Víkurfréttir - 06.09.2012, Blaðsíða 21
VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 6. SEPTEMBER 2012 21
Reykjavík
Grjóthálsi 10
Sími 590 6940
Reykjavík
Skeifunni 5
Sími 590 6930
Hafnarfjörður
Hjallahrauni 4
(við Helluhraun)
Sími 590 6900
Kópavogur
Skemmuvegi 6
(bleik gata)
Sími 590 6935
Reykjanesbær
Holtsgötu 52
(við Njarðarbraut)
Sími 590 6970
www.adalskodun.is
HJÁ AÐALSKOÐUN ER BÍLLINN
Í GÓÐUM HÖNDUM
HVAR HENTAR ÞÉR AÐ LÁTA SKOÐA?
Við erum með órar skoðunarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu og
eina í Reykjanesbæ. Þaulreyndir og þjónustuliprir fagmenn taka
á móti þér á þeim öllum. HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ ÞIG!
Aðalskoðun, faggildur skoðunaraðili í 18 ár
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
2
-1
6
8
6
Opið kl. 8-17 virka daga
18%
afslát
tur
af sko
ðuna
rgjald
i
í tilef
ni af 1
8 ára
afmæ
li
Aðals
koðu
nar
Ef þú kemur með bílinn í skoðun fyrir hádegi
í september færðu 18% afmælisafslátt.
ÚTBOÐ
HJÚKRUNARHEIMILIÐ
REYKJANESBÆ
Stærð hússins er 4.338 m².
Helstu magntölur eru:
Mót 13.000 m²
Steypa 1.700 m³
Steypustyrktarstál 180 tonn
Flísaklæðning 2.234 m²
Viðsnúið þak 1.380 m²
Verkinu skal vera lokið eigi síðar en 1. október 2013.
Útboðsgögn verða afhent rafrænt á verkefnavef verksins, lykilorð að útboðsgögnum veitir
Karl Á. Ágústsson karl@thg.is. Einnig er hægt að fá gögnin afhent á geisladisk frá
kl. 13:00 mánudaginn 3. september n.k. á skrifstofu THG Arkitekta Faxafeni 9, 108
Reykjavík.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Nesvalla Njarðarvöllum 4, 260 Reykjanesbæ
mánudaginn 24. september nk. kl. 11.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Reykjanesbær, óskar eftir tilboðum í uppsteypu og utanhússfrágang vegna byggingar á nýju
hjúkrunarheimili að Njarðarvöllum 2, Reykjanesbæ.
Verkið nær til að gera húsið fullfrágengið að utan og tilbúið fyrir innréttingar að innan.
Sátt í pólitík og pólitískri
umræðu var ákall
forseta vors við
innsetningu hans
í embætti. Skila-
boð sem eiga rétt
á sér þar sem heiðarleiki ríkir en
sátt næst ekki þar sem svik á svik
ofan eru vinnubrögð nýs meiri-
hluta í Garði.
Bæjarfulltrúar D-listans hafa sýnt
vilja til að vinna í sátt og standa við
sín loforð gagnvart kjósendum. Þeir
hafa lagt sig fram við að trúverðug-
leiki einkenni störf þeirra fyrir íbúa
Garðs. Að baki þeim stendur allur
D-listinn og 70% bæjarbúa.
En hvernig getur orðið sátt ef þeir
sem rændu völdunum og kenna
sig við íbúalýðræði en hafa sam-
kvæmt skoðanakönnunum aðeins
30% bæjarbúa að baki sér. Hvernig
getur sú sátt litið út þegar þeir sem
stjórna hafa ekki umboð til þess frá
kjósendum. Hvenær skiptir íbúa-
lýðræðið máli sem N- og L-listar
kenna sig við?
Kolfinna S. Magnúsdóttir rauf
samstarfið án allra skýringa fyrir
samstarfsfólki sínu og kjósendum
D-listans. Kolfinna seldi umboð
sitt og æru sem bæjarfulltrúi D-
listans og 55% kjósenda hans fyrir
persónulega hagsmuni sína. Þar
er algjörlega gengið framhjá hags-
munum annarra íbúa Garðs, meðan
hún skarar eld að eigin köku með
stuðningi L- og N-lista.
Það verður engin sátt fyrr en Kol-
finna S. Magnúsdóttir hefur gert
hreint fyrir sínum dyrum og skýrt
út fyrir íbúum Garðs á íbúafundi
hverjar voru hinar raunverulegu
ástæður brotthvarfs hennar úr
meirihluta D-lista. Sú staðhæfing
að ágreiningur í málefnum skólans
sé orsökin er uppspuni og á ekki
við rök að styðjast. Það vita bæjar-
fulltrúar L- og N-lista.
Nú hefur meirihlutinn svikið það
loforð bæjarstjórnar Garðs að farið
verði að ábendingum um úrbætur
sem fram komu í úttekt um starf-
semi Gerðaskóla í nýlegri skýrslu
Mennta- og menningarmálaráðu-
neytisins. Það var kveðið á um
að nýtt stjórnunarteymi kæmi að
skólanum. Sömu stjórnendur hafa
verið endurráðnir og nýr skólastjóri
fellur á fyrsta prófinu. Gera má ráð
fyrir að á næstunni birtist greinar
um sannleikann í því máli. Þetta
eru alvarlegustu svik Kolfinnu S.
Magnúsdóttur og meirihlutans við
nemendur Gerðaskóla og foreldra
þeirra. Við allt samfélagið í Garði.
Skoðanamunur kjörinna fulltrúa
er eðlilegur og mikilvægt að sem
flestar skoðanir fái umræðu og þær
virtar. Að rökræða og rýna til gagns
er merki um þroska stjórnmála-
manna án ósættis eða persónu-
legrar hagsmunagæslu. Þar skilur
í milli bæjarfulltrúa D-listans og
meirihlutans í Garði. Þar sannast
máltækið að hver uppsker eins og
hann sáir. Að reita illgresið í sínum
eigin garði og henda því yfir í garð
nágrannans verður ekki til þess að
rósaskrúði vaxi og dafni. Illgresið
leitar alltaf upprunans og kemur
upp um eigandann að lokum og
svartir hrafnar kætast. Ef það verða
þau vinnubrögð sem nýr meirihluti
í Garði ætlar áfram að vinna eftir
verður engin sátt.
Ef heiðarleg umræða, niðurstaða
löglegs meirihluta fær ráðið í Garð-
inum mun D-listinn vinna í sátt
að hagsmunum sveitarfélagsins og
íbúa þess eins og ákall forseta vors
benti svo réttilega á.
Ásmundur Friðriksson.
Fv. bæjarstjóri í Garði.
›› Ásmundur Friðriksson skrifar:
Getur orðið sátt?
Slípirokkur hljóp í hönd
Slípirokkur hljóp í hönd manns
sem var við vinnu sína í íþrótta-
húsi í Reykjanesbæ. Maðurinn var
að skera stálbita þegar óhappið
varð. Hann hlaut skurð á hendi og
fór á Heilbrigðisstofnun Suður-
nesja til aðhlynningar. Þaðan fór
hann á Landspítala þar sem áverk-
arnir voru rannsakaðir nánar.
Innbrot í golfskála
Brotist var inn í golfskálann í
Grindavík á dögunum. Þegar
lögreglan á Suðurnesjum kom
á vettvang mátti sjá að gluggi
hafði verið spenntur upp með
spýtu, sem lá fyrir neðan hann.
Ekki liggur enn ljóst fyrir hvort
einhverju var stolið, en lög-
regla rannsakar málið.
Áfengisþjófur tekinn
Þjófnaður á áfengi var tilkynntur
til lögreglunnar á Suðurnesjum
í vikunni. Karlmaður hafði
komið inn í vínbúðina í Njarðvík,
tekið þar áfengispela og látið sig
hverfa án þess að borga. Lýsing
á manninum lá fyrir og fann
lögregla hann skömmu síðar.
Hann var færður á lögreglustöð,
þar sem tekin var af honum
skýrsla, og honum síðan sleppt.
›› FRÉTTIR ‹‹
Daglegar fréttir
www.vf.is
Fimmtudagskvöldið 13. september ætla frumkvöðlar og hönnuðir í Eldey á Ásbrú að bjóða til Kaffihúsakvölds frá kl 20-22.
Kl 20.15 mun Brynja Aðalbergsdóttir leikskólastjóri segja frá masters-
vegkefni sínu „Viltu biðja jólasveininn um að gefa mér íslenskt nammi í
skóinn?" en þar segir af „kanamenningu" í Keflavík og samfélagslegum
áhrifum af setu varnarliðsins á Miðnesheiði á menningu og daglegt líf.
Frumkvöðlar og hönnuðir sýna verk sín og eru vinnustofur opnar að fyrir-
lestri loknum.
Kaffi og heimabakað á staðnum gegn frjálsu framlagi.
Kaffihúsakvöld í Eldey eftir viku