Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.11.2012, Qupperneq 11

Víkurfréttir - 15.11.2012, Qupperneq 11
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 15. nóvember 2012 11 Jóhann Ein-varðsson var fyrsti bæjarstjór- inn sem ég starfaði með á mínum starfs- ferli í Keflavík, Njarðvík og Reykjanesbæ. Jóhann var sterkur leiðtogi, góður bæjarstjóri og samstarfs- maður. Við störfuðum saman í 10 ár eða þangað til hann tók sæti á Alþingi. Samstarf okkar hélt áfram í Framsóknarflokknum en eftir að við hættum bæði af- skiptum af stjórnmálum hafa samskiptin minnkað. Vinátta okkar var þó með þeim hætti að þegar við hittumst var ávallt eins og við hefðum síðast hist í gær. Jóhann var vandaður maður, sýndi samstarfsfólki sínu virðingu og traust. Hann hafði sérstakan húmor sem hann fór vel með. Ég er afar þakklát fyrir þau ár sem ég hafði hann sem lærimeistara og ég segi gjarnan að það búi ekki allir svo vel að hafa notið hand- leiðslu átta frábærra bæjarstjóra í háskóla lífsins. Ég lít gjarnan á Jóhann sem rektor í þeim hópi. Ég votta Guðnýju og fjölskyldunni allri innilegrar samúðar. Hjördís Árnadóttir Jóhann Einvarðsson félagi okkar í Lionsklúbbi Keflavíkur er látinn. Jóhann gekk upphaflega í Lions- klúbb Ísafjarðar árið 1967 er hann var þar bæjarstjóri. Árið 1970 tók hann við sem bæjar- stjóri í Keflavík og færði sig þá yfir í Lionsklúbb Keflavíkur. Jóhann gegndi fjölda embætta á vegum Lionshreyfingarinnar. Hann var verkefnafulltrúi fjölumdæmisins 1991-1992. Hann var framkvæmda- stjóri landssöfnunar Rauðu fjaðrarinnar 1991. Jóhann var fjölumdæmisgjaldkeri 1992-1993 og umdæmisstjóri var hann 1994-1995. Þá gegndi hann einnig embættum fyrir klúbbinn sinn: Hann var ritari klúbbsins 1975-1976, for- maður 1986-1987 og aftur 2005-2006. Þá var hann stallari klúbbsins 2009-2010. Jóhann var aftur ritari klúbbsins 2012-2013. Jóhann var gerður að Melvin Jones félaga árið 2005 en það er æðsta viðurkenning sem klúbbur getur veitt félaga sínum. Upptalning þessi segir okkur auðvitað að Jóhann Einvarðs- son eyddi drjúgum tíma sínum í starf fyrir Lionshreyfinguna. Hann var góður félagi og það var gott að vinna með honum. Ég minnist þess fyrir margt löngu þegar við félagar gengum í hús og seldum ljósaperur. Hann var drjúgur sölumaður, kannski drýgstur okkar allra enda þekkti hann hver einasti maður í Keflavík. Síðar breyttust áherslur okkar í sölu- mennskunni en alltaf tók Jóhann fullan þátt í öllu okkar starfi eins og kostur var þrátt fyrir miklar annir en hann sat á Alþingi um árabil. En umfram allt var Jóhann ein- staklega góður félagi og vinur sem gott var að leita til. Hann var skemmtilegur, hress og léttur, átti auðvelt með að létta mönnum lund með skemmtilegum sögum og leggja gott til mála. En nú söknum við vinar í stað. Starfið mun breytast þegar svo sterkur einstaklingur hverfur af vettvangi. Hafðu þökk vinur fyrir sérlega ljúft samstarf. Ég votta fjölskyldu Jóhanns samúð mína, börnum hans og fjölskyldum þeirra og alveg sér- staklega Guðnýju eiginkonu hans. Ég geri mér grein fyrir þeirri til- finningu sem grípur hjartað er sá tapast sem alls ekki má missa, þegar sá hverfur sem gefið hefur lífinu stóran hluta af tilgangi sínum. f.h. Lionsklúbbs Keflavíkur Gylfi Guðmundsson formaður BJÖRGVIN HEFUR STAÐIÐ MEÐ OKKUR – NÚ STÖNDUM VIÐ MEÐ HONUM! Björgvin G. Sigurðsson 1. þingmaður Suðurkjördæmis hefur barist af miklum krafti fyrir uppbyggingu á Suðurnesjum. Tryggjum öflugum baráttumanni örugga kosningu í 1. sæti. Meðal þeirra mála sem Björgvin hefur barist fyrir eru: Stuðningsmenn Björgvins G. Sigurðssonar. - Álver í Helguvík - Gagnaver á Ásbrú - Aukin fjárframlög til Keilis - Samningsgerð við Fisktækniskólann í Grindavík - Aukin framlög til FS - Kísilver í Helguvík - Orkunýting á Suðurnesjum - Auknar fjárveitingar til HSS - Lagning Suðurstrandavegar FÉLAGS- OG FAGGREINAFUNDUR verður haldinn í sal Kaffi Duus Grófinni Reykjanesbæ, fimmtudaginn 15. nóvember kl. 20:00. Dagskrá: 1. Kjaramál 2. Lífeyrissjóðsmál 3. Önnur mál Kaffiveitingar Stjórnin Jósebína Gunnlaugsdóttir, Gunnlaugur Gunnlaugsson, Kristjana Sigurðardóttir, Hafdís Gunnlaugsdóttir, Róbert Svavarsson, Karl Hólm Gunnlaugsson, Sigurveig Þorsteinsdóttir, Sævar Gunnlaugsson, Selma Kristjánsdóttir, og aðrir aðstandendur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Guðmunda Sumarliðadóttir, lést á Hjúkrunarheimilinu Hlévangi, Faxabraut 13, Reykjanesbæ, 11. nóvember sl. Jarðsungið verður frá Ytri Njarðvíkurkirkju mánudaginn 19. nóv. nk. og hefst athöfnin kl. 13:00. Starfsfólki Hlévangs viljum við senda okkar bestu þakkir fyrir frábæra umönnun og sérstaka hlýju þann tíma sem Munda bjó hjá ykkur. Jóhann Einvarðsson – minning fæddur 10.8.1938 – dáinn 3.11.2012 MINNING Útför Jóhanns Einvarðssonar fór fram frá Njarðvíkurkirkju á mánudag. Sr. Hjálmar Jónsson jarðsöng. Oddfellowbræður úr stúkunni nr. 13 Nirði báru kistu Jóhanns. F.v.: Árni Þ. Þorgrímsson, Hilmar Pétursson, Elías Jóhannsson, Björn Bjarnason, Skúli Þ. Skúlason, Páll Ketilsson, Kjartan Már Kjartansson og Gunnar Kristjánsson.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.