Víkurfréttir - 21.11.2013, Page 8
fimmtudagurinn 21. nóvember 2013 • VÍKURFRÉTTIR8
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar – KADECO
Auglýsir
Óskað er eftir tilboðum í verkið „Bygging 2045 – Niðurrif og brottflutningur“.
Bygging nr. 2045 er um 350 m² stálgrindarskemma á steyptum sökkli.
Verktaki skal rífa og fjarlægja bygginguna fyrir 9. febrúar 2014.
Bjóðendum er heimilt að nýta það
sem þeir telja heillegt af byggingarefni svo sem stálbita og ása o.fl.
Verkkaupi tekur þó enga ábyrgð á gæðum efnisins.
Útboðsgögn verða seld á kr. 5.000, (aðeins á geisladiski) og er hægt að kaupa þau
á Verkfræðistofu Suðurnesja ehf, Víkurbraut 13 230 Reykjanesbæ.
Tilboð skulu hafa borist til skrifstofu Verkfræðistofu Suðurnesja ehf, eigi síðar en
mánudaginn 9. desember 2013 kl. 11:00 og verða þau þá opnuð þar
að viðstöddum bjóðendum.
Laus störf í leikskólum hjá Skólum ehf.
Allir leikskólar Skóla ehf. starfa eftir Heilsustefnunni og leggja ríka áherslu á heilsueflingu, jákvæðan
skólabrag og öflugt lærdómssamfélag þar sem samvinna og gleði ríkir. Því leitum við að samstarfsfólki sem:
• Er tilbúið til að tileinka sér starfsaðferðir leikskólans
• Hefur áhuga á heilsueflingu, umhverfismennt og umhyggjusömum samskiptum
• Er tilbúið til að taka þátt í öflugri starfsþróun
• Er stundvíst, samviskusamt og leggur sig fram um að velja sér jákvæð viðhorf í dagsins önn.
Við hvetjum karlmenn jafnt sem konur til að sækja um!
Heilsuleikskólinn Háaleiti, Ásbrú í Reykjanesbæ
Auglýsir eftir:
• Sérkennslustjóra í hlutastarf
• Leikskólakennara og/eða uppeldismenntuðum starfsmanni í 100% stöðu stuðningsfulltrúa frá
áramótum.
Umsóknarfrestur er til 1. desember 2013.
Heilsuleikskólinn Háaleiti er þriggja deilda leikskóli með um 60 börn.
Nánari upplýsingar veitir:
Þóra Sigrún Hjaltadóttir leikskólastjóri, sími 426-5276
Rafrænar umsóknir er hægt að leggja inn á http://www.skolar.is
Heilsuleikskólar Skóla eru:
Hamravellir í Hafnarfirði, Háaleiti á Ásbrú í Reykjanesbæ,
Kór í Kópavogi, Krókur í Grindavík og Ungbarnaleikskólinn Ársól í Reykjavík.
Okkar ástkæra
Sigríður Halla Einarsdóttir,
Njarðarvöllum 6, Reykjanesbæ,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnudaginn
17. nóvember. Hún verður jarðsungin frá Ytri-
Njarðvíkurkirkju fimmtudaginn 28. nóvember kl. 13.00.
Auður Ingvarsdóttir
Hildur Inbarsdóttir
Björg Ingvarsóttir
Rósa Ingvarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Snorri Gestsson
Leifur V. Eiríksson
Snæbjörn Sigurðsson
Ólafur Björnsson
Alþjóðlega líftæknifyrir-tækið Algalif er að setjast
að á Ásbrú í Reykjanesbæ. Fyrir-
tækið hefur þróað fæðubótarefni
úr þörungum. Fjárfesting fyrir-
tækisins á næstu árum verður um
2,2 milljarðar króna. Stærstur
hluti starfseminnar verður settur
upp á næsta ári og hluti fram-
leiðslunnar hefst einnig þá. Gert
er ráð fyrir að 20-25 manns muni
vinna við framleiðsluna en stór
hluti þeirra starfa eru hámenntuð
störf. Stærstur hluti fjárfestingar-
innar er í tækjum og búnaði, auk
þróunarkostnaðar.
Leigja hús af Kadeco
Algalif mun koma sér fyrir í hús-
næði á iðnaðarsvæðinu á Ásbrú en
þar hefur fyrirtækið mikla stækk-
unarmöguleika. Fyrirtækið leigir
húsnæði á Þróunarfélagi Kefla-
víkurflugvallar, Kadeco.
Aðstæður á Ásbrú eru ákjósan-
legar fyrir uppbyggingu líftækni-
fyrirtækja. Nauðsynlegt aðgengi
að vatni og orku er til staðar. Hér
er einnig auðveldara að forð-
ast mengun heldur en í löndum
þar sem hitastig fer yfir 25 gráður
á sumrin. Þá skiptir nálægð við
Keflavíkurflugvöll miklu máli. Nú
er unnið að fjárfestingasamningi
milli Algalif og íslenska ríkisins
og eru þeir samningar að komast
í höfn.
„Það hefur verið rætt mikið um
fjölbreytta nýtingu á íslenskri
umhverfisvænni orku og í okkar
uppbyggingu á Ásbrú hefur verið
horft til þessa. Hjá Keili hefur verið
byggt upp nám í orkutæknifræði
og jafnframt höfum við byggt
upp flotta rannsóknarstofu sem
er m.a. grunnur að því að draga
svona starfsemi inn á svæðið,“
segir Kjartan Þór Eiríksson, fram-
kvæmdastjóri Þróunarfélags Kefla-
víkurflugvallar, Kadeco, í samtali
við Víkurfréttir.
Kjartan segir að hjá Kadeco hafi
orkunotkun við ræktun verið til
skoðunar og þá sérstaklega há-
virðisræktun. Þar sé horft til dýrari
grænmetistegunda og t.d. þess sem
ORF Líftækni sé að gera í Grinda-
vík með sérhæfðu góðurhúsi í
framleiðslu á hávirðis vöru.
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar
hefur verið í viðræðum við Alga-
lif í nokkuð langan tíma um upp-
byggingu framleiðslunnar hér en
fyrirtækið hefur verið að skoða að-
stöðu bæði erlendis og á nokkrum
stöðum hér á landi. Kjartan segir
að Algalif sé í raun að sækja í það
samfélag sem byggt hafi verið upp
á Ásbrú á undanförnum árum og
það nýtist fyrirtækinu vel.
Líftæknifyrirtæki
með 20-25 störf
sest að á Ásbrú
Bæjarráð Sveitarfélagsins Garðs hefur samþykkt sam-
hljóða að fela bæjarstjóra að hefja
undirbúning þess að Sveitar-
félagið Garður sæki rétt sinn til
þess að innheimta fasteignaskatt
af mannvirkjum innan sveitar-
félagsins á fyrrum varnarsvæði
við Helguvík.
Ásbjörn Jónsson hæstaréttarlög-
maður mætti á fund bæjarráðs á
dögunum og fór yfir lög og reglur
sem ná yfir fyrrum varnarsvæði
við Helguvík, en á því svæði sem
nú er skilgreint sem öryggissvæði
eru olíubirgðatankar sem a.m.k. að
hluta til eru nýttir til borgaralegra
nota af olíufélögum. Mannvirki á
þannig skilgreindum svæðum hafa
ekki verið metin í fasteignamati og
því ekki verið innheimtir af þeim
fasteignaskattar.
Garðmenn undirbúa innheimtu
fasteignagjalda í Helguvík