Bæjarins besta


Bæjarins besta - 08.02.2007, Blaðsíða 20

Bæjarins besta - 08.02.2007, Blaðsíða 20
Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 300 m/vsk bb.is – fjölsóttasti vestfirski vefurinn Fimm ökumenn voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í Vestfjarðargöng- unum og á veginum til Súgandafjarðar í vik- unni. Í Vestfjarðargöng- um er hámarkshraði 60 km en sá sem hraðast ók var mældur á 114 km. hraða. Á veginum til Súg- andafjarðar voru þrír öku- menn stöðvaðir fyrir of hraðan akstur þar sem há- markshraði er 90 km. og var hraði þess sem hraðast ók 118 km. Lögreglumenn í eftir- litsferð óku fram á bíl- veltu við Kaldá í Önund- arfirði í byrjun síðustu viku. Ökumaður jeppa, sem var einn í bílnum, hafði misst stjórn á hon- um í hálku og jeppinn olt- ið út fyrir veginn. Öku- maðurinn hafði ekki slas- ast en jeppinn var nokkuð skemmdur og var fluttur óökuhæfur af vettvangi. Hraðakstur í göngunum Þorskalif- ur seld til Rússlands Hraðfrystihúsið Gunn- vör hf., hefur hafið útflutn- ing á niðursoðinni lifur úr þorski og eftirspurn er meiri en framboð að sögn Kristins Kristjánssonar framleiðslustjóra hjá HG. „Lifrin kemur að mestu úr eldisfiski úr Álftafirði en einnig höfum verið að fá hráefni frá bátum og fiskmörkuðum hér á Vest- fjörðum en okkur vantar meira.“ Sex manns starfa í verk- smiðjunni sem er til húsa í Frosta í Súðavík þar sem hluti húsnæðisins er nýttur undir fiskmarkað og vinn- slu á eldisþorski. Lifrin er ætluð til manneldis og hef- ur hún verið seld til Frakk- lands og nú nýlega til Rússlands. Vinnslan og markaðssetningin er í samstarfi við erlenda fyrir- tækið Larsen Seafood sem sér um flytja vöruna út. Niðursoðin þorskalifur tilbúin til útflutnings. Álögð fasteignagjöld fyrir 2007 hjá Ísafjarðarbæ eru alls 336,6 millj.kr. Á íbúðarhús- næði, sumarbústaði og hús- næði í dreifbýli var lagt 201,2 millj.kr. en 135,4 millj.kr. á fasteignir fyrirtækja og stofn- ana. Í fasteignagjöldum er fasteignaskattur, lóðarleiga, holræsagjald, vatnsgjald og sorpgjald á íbúðarhúsnæði. Fasteignamat hækkaði um 10% á íbúðarhúsnæði á Ísa- firði en er óbreytt á milli ára á íbúðarhúsnæði í öðrum byggða- hlutum Ísafjarðarbæjar og at- vinnuhúsnæði. Alls eru fast- eignir og lóðir í Ísafjarðarbæ metnar á 20,2 milljarða kr. Fjöldi íbúða er 1.726 íbúðir en aðrar fasteignir, lóðir og mannvirki sem metnar eru í fasteignamat eru 2.691. Álagningarhlutfall fast- eignaskatts á íbúðarhúsnæði er 0,45% og 1,60% á annað húsnæði, lóðarleiga er 1,80% á íbúðarhúsnæði en 3,00% á annað húsnæði, vatnsgjald er 0,30% og holræsagjald er 0,26%. Sorpgjald á íbúðarhús- næði er 29.000 kr. á íbúð. Lög- aðilar greiða sorpeyðingar- gjald samkvæmt gjaldskrá. Aldraðir og öryrkjar fá niður- felldan fasteignaskatt og hol- ræsagjald allt að 74.000 kr. og er niðurfellingin tekju- tengd. Alls fengu 152 aldraðir íbúðareigendur og öryrkjar niðurfellingu að þessu sinni. – annska@bb.is Álögð fasteignagjöld fyrir 2007 hjá Ísafjarðarbæ eru alls 336,6 millj.kr. Álagningu fasteignagjalda lokið hjá Ísafjarðarbæ Verktakafyrirtækin KNH og Vestfirskir verktakar hafa hafist handa við vegafram- kvæmdir í Ísafjarðardjúpi, en um er að ræða eitt af stærstu verkum sem boðin hafa verið út í vegagerð hérlendis. Að sögn Sigurðar Óskarssonar hjá KNH leggst verkið vel í þá. „Við byrjuðum um leið og búið var að skrifa undir. Þetta leggst bara vel í okkur, við byrjum í Reykjarfirði að fylla í fjörðinn að brúarstæði þar svo það sé hægt að komast í að byggja brúna þar.“ Samn- ingurinn var með þeim stærri sem Vegagerðin hefur undir- ritað á síðustu misserum og samningsupphæðin liðlega einn milljarður króna. Auk vegagerðarinnar er innifalið í verkinu að smíða þrjár brýr, þá stærstu á Mjóafirði sem yrði 130 metra löng stálboga- brú en hinar eru 60 metra brú á Reykjarfirði og 10 m brú við Vatnsfjarðarós. Brúin á Mjóafirði liggur milli lands og Hrúteyjar að austanverðu en að vestanverðu er gert ráð fyrir vegfyllingu. Þegar þessum framkvæmd- um lýkur seint á næsta ári ásamt lagningu bundins slit- lags á kafla í vestanverðum Ísafirði verður Djúpvegur lagð- ur bundnu slitlagi allt milli Hólmavíkur og Bolungarvík- ur. Leiðin er álíka löng og núverandi leið yfir Eyrarfjall. Sú leið hefur yfirleitt verið Framkvæmdir hafnar við Djúpveg Afstöðumynd af vinnusvæðinu í Mjóafirði og Ísafirði í Ísafjarðardjúpi. Mynd: Vegagerðin. lokuð vegna snjóþyngsla og þungatakmarkana kringum fjóra mánuði á ári. Þá hafa vegfarendur þurft að taka á sig 35 km krók út fyrir Vatns- fjarðarnes eftir mjóum og sein- förnum vegi. Reykjanesleiðin liggur hins vegar meira og minna með ströndum fram og er því snjóléttari og er það ástæða þess að sú leið er valin. Á Vatnsfjarðarhálsi, milli Mjóafjarðar og Vatnsfjarðar, fer vegurinn mest í 90 m hæð yfir sjó. Vegalengdin milli Ísa- fjarðar og Reykjavíkur um Steingrímsfjarðarheiði verður 496 km. – thelma@bb.is Byggð verður 130 metra löng stálbogabrú yfir í Hrútey.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.