komi fram á
tónleikum fyrir jólin auk þess sem
haldnir verða vortónleikar. Í febrúar
fara kórkonur í æfingabúðir í Skál-
holti. Ýmislegt fleira skemmtilegt er
á döfinni sem verður nánar kynnt
síðar.
Kórinn æfir á mánudögum kl. 20 og
raddæfingar eru á miðvikudögum
á sama tíma.
Þessa hvolpa vantar heimili strax
Tveir fallegir hvolpar, sem eru blanda af border collie og labrador, leita nú að nýju heimili
sem allra fyrst. Hvolparnir eru þriggja mánaða,
fæddir 10. júní sl. Um er að ræða tvær tíkur.
Þeir sem geta komið þessum hvolpum á nýtt heimili sem
allra fyrst eru hvattir til að hafa samband í síma 846 2525.
Jósefína Arnbjörnsdóttir
minning
Opin æfing hjá
Kvennakór Suðurnesja