Bæjarins besta - 08.02.2007, Blaðsíða 14
FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 200714
Ferðafélagið á ferð um Vestfirði í sumar
Hjá Ferðafélagi Íslands
kennir ýmissa grasa þegar
kemur að ferðum um Vest-
firði fyrir sumarið, en eins
og mörgum er kunnugt um
hefur FÍ boðið upp á ferðir
á Hornstrandir í áraraðir.
Meðal þess sem gert verð-
ur að þessu sinni er að fara
á skíðum yfir Drangajök-
ul, en sú ferð verður í lok
maímánaðar og tekur þrjá
daga. Í ferðinni er gengið á
gönguskíðum úr Kaldalóni
yfir í Reykjarfjörð og það-
an yfir í Hrafnfjörð.
Í kringum Jónsmessuna
verður boðið upp á sex
daga jógaferð í Hlöðuvík
þar sem Sigrún Valbergs-
dóttir fararstjóri og Auður
Bjarnadóttir jógakennari
hafa ofan af fyrir ferða-
fólki við göngur, jógaslök-
un, glens og gaman. Far-
arstjórinn Guðmundur
Hallvarðsson sem hefur
farið með fjöldann allan af
fólki um Hornstrandir
verður með þrjár ferðir á
vegum FÍ í sumar en það
eru ferðirnar: „Fjallafíklar
á ferð og flugi“, „Sælu-
dagar í Hlöðuvík“ og
„Fjallafíklar í sól og sælu -
Langavitleysa hin skemmri“
en sú ferð er einmitt tvö-
föld afmælisferð FÍ og
Guðmundar. Ferðirnar
eru á bilinu 9-12 dagar og
eru þær frá miðlungslöng-
um til nokkuð langra
dagleiða. Sigríður Lóa
Jónsdóttir fer með göngu-
hrólfa átta daga leið um
stórbrotin fuglabjörg, fall-
egar víkur og tilkomu-
mikla firði við ysta haf.
Þriðja árið í röð er boðið
upp á ferðina „Unglingar á
ferð og flugi“ en það er sex
daga ferð fyrir unglinga í
fararstjórn Steinunnar
Leifsdóttur og Sólveigar
Thorlacius, þær ferðir
hafa verið vinsælar fyrir
þennan aldurshóp og gefist
vel. Þær eru hugsaðar fyr-
ir unglinga á aldrinum 14
– 18 ára, sem áhuga hafa á
að kynnast útivist og göngu-
ferðum á Hornströndum.
Eina ferðin sem ekki
verður um Hornstrandir
eða næsta nágrenni verður
í júlí og ber heitið „Djúpi-
fjörður og næsta ná-
grenni“ en það er þriggja
daga ferð með Elísabetu
Jónu Sólbergsdóttur og
Úlfari Thoroddsen, þar
sem hinn margumræddi
Teigskógur verður meðal
annars skoðaður.
– annska@bb.is
Frá Hornströndum.
Fíkniefnaleitarhund-
urinn Rocky Star Black
Odin Bassi drapst fyrir
stuttu. Bassi var þjóð-
þekktur ekki aðeins fyrir
starf sitt við leit að fíkni-
efnum, heldur frekar fyrir
að starfa við hlið þjálfara
síns, Ísfirðingsins Þor-
steins Hauks Þorsteins-
sonar fyrrverandi tollfull-
trúa, við fíkniefnafræðslu
til unglinga landsins um
árabil. Bassi var sóttur til
Óðinsvéa í Danmörku á
vormánuðum 1997 og
var farinn að starfa fyrir
Tollgæsluna í Reykjavík
við leit að fíkniefnum í
september sama ár. Hann
starfaði við fíkniefnaleit
allt til ársins 2003.
Þegar Bassi fór 18
mánaða í úttekt þar sem
metin var hæfni hans til
leitar að fíkniefnum og
fékk hann einkunnina 63
af 64 mögulegum stig-
um. Jesper Jespersen yf-
irhundaþjálfari dönsku
tollgæslunnar sá um út-
tektina sem fram fór í maí
mánuði 1998 og hafði
hann árið á undan haft
yfirumsjón með þjálfun
Bassa og umsjónarmanns
hans.
Bassi allur
Það er ódýrara
að vera áskrifandi!
Síminn er
456 4560
Í síðustu viku voru liðin 82
ár frá því Sæbólskirkja á Ingj-
aldssandi fauk í miklu fárviðri
sem gekk yfir Vestfirði. Jafn-
an er talað um „Halaveðrið“
þegar átt er við mikið mann-
skaðaveður á Halamiðum út
af Vestfjörðum í febrúar 1925
þar sem fórust á sjöunda tug
manna. Sæból er bær og
kirkjustaður á Ingjaldssandi,
yst við vestanverðan Önund-
arfjörð. Þar var kirkja helguð
Maríu guðsmóður, Jóhannesi
postula, Magnúsi Eyjajarli,
Þorláki helga og Katrínu mey
en hún fauk í fárviðri og brotn-
aði í spón. Steinkirkjan sem
nú stendur á Ingjaldssandi var
vígð 28. janúar 1924. Jón Sv.
Jónsson, bóndi á Sæbóli, skar
út altarisgráður og bekki. Guð-
mundur Einarsson frá Miðdal
gerði skírnarfontinn. Ljósa-
hjálmur úr kopar frá 1649 er
elsti gripur kirkjunnar.
Mörg nöfn erlendra karl-
manna eru greypt í hann, enda
talið að hann sé gjöf frá er-
lendri skipshöfn, sem bjargað-
ist í land úr sjávarháska á Ingj-
aldssandi. Einnig er að finna
fornan kaleik og patínu frá
árunum 1733 og 1776.
Ljóskrossinn er gjöf til
minningar um séra Sigtrygg
Guðlaugsson (1862-1959) á
Núpi. Hann þjónaði Sæbóls-
kirkju í 23 ár og talið er, að
hann hafi farið 900 sinnum
yfir Sandsheiði í embættiser-
indum.
Legstaður hans er í Sæbóls-
kirkjugarði.
– annska@bb.is
82 ár síðan að Sæbólskirkja fauk
Byggðasafn Vestfjarða fékk
32 gjafir á árinu 2006, en í
mörgum tilvikum var gefinn
fleiri en einn munur. Meðal
þess sem safnið fékk á árinu
voru ýmsir munir úr fiskbúð
Norðurtangans, sem Svein-
björn Jónsson í Aðlöðun ehf.,
gaf; Einar Valur Kristjánsson
gaf ýmis siglingatæki; Magni
Guðmundsson gaf m.a. gaml-
an amerískan ísskáp; Óskar
Eggertsson gaf gamla ljósrit-
unarvél; Karl Aspelund gaf
tvo kassa af endurhlaðanleg-
um tómum koparpatrónum;
Þórður Júlíusson gaf safninu
rúmfjöl með áletrun; Auður
Jóhannsdóttir gaf rafdrifinn
rennibekk; Arndís Baldurs-
dóttir gaf m.a. hálflíkan af bát
eftir Ólaf Magnússon, skipa-
smið, og sígarettupakka af
tegundinni Roy með nokkrum
sígarettum í.
Magnús Ólafs Hansson
færði safninu mastursbaulu;
Albert Óskarsson gaf gamlan,
stóran keðjupúllara; Nína
Guðleifsdóttir afhenti m.a.
servíettuhringi og silfurmynda-
ramma úr eigu Guðrúnar og
Carls Ryden á Þingeyri. Vil-
berg Vilbergsson afhenti
rennibekk sem faðir Vilbergs
smíðaði; Kristján S. Ólafsson
og frændsystkini gáfu m.a.
inu á Ísafirði; Magnús Ó.
Hansson gaf safninu gamla
reiknivél af hreppsskrifstof-
unni í Hólmavík og kosninga-
kassa og Gísli og Úlfur Úlfars-
synir gáfu m.a. stóra trésmíða-
vél af gerðinni TBT.
Óskar Eggertsson gaf bók-
haldstölvu, sem talin er sú
fyrsta sem á Vestfirði kom,
en hún er af gerðinni Radio
Shack TRS-80; Skjalasafnið
á Ísafirði afhenti ýmsa stimpla
úr fórum sýslumannsembætt-
isins og Kaupfélagi Dýrfirð-
inga, auk fleiri gripa; Guð-
björn Charlesson afhenti safn-
inu sveðju sem fannst við jarð-
vinnu á Skipanesi; Þórdís Þor-
leifsdóttir afhenti safninu
fjölda muna, þar af eitt par af
gúmmískóhlífum fyrir háhæl-
aða skó; Arnþrúður Aspelund
gaf safninu útstillingarkassa
frá úrsmíðaverkstæði Þórðar
Jóhannssonar, úrsmíðameist-
ara; Hrafn Norðdahl gaf safn-
inu einn pakka af piparmynt-
um sérmerktum útgerðarfyrir-
tækinu Básafelli, sem starfaði
á Ísafirði frá 1990-1995; og
Halldór Páll Eydal gaf safninu
sveinsstykki sín í málara-
meistaraiðn og trésmíðameist-
araiðn, auk fleiri æfinga-
stykkja og teikninga, en alls
voru gripirnir 17 talsins.
Orgel sem William Cook, trú-
boði, flutti með sér til lands-
ins; Jón Hólmsteinn Júlíusson
afhenti safninu m.a. tvær
bátaskrúfur; Garðar Guð-
mundsson gaf safninu ýmis
tæki og tól úr Björnsbúð, m.a.
búðarkassa og reiknivélar og
Jakob Falur Garðarsson gaf
safninu Sinclair Spectrum
tölvu frá árinu 1980.
Össur Torfason færði safn-
inu tvenn ný aktygi og þrjár
ljósmyndir; Guðbjörg Jakobs-
dóttir gaf snaga með fjórum
hönkum; Eyvindur P. Eiríks-
son, rithöfundur, gaf safninu
m.a. björgunarhring úr gamla
Fagranesinu sem brann og
heimasmíðaðan bjarghjálm,
sem pabbi Eyvindar og bræð-
ur smíðuðu; Grunnskóli Ísa-
fjarðar gaf safninu ýmis skóla-
gögn úr gamla barnaskólahús-
Byggðasafn Vestfjarða er staðsett í Neðstakaupstað.
Byggðasafn Vestfjarða
fékk 32 gjafir á síðasta ári