Víkurfréttir - 15.11.2012, Síða 2
fimmtudagurinn 15. nóvember 2012 • VÍKURFRÉTTIR2
FRÉTTIR VIKUNNAR
n Jarðvangur stofnaður á Reykjanesi:
Stu
tta
r
LISTA-
MANNSLEIÐSÖGN
Þorbjörg Höskuldsdóttir tekur á móti gestum
sunnudaginn 18. nóvember kl. 15:00 og leiðir þá í
gegnum sýningu sína Ásýnd fjarskans, í sýningarsal
listasafnsins í Duushúsum.
Allir velkomnir – heitt á könnunni.
MENNINGAR-
VERÐLAUN
REYKJANESBÆJAR
Föstudaginn 16. nóv. kl. 17.00 verða
menningarverðlaun Reykjanesbæjar, Súlan, afhent í
Listasal Duushúsa.
Styrktaraðilar Ljósanætur, stjórnir menningarhópa og
aðrir velunnarar menningarlífs bæjarins
eru velkomnir.
ATVINNUMAÐUR Í
KNATTSPYRNU?
Norræna bókasafnavikan verður í ár helguð ungum
knattspyrnuiðkendum. Í kvöld, fimmtudaginn
15. nóvember kl. 19:30 verður dagskrá á Bókasafninu
helguð atvinnumennsku í knattspyrnu. Lesið verður úr
ævisögu Zlatan Ibrahimović og knattspyrnumennirnir
Jóhann B. Guðmundsson og Ómar Jóhannsson
segja frá atvinnumennsku og kynnum sínum af Zlatan.
Léttar veitingar í boði.
ÓKEYPIS
FJÖLSKYLDUTÓN-
LEIKAR Í STAPA
Laugardaginn 17. nóv. kl. 14:00 verða ókeypis
fjölskyldutónleikar í Stapa, einkum ætlaðir börnum
6-12 ára.
Á efnisskránni eru Pétur og úlfurinn eftir S. Prokofiev
og Sagan af tréblásturshljóðfærunum eftir
R.Goldfaden. Verkin eru flutt af hljóðfæraleikurum og
sögumanni.
Tónleikarnir eru samstarfsverkefni Tónlistarskólans,
Tónlistarfélagsins, menningarsviðs og Félags
íslenskra tónlistarmanna.
Geopark
Bíll VAlT mIllI
AKBRAUTA á
ReyKjANesBRAUT
Mikil mildi þykir, að ekki skyldi verða slys á fólki,
þegar jepplingur með bílstjóra
og þrjá farþega valt við Kúagerði
á Reykjanesbraut á mánudags-
kvöld. Fólkið var að koma úr
Bláa lóninu þegar óhappið varð.
Afturendi bílsins, sem ekið var á
hægri akrein, rann til og við það
missti ökumaður stjórn á honum.
Bíllinn fór yfir vinstri akrein og
þaðan yfir hvilftina og upp á veg
hinum megin, í veg fyrir umferð
sem kom úr gagnstæðri átt. Öku-
maðurinn sá bifreið koma á móti
sér og reyndi að beygja aftur til
baka með þeim afleiðingum að
bifreiðin valt á hliðina. Öku-
maður bifreiðarinnar sem kom
úr gagnstæðri átt, náði að hægja
ferðina og beygja út á vegöxl til
að koma í veg fyrir árekstur.
Nokkur atvik af svipuðu tagi
hafa orðið á þessum vegarkafla á
undanförnum árum, en á honum
eru engin vegrið milli akbrauta.
Starfssvið:
• Framleiðsla á brauði,
sætabrauði, kökum o.fl.
• Starfsemi hefst kl. 5:30.
• 100% starf og aukavinna
í boði.
Hæfniskröfur:
• Reynsla af matvælavinnslu.
• Þarf að leysa fjölbreytt og
krefjandi verkefni.
• Þarf að geta unnið sjálfstætt
Góð laun og afkastahvetjandi
launakerfi.
Umsækjendur þurfa að tala
íslensku eða góða ensku.
Upplýsingar veitir:
Ásmundur í síma 659-3001
Valgeirsbakarí
Hólagötu 17, Njarðvík.
BAKARI
ÓSKAST TIL
STARFA
Sjálfseignarstofnun um jarð-vang á Reykjanesi var form-
lega stofnuð í Bláa lóninu á þriðju-
dag. Lengi hefur verið unnið að
stofnun jarðvangs á Reykjanesi.
Á undanförnum mánuðum hefur
verið unnið að umsókn um aðild
að Samtökum evrópskra jarð-
vanga (European Geoparks Net-
work) sem er hluti sambærilegs
nets alþjóðlegra jarðvanga undir
verndarvæng UNESCO.
Í undirbúningshópi verkefnisins
hafa átt sæti fulltrúar sveitarfélag-
anna á Suðurnesjum, þ.e. Grinda-
víkurbæjar, Reykjanesbæjar, Sand-
gerðisbæjar, Sveitarfélagsins Garðs
og Sveitarfélagsins Voga. Þá hafa
komið að verkefninu fulltrúar
fræða- og atvinnulífs á svæðinu,
þ.e. Ferðamálasamtaka Suðurnesja,
Bláa lónsins, HS Orku, Keilis - mið-
stöðvar vísinda, fræða og atvinnu-
lífs auk Heklunnar - atvinnuþró-
unarfélags Suðurnesja.
Áhersla jarðvangsins er á að byggja
upp vandaða ferðaþjónustu og
fræðslu tengt einkennum svæðis-
ins, einkum jarðfræðinni, í sam-
vinnu við hagsmunaaðila. Þá mun
jarðvangurinn verða öflugt tæki í
markaðssetningu á svæðinu.
Í stjórn Jarðvangs á Reykjanesi eru
Róbert Ragnarsson frá Grindavík,
Guðlaugur H. Sigurjónsson frá
Reykjanesbæ og þeir Magnús Stef-
ánsson og Helgi Haraldsson fyrir
Sandgerði, Garð og Voga. Þá eru
þau Berglind Kristinsdóttir, Júlíus J.
Jónsson og Kristján Pálsson einnig
í stjórninni fyrir aðra aðila sem eiga
í jarðvanginum.
Tónlistarskóli
Reykjanesbæjar
Hausttónleikar
Lúðrasveitarinnar
BÍóTónleIKaR
Hausttónleikar Lúðrasveitar Tónlistarskóla Reykjanes-
bæjar verða haldnir þriðjudaginn
20. nóvember nk. kl.19.30 í Stapa,
Hljómahöllinni. Fram koma
yngsta, mið og elsta sveit.
Það kennir ýmissa grasa í efnis-
skrá sveitanna á þessum tónleikum,
en þó einkennast þeir af ríkjandi
þema, sem er kvikmyndatónlist.
Jafnframt verða sýnd myndskeið úr
viðkomandi kvikmyndum. Búast
má við skemmtilegri stemmningu
og líflegum tónleikum.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill. Allir áhugasamir eru ein-
dregið hvattir til að mæta og taka
með sér gesti.
Fjölskyldutón-
leikar í Stapa
Tónlistarskóli Reykjanes-bæjar, Tónlistarfélag Reykja-
nesbæjar og Menningarsvið
Reykjanesbæjar standa að fjöl-
skyldutónleikum laugardaginn
17. nóvember nk. í samstarfi við
Félag íslenskra tónlistarmanna,
FÍT. Á tónleikunum kemur fram
Kammerhópurinn Shehérazade
sem er blásarakvintett, ásamt
Sigurþóri Heimissyni leikara,
sem er sögumaður á tónleik-
unum. Tónleikarnir verða í Stapa
kl.14.00 og eru u.þ.b. 50 mínútna
langir.
Á efnisskrá tónleikanna verða
verkin „Saga tréblásturshljóðfær-
anna“ eftir Goldfaden og „Pétur og
úlfurinn“ eftir Prokofiev.
Allir eru velkomnir á tónleikana.
Aðgangur er ókeypis.
- Ítarlegri útgáfa af
tilkynningunni er á vf.is
Bílabúð Benna og Nesdekk
í Re ykjanesbæ
t a k a v e tu r i n n
með trompi og
b j ó ð a S u ð u r -
n e s j a - b ú u m á
langan bíladag
laugardaginn 17. nóvember.
Margt áhugavert verður í gangi,
að Njarðargötu 9, allan daginn:
1000 lítra kaupaukar með nýjum
Chevrolet Cruze, kjarakaup á
bílaleigubílum í ábyrgð, sértil-
boð á notuðum bílum, afsláttur af
vetrardekkjum
og umfelgunum
ásamt sértilboði á
rúðuþurrkum og
-vökva.
Auk þess verður á
staðnum ókeypis
léttþrif á bílum
sýningargesta.
Þeir sem reynsluaka Chevrolet í
nóvember lenda í verðlaunapotti
og geta unnið 100 lítra af bensíni.
Kaffi og með því verður á boð-
stólum. Allir hjartanlega velkomnir
á Njarðarbraut 9 í Reykjanesbæ.
langur bíladagur hjá Bíla-
búð Benna og Nesdekkjum
Áhersla jarðvangsins er
á að byggja upp vand-
aða ferðaþjónustu
Frá undirritun stofnsamnings um jarðvang á Reykjanesi.
VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson