Bæjarins besta


Bæjarins besta - 08.02.2007, Blaðsíða 2

Bæjarins besta - 08.02.2007, Blaðsíða 2
FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 20072 Þennan dag árið1935 strandaði enskur togari, Langanes frá Grimsby, í ofviðri við Svalvogs- hamra, milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar og fórst öll áhöfnin, fjórtán menn. Dagurinn í dag 8. febrúar 2007 – 39. dagur ársins Ekki marktækur munu milli landshluta Alls tóku 423 nemendur í 4. bekk í Norðvesturkjördæmi samræmt próf í stærðfræði í október síðastliðnum, og var meðaleinkunn þeirra 6,7. 403 nemendur í 4. bekk tóku samræmt próf í íslensku og var meðaleinkunn þeirra 6,7. Nemendur í 7. bekk sem tóku samræmt próf í stærðfræði voru 457 og var meðaleinkunn þeirra 7,0. 447 nem- endur tóku samræmt próf í íslensku og var meðaleinkunn þeirra 6,7. Voru nemendur í 4. bekk nákvæmlega á landsmeðaltali í báðum sínum prófum, en landsmeðaltal 7. bekkinga í stærðfræði var 7,3 og í íslensku 7,0, og voru 7. bekkingar í Norðvesturkjördæmi því lítið eitt undir landsmeðaltali. Þetta kemur fram í vefriti menntamála- ráðuneytisins. Þar segir að ekki sé marktækur munur á milli landshluta, og dreifingin sé svipuð og á síðasta ári. Jóhann Ársælsson, þing- maður Samfylkingar í Norð- vesturkjördæmi, segir að ekki komi til að sveitarfélög verði lögþvinguð til sameiningar ef sérstakar aðstæður hindri það, að mati félagsmálaráðuneytis, að þau geti myndað félagslega heild með nágrannasveitarfé- lögum sínum. Líkt og sagt hef- ur verið frá er til umræðu á alþingi frumvarp um að breyta lögum um lágmarksstærð sveitarfélaga, þannig að í stað þess að sveitarfélag geti verið 50 sálir skuli þær ekki færri en 1.000 talsins, og er Jóhann einn flutningsmanna frum- varpsins. Hafa margir orðið til að spyrja sig hvernig frumvarpið komi til með að snerta við Strandamönnum, því þar má ímynda sér að erfitt gæti reynst að ná þúsund manna lágmarkinu, en Strandabyggð, Árneshreppur, Kaldrananes- hreppur og Bæjarhreppur telja einungis 758 íbúa. Í Reyk- hólahreppi búa 251 manns, og myndi sveitarfélagið rétt ná 1.000 manna markinu ef þeir væru taldir með, sem væri væntanlega erfitt sem stendur en mögulega auðveldara eftir tilkomu Tröllatunguvegar, sem samkvæmt áætlun á að vera tilbúinn fyrir lok árs 2008. Jóhann hefur svarað þess- um spurningum í aðsendri grein sem birtist á Stranda- vefnum. Þar bendir Jóhann á að undantekningu frá ákvæði um lágmarksstærð sveitarfé- laga er að finna í núgildandi ákvæði, þar sem kveðið er á um að sveitarfélag skuli ekki telja færri en 50 sálir. Segir í ákvæðinu: „Undantekningu frá þessu ákvæði skal gera ef sérstakar aðstæður hindra það að mati ráðuneytisins að íbúar hins fámenna sveitarfélags geti myndað félagslega heild með íbúum nágrannasveitar- félags.“ Ekki eru í frumvarpinu lagðar til aðrar breytingar en þær sem snúa að fjölda íbúa, og munu þar af leiðandi sömu reglur og sjónarmið verða lögð til grundvallar og áður við ákvarðanir félagsmálaráð- herra um lögþvingaða samein- ingu. Segir Jóhann m.a. í grein sinni: „Ýmis dæmi eru um að sveitarfélög hafi verið innan 50 íbúa lágmarksins, jafnvel áratugum saman. Ég læt nægja að nefna Mjóafjörð sem vegna samgöngulegrar einangrunar féll auðvitað undir þetta ákvæði. Þessu ákvæði datt okkur aldrei í hug að hrófla við og teljum að því skuli beita þar sem við á.“ Tilgangurinn með laga- breytingunni er meðal annars sá að búa til sterkari sveitarfé- lög sem eigi auðveldara með að taka við verkefnum frá rík- isvaldinu. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að flutningsmenn telji þó að í raun sé 1.000 mann samfélag lítið og vanmegnugt til þess að tryggja íbúum þau búsetu- skilyrði sem nauðsynleg eru til að treysta byggðina til fram- tíðar. Frumvarpið er ekki nýtt af nálinni, heldur var það fyrst lagt fram á 126. löggjafarþingi sem fram fór veturinn 2000- 2001, en varð ekki útrætt. Frumvarpið hefur nokkrum sinnum verið flutt síðan efnis- lega óbreytt. Eina sveitarfélagið á Vest- fjörðum sem telur yfir 1.000 manns er Ísafjarðarbær. Lík- lega myndu Tálknafjarðar- hreppur og Vesturbyggð neyð- ast til að sameinast, verði þessi lög að veruleika. Þá myndu Bolungarvík og Súðavík líkast til þurfa að sameinast hvort öðru eða bæði Ísafjarðarbæ. Óvíst er síðan hvernig íbúar umræddra sveitarfélaga taka því að sameinast nágrönnum sínum, en ljóst er að einhver sveitarfélaganna hafa fellt slíkar sameiningar í kosning- um áður. – eirikur@bb.is Sveitarfélög ekki þvinguð til sameining- ar geti þau ekki myndað félagslega heild Nokkur mál eru nú til rannsóknar hjá lögregl- unni á Ísafirði, m.a. tvö innbrot, annað framið snemma í janúar þar sem brotist var inn í söluskála Esso á Suðureyri, þar sem þjófurinn hafði meðferðis nokkra smokkapakka, og síðan annað sem framið var undir lok janúar þar sem brotist var inn í þjón- ustuver Glitnis á Ísafirði og þar stolið tölvuskjá. Lögreglan á Ísafirði vill koma þeim ábendingum til fólks, ef það hafi ein- hverjar upplýsingar um innbrotin að hafa sam- band. Fyrir skömmu bárust lögreglu tilkynningar frá unglingsstúlkum á Ísa- firði, þess efnis að ókunn- ur aðili eða aðilar bæðu um leyfi til að eiga samtal við þær á MSN tölvusam- skiptaforritinu og beraði sig svo í vefmyndavél. Að sögn lögreglu er lítið hægt að segja um það mál á þessum tímapunkti. – annska@bb.is Málum hjá lögreglunni miðar misvel Ísafjarðabær hefur gert tveggja ára þjónustusamning við Símann um talsíma, far- síma og gagnaflutningsþjón- ustu. Sævar Freyr Þráinsson framkvæmdastjóri hjá Síman- um segist afar ánægður með þennan samning. „Ég er afar sáttur með það traust sem Ísa- fjarðarbær sýnir okkur“, segir Sævar. „Við höfum átt í góð- um tengslum við bæjarstjórnir á Vestfjörðum við uppbygg- ingu á traustum fjarskiptum á svæðinu og má þar nefna að flest allir þéttbýliskjarnar svæðisins hafa aðgang að ADSL þjónustu Símans og var Bolungarvík til dæmis fyrsti staðurinn á landinu til að fá aðgang að sjónvarpsþjónustu yfir ADSL. Þá hefur GSM kerfið einnig verið í stöðugri þróun með það að markmiði að þétta dekkunina. Nýlega var settur upp sendir í Ísafjarð- ardjúpi og verið er að vinna að því að koma á GSM sam- bandi á Steingrímsfjarðaheiði í samvinnu við fjarskipta- sjóð.“ Fram kemur í tilkynningu að það sé Símanum mikið fagnaðarefni að fá Ísafjarðar- bæ í endurnýjuð viðskipti og „efla áfram það trausta sam- starf sem Síminn og Ísafjarð- arbær hafa átt undanfarin ár“. Þá segir einnig að Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísa- fjarðarbæjar, sé ánægður með samninginn en með honum sé lækkaður rekstrarkostnaður bæjarins til muna. Fyrir rúmu ári síðan var það kannað hvort hætta ætti við- skiptum við Símann. Þá komu forsvarsmenn OgVodafone til Ísafjarðar og áttu m.a. fund með Halldóri Halldórssyni, bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar, þar sem þeir kynntu starfsemi fyrirtækisins. Eins og kunnugt er lokaði Síminn símaveri 118 í byrjun síðasta árs, og misstu fimm starfsmenn atvinnu sína við það. Þegar tilkynning um lokunina var kunngerð komu fram hugmyndir um að Ísa- fjarðarbær endurskoðaði við- skipti sín við Símann og var sérstakur starfshópur skipaður til verksins. Samkvæmt upplýsingum blaðsins lögðu fulltrúar Voda- fone ekki fram nein tilboð í símaþjónustu og engar ákvarð- anir voru teknar á fundinum. Sagði bæjarstjóri þá að starfs- menn og viðskiptavinir Ísa- fjarðarbæjar myndu ekki finna neinn mun á þjónustunni, yrði sú ákvörðun tekin að flytja viðskiptin yfir til Vodafone. Ekki varð af flutningnum. Ísafjarðarbær gerir tveggja ára þjónustusamning við Símann Skrifað var undir þjónustusamning á mánudag. F.v. Eyþór Ólafur Bergmannsson, viðskiptastjóri hjá Símanum, Ingi Þór Ágústsson bæjarfulltrúi, Sævar Freyr Þráinsson framkvæmdastjóri hjá Símanum og Þorleifur Pálsson bæjarritari.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.