Víkurfréttir - 15.11.2012, Blaðsíða 15
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 15. nóvember 2012 15
Ingibjörg
Elva leggur
skóna á hilluna
Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir
leikmaður Njarð-
víkinga í Dom-
inos-deild kvenna
í körfubolta hefur
ákveðið að leggja
skóna á hilluna. Ástæðan mun
vera þrálát meiðsli í hné sem hafa
plagað hana.
„Þetta var vissulega gríðarlega erfið
ákvörðun en ég verð að hugsa til
framtíðar varðandi mig sjálfa,“
sagði Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir
í samtali við vefsíðuna Karfan.is
„Ég meiddist á ökkla í leik fyrir
skömmu en hef náð mér af því en
þetta eru þrálát meiðsli sem ég hef
verið að glíma við síðan í mars sem
hafa verið að plaga mig. Þetta eru
álagsmeiðsli og læknar segja þetta
örvefsmyndun í hnénu,“ sagði Ingi-
björg enn fremur.
Þessar fréttir eru svo sannarlega
enn ein blóðtakan á liði tvöfaldra
meistara UMFN sem hafa núna
horft á eftir nánast öllu sínu
byrjunarliði síðan í fyrravetur. Ingi-
björg sem 24 ára gömul mætti aftur
til leiks í heimahaga í Njarðvík í
fyrra eftir barnsburð.
Njarðvíkingar hafa þó fengið liðs-
styrk því Svava Ósk Stefánsdóttir
hefur ákveðið að taka fram skóna
og leika með Njarðvík í vetur. Svava
Ósk er uppalin Keflvíkingur og lék
síðast með Keflavík tímabilið 2009-
2010. Hún hefur eignast tvö börn
undanfarin ár en ætlar að taka fram
skóna á ný og leika í grænu það sem
eftir lifir tímabilsins.
Ásmundur Ernir valinn
efnilegasti knapi ársins
Mánamaðurinn efnilegi Ásmundur Ernir Snorrason var valinn efnilegasti knapi ársins 2012 á uppskeru-
hátíð hestamanna sem fram fór á Broadway laugardaginn
10. nóvember síðastliðinn.
Ásmundur Ernir náði mjög góðum árangri á nýliðnu keppnis-
tímabili og varð m.a. í öðru sæti á Landsmótinu í sumar í ungmennaflokki.
Einnig varð hann þrefaldur Íslandsmeistari á Íslandsmótinu á Hellu og
náði mjög góðum árangri á flestum mótum sem hann tók þátt í á þessu
ári.
SPORT
LEIKSKÓLINN
TJARNARSEL
ATVINNA
Leikskólinn Tjarnarsel óskar eftir leikskólakennara í
100% starf til a.m.k. eins árs. Hann þarf að geta hafið
störf eigi síðar en 1. desember. Til greina kemur að
ráða starfsmann með aðra menntun eða reynslu af
starfi í leikskóla.
Lögð er áhersla á fjölbreytta starfs- og kennsluhætti
og megin áherslur eru á mál og læsi, lýðræði og
mannréttindi, umhverfismennt og útinám.
Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um
starfið.
Umsóknarfrestur er til 29. nóvember.
Sækja skal um starfið á vef Reykjanesbæjar.
Nánari upplýsingar veitir leikskóla- og aðstoðarleik-
skólastjóri Tjarnarsels og einnig má nálgast upplýsingar
um leikskólann, á vefsíðunni, www.tjarnarsel.is.
TÓNLISTARSKÓLI
REYKJANESBÆJAR
HAUSTTÓNLEIKAR LÚÐRASVEITARINNAR
Bíótónleikar
Þriðjudaginn 20. nóvember kl. 19:30 í Stapa,
Hljómahöllinni.
Fram koma yngsta-, mið- og elsta sveitin.
Þema tónleikanna verður kvikmyndatónlist af ýmsum
toga sem leikin verður með stiklum úr viðeigandi
kvikmynd.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Áhugasamir eru
hvattir til að mæta og taka með sér gesti.
Skólastjóri
SAMSTARF ER
LYKILL AÐ ÁRANGRI
Opinn fundur fyrir hönnuði, tæknimenn, iðnaðarmenn
og eftirlitsaðila um nýja byggingareglugerð,
samræmingu eftirlits og leiðir til aukinna samskipta
innan byggingageirans.
Icelandair Hótel Keflavík, Hafnargötu 57
16. nóvember kl. 13.00 – 17.00
Dagskrá:
Meistaradeildar Samtaka iðnaðarins
Mannvirkjastofnunar
Mannvirkjastofnunar
Umræður og fyrirspurnir
Fundarstjóri, Orri Hauksson framkvæmdastjóri SI
Léttar veitingar
Holtsgötu 24 - 260 Reykjanesbæ Sími: 421 5010
Meistaraf lokkur
karla og kvenna
hjá körfu-
knatt leiksdei ld
Njarðvíkur notar
ís lenskt
fæðubótarefni
án al l ra aukefna
Krakkaskák æfingar eru í 88 húsinu á laugardögum og
miðvikudögum og hafa gengið
mjög vel. Einnig eru æfingar í
báðum grunnskólum Grinda-
víkur á föstudögum. Í vor fór
ég í sjö skóla á Suðurnesjum í
nokkur skipti. Það er mjög gaman
að koma í skólana og skynja ég
mikinn áhuga. Börn hafa áhuga
fyrir því að tefla í skólanum, bæði
strákar og stelpur og taflborðin
sem skólarnir eiga eru í stöðugri
notkun. Eftir nokkrar vikur sá
ég að mér myndi aldrei takast að
halda út að mæta í alla skólana
og úr varð ákvörðun um að bjóða
öllum krökkunum á einn stað og
hafa það tvisvar í viku, tvo tíma í
senn, samtals fjögurra tíma æfing
í staðinn fyrir eina klukkustund
á viku sem er auðvitað miklu
markvissari skákæfing. Þarna
hafa börnin tækifæri á því að hitta
önnur börn úr öðrum skólum og
fá miklu meiri skákþjálfun. Það
eru ekki allir krakkar sem finna
sig í því að mæta utan skóla án
félaga sinna í markvissa skákæf-
ingu. Það er frábært fyrir þá sem
hafa mikinn áhuga enda er kjarni
af krökkum sem mætir alltaf og
nær miklum og hröðum árangri.
Markmiðið er að kynna skákina
fyrir flestum og gefa sem flestum
tækifæri á að fá kennslu í skák og
þannig getur myndast stór hópur
sem teflir á mótum og þannig geta
skólarnir myndað lið og gert margt
skemmtilegt. Félag eldri borgara
á Suðurnesjum hefur í hyggju að
halda utan um skákkennlsu í ein-
hverjum skólum á Suðurnesjum
ásamt því að kenna börnum margt
annað eins og brids og önnur spil.
Mánudaginn 19. nóvember, mun
ég halda fyrirlestur í húsnæði
Miðstöðvar símenntunar á Suður-
nesjum um skákkennslu og hvet
alla skólastjórnendur, kennara, for-
eldra og þá sem hafa áhuga fyrir því
að koma upp skákkennslu innan
skólaveggjanna til þess að mæta
og kynna sér málin um hvernig er
hægt að ná því markmiði.
Æfingar í 88 húsinu eru: Eldri
hópur 9 -15 ára á laugardögum kl.
10-12 og á miðvikudögum kl.16-
18. Yngri hópur 6-8 ára á laugar-
dögum kl.12:15 -13:15. Æfingar eru
ókeypis og allir velkomnir.
Siguringi Sigurjónsson
Hvítur mátar svartan í 4 leikjum í
svokölluðu ”kæfingarmáti”.
Lausn: Rf7+ Kg8 Rh6+ Kh8 Dg8+
Hxg8 Rf7# Kæfing með riddaranum.
Skákkennslan á Suðurnesjum