Bæjarins besta


Bæjarins besta - 08.02.2007, Síða 1

Bæjarins besta - 08.02.2007, Síða 1
Gríp tækifærin þegar ég sé þau Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 300 m/vsk Fimmtudagur 8. febrúar 2007 · 6. tbl. · 24. árg. – athafnamaðurinn Sævar Hjörvarsson ætlar sér stóra hluti á Ísafirði. Sjá viðtal í miðopnu Unglingastigið ekki flutt í andstöðu við foreldra og íbúa Halldór Halldórsson, bæjar- stjóri Ísafjarðarbæjar, telur mikilvægt að haldnir verði opnir fundir um mögulegan flutning unglingastigs grunn- skólanna á Flateyri og Suður- eyri til Ísafjarðar. Segir hann einsýnt að ekki verði af flutn- ingi í andstöðu við foreldra og íbúa. „Sú andstaða hefur komið fram og því verður bæj- arstjórn að taka ákvarðanir sínar í samræmi við það“, seg- ir Halldór. Vísar Halldór auk þess í bókanir um málið þar sem skýrt komi fram að ákvörðunin verði ekki tekin einhliða af bæjaryfirvöldum. Segist Halldór vilja rifja þetta upp til að undirstrika hvernig meirihluti hefur afgreitt málið síðan það var tekið á dagskrá við vinnslu fjárhagsáætlunar. Þann 28. nóvember 2006 var eftirfarandi bókun gerð í fræðslunefnd: „Fræðslunefnd vísar hugmyndum um hag- ræðingu til bæjarráðs og legg- ur áherslu á að hugmyndir um aukna samkennslu unglinga- stigs Flateyrar og Suðureyrar við Ísafjörð þarf að kynna og ræða á vettvangi foreldra, nemenda, kennara og stjórn- enda.“ Þann 7. desember 2006 var eftirfarandi bókun lögð fram í bæjarstjórn: „Gísli H. Hall- dórsson, forseti, lagði fram svohljóðandi bókun meiri- hluta við 7. lið 246. fundar- gerðar fræðslunefndar. ,,Meiri- hluti bæjarstjórnar leggur áherslu á að hugmyndir um aukna samkennslu unglinga- stigs á Flateyri og Suðureyri eru á þessu stigi til umræðu og kynningar. Megináherslan er á faglegan þátt skólastarfs- ins fremur en fjárhagslegan. Ekki verður tekin ákvörðun um útfærslu fyrr en að loknu samráði við foreldra, nemend- ur, kennara og skólastjórnend- ur.“ Í stefnuræðu við síðari um- ræðu með fjárhagsáætlun þann 21. desember 2006 kom þetta fram varðandi unglinga- stigið á Flateyri og Suðureyri: „Hagræðingarkrafa á fræðslu- sviði vegna 8. 9. og 10. bekkj- ar á Suðureyri og Flateyri verður ekki tekin fyrir fyrr en að loknu samráðsferli við alla hlutaðeigandi eins og áréttað hefur verið margoft áður.“ – eirikur@bb.isGrunnskólinn á Ísafirði.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.