Víkurfréttir


Víkurfréttir - 21.11.2013, Blaðsíða 22

Víkurfréttir - 21.11.2013, Blaðsíða 22
fimmtudagurinn 21. nóvember 2013 • VÍKURFRÉTTIR22 Örvar Þór Kristjánsson Eiður Smári. . Er eitthvað annað hægt en að hafa orðið hálf klökkur eftir viðtalið við hann. Hvílíkur leikmaður, hvílíkur ferill! Tilfinningarnar báru hann ofurliði áðan sem sýnir bara svart á hvítu hversu magnaður karakter hann er... Takk fyrir allt Eiður Lauga Sidda Hérna var litið um svefn í nótt sökum þruma og eldinga... Og svo allt à floti í morgun held a það hafi bara aldrei àður rignt 3 daga í röð í Bahrain Tómas J. Knúts- son Þetta eilífðar smá- blóm verður að rísa upp núna og verða að stórum kaktus sem Króat- arnir stinga sig á og það illilega, koma svo strákar! Nilla Einarsdóttir Hefur einhver vina minna keyrt Reykja- nesbrautina síðustu tvo tímana? Er á litlum Yaris og er að velta fyrir mér hvort leggja skuli í langferð í dag??? Guðlaugur Helgi SIgurjónsson Hey RUV... Þið megið slíta út- sendingu þegar aðrir fagna... Ekki þegar Ísland fagnar.. Geirþrúður Ósk Geirsdóttir Slurkar í sig latte með piparkökusý- rópi — feeling won- derful. :) Magnea Smára- dóttir 2 stórar skálar að brauði farnar ofan í smáfuglana, verður keypt smáfuglamatur í næstu búðarferð Biggi Möller Elska Stærðfræði — feeling accomplis- hed. Bryndís María Leifsdóttir Fyrsti landsleikurinn sem ég fer á, hann er orðinn legendary og ekki byrjaður - áfram Ísland, þvílík stemning! -íþróttir pósturu eythor@vf.is -molar VIKAN Á VEFNUM Suðurnejamenn láta ekki sitt eftir liggja á samfélags- miðlunum. Við á Víkur- féttum munum framvegis birta það helsta sem ber á góma á Facebook og Twitter hjá Suðurnesjamönnum. Gunnar Ólafsson bakvörður Keflvíkinga í Dom-ino´s deildinni mun líkt og Elvar Már Njarð- víkingur leika í háskólaboltanum í Bandaríkjunum á næsta ári. Ekki nóg með það, heldur mun Gunnar leika í St. Francis skólanum sem er í New York, en Elvar mun spila með skóla þar í borg. Liðin eru ná- grannalið og er mikill rígur milli skólanna. „Ég hef alltaf hugsað að ef tækifærið kæmi að fá að spila háskólabolta þá myndi ég nýta það. Þetta er búið að vera markmið hjá mér seinustu tvö til þrjú ár að komast út í skóla þannig að þetta er bara snilld,“ sagði Gunnar í samtali við vefsíðuna Karfan.is „Þetta er frekar lítill skóli sem mér líst bara vel á. Aðstaðan þarna er mjög góð og fólkið sem ég hitti þegar ég fór út var frábært. Svo skemmir ekki staðsetningin fyrir.“ Njarðvíkingurinn Elvar Már Friðriksson er á leið á há- skólaboltann í Bandaríkjunum næsta haust. Nú er það orðið ljóst að Elvar mun leika með Long Isl- and University (LIU) skólanum í Brooklynhverfi New York borgar, en skólinn leikur í efstu deild há- skólaboltans. Elvar kom heim í dag eftir heimsókn til Bandaríkj- anna og gekk frá samingum við skólann nú fyrir stundu. Elvar sagðist í samtali við Víkur- fréttir vera í skýjunum enda hafi það verið draumur hans lengi að spila í háskólaboltanum vestanhafs. Elvar segir að skólinn hafi verið að leitast eftir leikstjórnanda en sá sem leikur þá stöðu með skólanum fyrir er nú að útskrifast. Sá leikstjórnandi var með flestar stoðsendingar allra í há- skólaboltanum í fyrra og Elvar hefur því stóra skó að fylla. „Þeim fannst ég vera svipaður leikmaður og hann. Þeir sáu myndband með mér og buðu mér í raun skólastyrk strax í kjölfarið,“ sagði Elvar en þjálfari annars skóla sem kom til Íslands til þess að fylgjast með Elvari benti Long Island skólanum á Njarðvíkinginn unga. Í skólanum eru 10.000 nemendur og er mikil hefð fyrir körfubolta í skólanum. Síðustu þrjú ár hefur skólinn komist í úrslitakeppni háskólaboltans (March Mad- ness) og mætt þar öflugum liðum á borð við North Carolina og Michigan State. „Ég er ofsalega ánægður með þetta. Ég tel að þetta eigi eftir að henta mér vel þar sem þeir spila evrópskan körfubolta, sem er mjög hraður. Aðstaðan er líka til fyrirmyndar í skólanum.“ Aðrir skólar voru búnir að vera inni í myndinni en það gekk ekki alveg upp. Long Island skólinn bauð Elv- ari fullan skólastyrk eftir að hafa séð svipmyndir frá leik hans hér heima í Domino´s deildinni eins og áður segir. Njarðvíkingurinn og fyrrum New York-búinn Brenton Birm- ingham var Elvari innan handar en hann aðstoðaði mikið í ferlinu. „Þetta er bara atvinnumennska í raun og veru. Íþróttahúsið er opið hvenær sem er ef maður vill æfa.“ Elvar hefur verið þekktur fyrir að æfa vel og mikið. Hann sér þarna tækifæri til þess til þess að koma leik sínum á næsta stig. „Þetta leggst bara vel í mig og það er spennandi að flytja í þessa stórborg, New York er að heilla mig mikið,“ sagði Elvar. Elvar mun klára tímabilið með Njarðvíkingum og halda til New York næsta sumar. Hann hefur leikið betur en flestir aðrir í deildinni og virðist vera í feikilega góðu formi. „Með aukinni reynslu hef ég öðlast meiri yfirvegun og undanfarin tvö ár hafa verið ómetanleg. Ég lagði líka gríðarlega á mig í sumar við æfingar. Það skilar sér líka ásamt reynslunni.“ Elvar er með langtímamarkmið varðandi körfubolt- ann. „Ég veit hvað ég vil. Ég hafði planað að fara í há- skólaboltann í fjögur ár til þess að koma leik mínum á næsta stig. Draumurinn er svo að vinna við að spila körfubolta. Ég tel að með þessu skrefi þá ætti ég að geta bætt mig mikið.“ Hraustasta fólk landsins kemur frá Reykjanesbæ u Fjórðu og síðustu keppni í Þrekmótaröðinni 2013 lauk um helgina með keppni í Lífsstíls- meistaranum sem fram fór í TM Höllinni. Árangur Suður- nesjamanna var frábær á mót- inu. Liðið 5 fræknar frá Lífsstíl sigraði bæði í opnum flokki og flokki 39+. Í parakeppninni voru Sara og Andri frá Crossfit Suðurnes í 2. sæti og í 3. sæti voru þau Vikar og Kiddý frá Lífsstíl, en þau urðu einnig í 1. sæti í flokki 39 ára og eldri. Í einstaklingskeppni karla varð Vikar Sigurjónsson í 2. sæti í flokki 39+ og í einstaklings- keppni kvenna vann Kristjana H. Gunnarsdóttir bæði í opnum flokki og flokki 39+, Sara Sig- mundsdóttir hafnaði þar í 2. sæti. Suðurnesjakonur stóðu sig frá- bærlega en Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir hlaut titilinn „hraustasta kona landsins“ í opnum flokki kvenna. Kristjana H. Gunnarsdóttir hlaut titilinn „hraustasta kona landsins“ í flokki 39+ ásamt því að verða í 3. sæti í opnum flokki. Liðið 5 fræknar frá Lífsstíl, sem saman- stendur af Kristjönu H. Gunn- arsdóttur, Þuríði Þorkelsdóttur, Ástu Katrínu Helgadóttur, Árdísi Láru og Elsu Pálsdóttur, hlaut titilinn „hraustasta kvennalið landsins“ í flokki 39+. „Hraust- asta par landsins“ urðu svo þau Daníel Þórðarson og Sigurlaug Guðmundsdóttir úr Reykja- nesbæ. Davor Suker heim- sótti Grindavík uDavor Suker, forseti knatt- spyrnusambands Króatíu, heim- sótti Grindavík í fylgd góðvinar síns Milans Stefáns Jankovic, þjálfara Grindavíkur. Þeir spil- uðu saman í fjögur ár með Osijek á sínum tíma í Júgóslavínu og hafa haldið sambandi síðan þá. Suker var einn fremsti knatt- spyrnumaður Króata á sínum tíma en hann varð markakóngur á HM 1998. Suker var að sjálf- sögðu staddur hér á landi vegna stórleiks Íslands og Króatíu sem fram fór á föstudag fyrir tæpri viku. Suker hitti stjórn knatt- spyrnudeildar UMFG og skoðaði íþróttamannvirkin og heilsaði upp á iðkendur yngri flokkanna. Hann skellti sér m.a. á vítapunkt- inn og rifjaði upp gamla takta með sínum frábæra vinstri fæti. Suker var afar hrifinn af knatt- spyrnuhúsinu í Grindavík. Þá kom hann færandi hendi og gaf bolta frá króatíska knattspyrnu- sambandinu fyrir yngri flokkana. Sjálfur var Suker svo leystur út með gjöfum, m.a. lýsi og saltfiski. Elvar Már leikur í Stóra Eplinu -Samdi við háskóla í Brooklynhverfi New York borgar Gunnar verður nágranni Elvars í Brooklyn Fylgist einnig með á vf.is Það eru ekki amalegar aðstæður sem bíða Elvars í New York. Hér er Gunnar í leik með Keflavík fyrr í vikunni gegn KR. Tvö taplaus lið áttust við í Domino's deild karla í körfu og fóru KR-ingar með sigur af hólmi 70-81. Fyrsta tap Keflavíkur staðreynd. Næsti heimaleikur Suðurnesja- liðanna verður á föstudag þegar UMFN fær Hauka í heimsókn. VF-mynd/PallOrri.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.