Víkurfréttir - 15.11.2012, Blaðsíða 16
vf.is
Fimmtudagurinn 15. nóvember 2012 • 45. tölublað • 33. árgangur
auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001
Opið alla miðvikudaga frá kl. 8:00 – 16:00
Tímapantanir í síma 426 8540
Opið virka daga frá kl. 8:00 – 17:00
Frjáls mæting
Gríptu
tækifærið
Í gegnum tíðina hafa mér verið ákaflega mislagðar hendur við að
grípa tækifærin.
F lest i r s tanda
f r a m m i f y r i r
þv í , e i n hv e r n
tímann á ævinni,
að hafa val um
að hrökkva eða
stökkva. Ákveða
að taka áhættuna
eða vera „pas-
sívur“ og doka við. Bíða og sjá. Ef til
vill sjá hvað hinir ætla að gera. Vera
eins. Tækifærin liggja alls staðar.
Skiptir litlu máli hvar þú ert í lífinu.
Alla vega hef ég trú á því. Upplifi
þau daglega og horfi á þau líða hjá.
Humma hlutina fram af mér allt
of lengi. Eins og hálfviti. Sé eftir
því alla ævi ef ákvörðunin er röng.
Að slá ekki til. Ohhhh, ég hefði átt
að....!
Stefnan var tekin á að klára stúdentinn. Ákveða síðan hvað
gera skyldi í framhaldinu. Fram-
undan frábærir tímar í háskól-
anum. Að nema það sem hugur
og hjarta stóð til. Stórskemmtilegt
nám senn að baki í Fjölbrautaskól-
anum. Sálfræðitímarnir stóðu upp
úr. Konráð hafði einstakt lag á að
gera námið skemmtilegt. Endalaus
ritgerðarsmíð. Hægt að sökkva
sér í óendanleika sálfræðinnar og
lemja hugrenningarnar á ritvélina.
Skreyta ritgerðirnar með myndum
og tilvísunum. Einn í herberginu á
Hraunsveginum. Ég ætlaði að verða
kennari. Enginn vafi. Umsóknin
samþykkt. Svo kom hann. Út-
skriftarneminn úr Kennaraháskól-
anum. Í tíma hjá okkur. Ég spjallaði
við hann um kennaranámið. Bað
mig alfarið að gera eitthvað annað.
Launin væru ekki þess verð. Fram-
tíðin óljós. Það dó eitthvað innra
með mér.
Sama vetur fékk ég bréf frá Golf-sambandinu. Vinsamlega beð-
inn um að koma á landsliðsæfingar.
Æfingarnar haldnar í íþróttahús-
inu í Hagaskóla. Ég varð spenntur.
Árin í Leirunni höfðu verið góð og
skilað mér frábærum árangri. Ég
hafði háleit markmið til framtíðar
í íþróttinni sem hafði heltekið huga
minn og hjarta. Endalaus vinna og
æfingar. Taldi mig hafa þetta í mér.
Mætti spenntur á fyrstu æfingarnar.
Hvað er þetta, engar sveiflur, engar
kylfur? Gekk bara út á þrekæfingar
og líkamlegt puð. Skildi þetta engan
veginn. Fannst ég alveg nógu þrek-
inn til þess að þurfa ekki að standa
í svona löguðu. Meiri vitleysan.
Hætti eftir nokkrar æfingar. Hann
veit nú ekkert hvað hann er að gera
þessi þjálfari!
Árin líða og lífið heldur áfram sinn vanagang. Ég lít til baka
og innst inni hverfur hugurinn
aftur í tímann og gerir upp fortíð-
ina. Sáttur eða ósáttur? Allt spurn-
ing um hvernig lífið hefur leikið
við þig. Eitt er þó víst, að tækifærin
bíða mín ennþá. Bara önnur.
VALUR KETILSSON SKRIFAR
FIMMTUDAGSVALS
MARTA EIRÍKSDÓTTIR
Æskuminningarúr bítlabænum Keflavík
Mei míbeibísitt?
Geggjuð bók!
Lífleg og hnitm
iðuð frásögn.
- Þorsteinn Eggertsson
VÍKURFRÉTTIR EHF.
2012
MARTA EIRÍKSDÓTTIR
M
ei m
í beibísitt?
Mei mí beibísitt?er söguleg skáldsaga úr Keflavík sem gerist á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar. Höfundur rifjar upp og segir frá daglegu lífi barnanna í götunni þar sem hún bjó. Þetta eru minningar um horfna veröld, þar sem skapandi kraftur barnanna sá um að skemmta þeim sjálfum daglangt á sumrin.
Höfundur bókarinnar, Keflvíkingurinn Marta Eiríksdóttir, er vel þekkt fyrir öflugt
námskeiðahald á vegum Púlsins en einnig fyrir jákvæð og skemmtileg viðtöl, sem
birst hafa eftir hana í Víkurfréttum undanfarin tuttugu ár. Mei mí beibísitt? er önnur bók höfundar en fyrsta bók Mörtu Becoming
Goddess – Embracing Your Power! kom út á ensku, á vegum Balboa Press, deild
innan Hay House í Bandaríkjunum sumarið 2012.
Bókakynning
Marta Eiríksdóttir les í fyrsta sinn opinberlega upp úr nýrri bók sinni
Mei mí beibísitt?
á göngugötunni í Kjarna, Flughóteli Keflavík
laugardaginn 17. nóvember frá kl. 15:00 - 17:00.
Marta gefur bókina út í samvinnu við Víkurfréttir.
Höfundur áritar bókina fyrir þá sem vilja
tryggja sér eintak fyrir jól!
- Tónlistaratriði
- Léttar veitingar
og fleira skemmtilegt á dagskrá.
Okkur þætti vænt um að sjá þig!
Marta og Víkurfréttir.