Bæjarins besta - 08.02.2007, Blaðsíða 10
FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 200710
„Gamla sundlaugin okkar er barn síns tíma og mætir ekki lengur kröf-
um samfélagsins, hún er of stutt til að þeir fjölmörgu sem æfa keppnis-
sund hafi viðunandi æfingaaðstöðu, að ekki sé nú talað um aðgengi t.d.
fyrir fatlaða. Margir íbúar bæjarins fara reyndar í næstu bæi, til Suður-
eyrar eða Bolungarvíkur til þess að komast í almennilega laug.“
Sævar Óli Hjörvarsson er mikill athafna-
maður en hann hefur ásamt öðrum góðum
mönnum byggt upp frá grunni verktaka-
fyrirtækið KNH sem nýverið hóf fram-
kvæmdir við gerð Djúpvegar í Ísafjarðar-
djúpi sem er eitt stærsta verk í vegagerð sem
ráðist hefur verið hérlendis í lengri tíma.
Auk þess hefur hann komið að stofnun
margra annarra fyrirtækja. Sævar er einn
þeirra sem hafa háleitar hugmyndir um
hvernig bæta megi og styrkja heimabæ sinn,
Ísafjörð þar sem hann býr með konu sinni
Halldóru Þórðardóttur. Meðal annars hefur
hann unnið að því að gera að veruleika
hugmynd að byggingu íþróttamiðstöðvar og
nýrrar sundlaugar á Ísafirði. Nýverið vakti
athygli hugmynd um að stækkun eyrarinnar
fyrir neðan Torfnes til að búa til landrými til
þess að byggja á, en sú hugmynd var runnin
undan rifjum Sævars meðal annarra. Bæjar-
ins besta fékk Sævar til að taka sér frí frá
önnunum til þess að spjalla um verktaka-
bransann og hugmyndir um uppbyggingu
bæjarins.
Hvert var upphafið að þessu
öllu saman?
„Það byrjaði með því að ég
og Siggi félagi minn (Sigurður
Óskarsson) keyptum steypu-
stöðina árið 1996. Áður var
ég að vinna hjá Magga Helga
(Magnúsi Helgasyni) í Tré-
smiðjunni Hnífsdal. Um ári
seinna opnuðum við Bílagarð
þar sem við seldum nýja og
notaða bíla ásamt varahlutum.
Við ætluðum að stækka það
fyrirtæki mikið en það fór allt
í bruna árið 1999. Eftir brun-
ann byrjuðum við með bíla-
söluna aftur á öðrum stað, í
Edinborgarhúsinu. En það
gekk brösuglega að hafa starf-
semina á tveimur stöðum.
Þegar við byrjuðum svo í
vörubílabransanum upp úr
aldamótunum hættum við
með bílasöluna, það gekk ekki
upp að reka þetta saman. Þá
stofnuðum við verktakafyrir-
tækið Kubb og byrjuðum með
einn vörubíl en sá bíll hefur
bara stækkað, ef svo má segja.
Við sameinuðumst Stíg Arn-
órssyni og fyrirtækið óx smám
saman. Í upphafi vorum við
eingöngu að vinna á Vest-
fjörðum en þegar félagið
stækkaði var ekki nóg um
verkefni á svæðinu svo að til
að geta boðið í stærri verkefni
annars staðar sameinuðumst
við tveimur öðrum fyrirtækj-
um, Norðurtaki ehf. á Sauðár-
króki og Hetti sf. í Hrútafirði
og úr varð KNH ehf. Ári
seinna keyptum við Norðurtak
út, og KNH hefur bara stækk-
að síðan.
KNH kom að stofnun nýs
þjónustufyrirtækis, Símavers-
ins, á síðasta ári sem hefur
verið að bæta við sig verkefn-
um og starfsfólki, vonandi á
það eftir að stækka og dafna.
Nú stendur fyrir dyrum
samvinna við smíðafyrirtækið
Geirnaglann sem er í eigu
Magnúsar Helgasonar. Fyrir-
tækið á húsnæðið þar sem Tré-
smiðjan Hnífsdal var áður til
húsa, og er að koma á fót litlu
verkstæði þar. Geirnaglinn
vinnur núna að verkefnum í
Reykjavík þar sem nóg er að
gera og reyndar á Ísafirði líka.
Við frúin eigum svo hlut í
harðfiskfyrirtækinu Vestfiski
sem er í örum vexti, salan
hefur margfaldast undanfarið
ár og nú er fyrirtækið að stækka
við sig húsnæðið, flytja til
Súðavíkur og kaupa bát, þetta
er því orðið ágætis bland í
poka.“
Vona að bærinn
stækki og dafni
– Það má því segja að þið
stuðlið ötullega að auknu at-
vinnulífi á Ísafirði og ná-
grenni.
„Við gerum okkar besta, við
viljum búa hérna og þar af
leiðandi viljum við að bærinn
verði blómlegri. Ef við sjáum
tækifæri munum við grípa
þau; stækka við okkur og opna
ný fyrirtæki með öðrum aðil-
um.“
Nú var KNH ásamt Vest-
firskum verktökum að takast
á hendur eitt af stærstu verkum
sem boðin hafa verið út í vega-
gerð hérlendis, er það ekki
rétt?
„Jú, ég veit ekki betur en að
þetta sé stærsta verk á Vest-
fjörðum frá því að Vestfjarða-
göngin voru gerð 1996, svo
erum við einnig að vinna
nokkur verk í Reykjavík og
nágrenni, vegagerð í Kolla-
firði auk þess sem við erum
nýbúnir að klára sjóvarnar-
garð á Neskaupsstað svo það
er alveg nóg að gera.“
– Er ekki erfitt að vera að
vinna um allt land og búa á
Ísafirði?
„Það er ekkert erfiðara en
fyrir reykvíska verktaka að
fara um allt land. Jú, reyndar
eru samgöngurnar erfiðari en
við erum að vinna í því, það
verður þó að viðurkennast að
það er ansi langt að fara til
Neskaupstaðar frá Ísafirði,
þetta hefur samt gengið ágæt-
lega.“
Svo að þú ert ekkert á förum
frá Ísafirði á næstunni?
„Nei ég vil búa hér. Ég vona
auðvitað að bærinn stækki og
dafni en við höfum ekki hugs-
að okkur að fara héðan. Ég
hef reyndar grínast með það
að ef ég fæ ekki nýja sundlaug
á Ísafjörð muni ég flytja héð-
an“, segir Sævar og hlær.
Sundlaug fyrir alla
– Er eitthvað að frétta af
fyrirhugaðri byggingu íþrótta-
miðstöðvar á Ísafirði?
„Ísafjarðarbær hefur látið
gera þarfagreiningu og kostn-
aðaráætlun sem bæjaryfirvöld
eru að skoða þessa dagana, nú
bíður maður eftir viðbrögðum.
Þetta gengur ansi seint, við
byrjuðum fyrir rúmu ári að
leggja tíma og peninga í að
koma þessu á framfæri og við
erum ekki miklu nær takmark-
inu í dag. Ráðamenn eru þó
farnir að skoða hlutina af al-
vöru, við viljum auðvitað fara
að fá svör, já eða nei og hve-
nær. Jafnvel þótt það verði
ekki fyrr en 2008 eða -9 þá
væri gott að fá einhver við-
brögð svo menn geti farið að
gera einhverjar áætlanir. Það
er full þörf á slíkri miðstöð
fyrir bæjarbúa og til að gera
bæinn meira aðlaðandi. Mað-
ur sér það alls staðar um landið
að sveitarfélög eru ýmist að
byggja svona hús og bjóða
svo út reksturinn, eða bæta þá
aðstöðu sem fyrir er. Það hlýt-
ur að koma fram í þessari
þarfagreiningu að það sé þörf
fyrir svona aðstöðu hér í bæ.“
– Hvernig hafa viðbrögð
bæjarbúa verið?
„Þau hafa verið alveg gífur-
leg. Ég er spurður frétta af
þessu á hverjum degi. Allir
vilja nýja og stærri sundlaug,
fá svör hvort af byggingunni
verði eða ekki. Þetta er í
grundvallaratriðum það sama
og að maður vilji gera heimili
sitt fínt og þægilegt, sömu-
leiðis viljum við hafa bæinn
okkar vistlegan og eiga kost á
góðri aðstöðu til að rækta
heilsuna. Góð sundlaug með
pottum og leiktækjum væri
fyrir alla, unga sem aldna.
Gamla sundlaugin okkar er
barn síns tíma og mætir ekki
lengur kröfum samfélagsins,
hún er of stutt til að þeir fjöl-
mörgu sem æfa keppnissund
hafi viðunandi æfingaað-
stöðu, að ekki sé nú talað um
aðgengi t.d. fyrir fatlaða.
Margir íbúar bæjarins fara
reyndar í næstu bæi, til Suður-
eyrar eða Bolungarvíkur til
þess að komast í almennilega
laug. Auðvitað ættum við hér
á Ísafirði að drífa okkur í hlut-
unum og gera það með glæsi-
brag.
Það er ekki auðvelt að stuðla
að heilsueflingu en krafan í
dag er einfaldlega sú að fólk
geti ræktað líkamann í sinni
heimabyggð. Stebbi Dan (Stef-
án Dan Óskarsson) hefur gert
kraftaverk og ég dáist að hon-
um, en það þarf að lyfta þessu
upp og koma með betri að-
stöðu. Ég er þá ekki að tala
um einhverja gríðarlega að-
stöðu eins og t.d. hjá World
Class í Reykjavík, heldur bara
góða aðstöðu fyrir fólk. Íþrótta-
hús, fótboltavöllur og skíða-
aðstaða er allt saman góðra
gjalda vert en betur má ef duga
skal og nú finnst manni komið
að því að fá í bæinn almenni-
lega aðstöðu til líkamsræktar
og sundlaug sem allir frá 0-
100 ára geta notað. Þetta má
ekki standa fast í kerfinu,
menn þurfa bara að setjast
niður og taka ákvarðanir.
Hjá öllum flokkunum var
bygging sundlaugar eitt af
kosningaloforðunum. Svo
gerist ekki neitt og við þurfum
að fá svör, er þetta af eða á.
Auðvitað skil ég að bærinn sé
blankur en stundum þarf að
hugsa til framtíðar þó það
kosti peninga, fólk vill ekki
búa þar sem þjónustustigið er
lágt. Þetta er bara spurning
um hvernig litið er á hlutina.“
Við ættum að fara að dæmi
Súðvíkinga og reyna að laða
fólk og fyrirtæki að bænum.
Fyrirtæki skapa atvinnu, við
eigum að nota tækifærið á
meðan uppsveiflan er. Fólk er
farið að byggja á Ísafirði á ný
eftir ládeyðu í fjöldamörg ár
og fasteignaverð hækkar. Það
þarf að halda þessum bolta á
lofti og hamra járnið á meðan
það er heitt.“
Stærri bæ
til að byggja á
– Nú hefur þú ásamt fyrir-
tæki þínu Eyrarsteypu ehf.
óskað eftir samstarfi við Ísa-
fjarðarbæ um landmótun og
uppbyggingu verslunar- og
íbúðabyggðar við Pollinn á
Ísafirði. Hvernig kom sú hug-
mynd upp?
„Þegar við byrjuðum að
varpa fram hugmyndinni um
sundlaugina höfðum við hugs-
að okkur að byggja hana í
Pollinum. Það þótti of dýr
framkvæmd að fara að dæla
upp fyllingu og verja með
grjóti. Svo þegar flæddi yfir
eyrina um jólin datt okkur í
hug að slá tvær flugur í einu
höggi og búa til landsvæði
um leið og við myndum verja
bæinn fyrir sjógangi. Stóra
spurningin er bara hvernig eigi
að gera það. Menn deila um
það og þurfa einfaldlega bara
að ræða málin og komast til
botns í því.
Miðbærinn á Ísafirði er ein-
stakur og við bæjarbúar vilj-
um halda honum lifandi og
huggulegum. Á mörgum öðr-
um stöðum á landinu er enginn
miðbær sem slíkur.
Við þurfum að halda mið-
bænum óskertum en búa samt
til rými fyrir fólk til að byggja
á. Mín skoðun er sú að verk-
smiðjuhverfið á höfninni sé
ekki rétti staðurinn til að
byggja íbúðarhúsnæði. Hvar
á svo að koma iðnaðarhús-
næði fyrir þegar þörf verður á
því.
Hugmyndin var sú að koma
með landfyllingu fyrir neðan
Torfnes sem myndi skapa
pláss til byggingar. Það má
svo deila um það hvort ekki
ætti að stækka eyrina frekar
að norðanverðu. Það hefur
verið rætt um að til að stóru
skemmtiferðaskipin geti kom-
ið inn á Pollinn, þyrfti að
dýpka sundin þar sem grynn-
ingarnar eru og þá væri hægt
að nota sandinn sem til félli í
landfyllingu.“
– Hvernig hafa viðbrögð
bæjarbúa verið?
„Þau hafa verið góð, ég hef
allavega ekki heyrt neitt annað
en gott. Þetta eru náttúrulega
bara hugmyndir sem enn eru
á frumstigi. Það væri samt
gaman að gera þetta, búa til
landrými svo hægt sé að
byggja húsnæði og kannski
smábátahöfn rétt við bensín-
stöðina, gera eitthvað sniðugt.
Auðvitað er þetta marga ára
plan en menn þurfa að huga
að þessu og hvernig hægt sé
að framkvæma það.
Það er allt á uppleið, bærinn
verður alltaf fallegri og nýjar
hugmyndir kvikna. Tökum
sem dæmi að þegar háskólinn
kemur þarf að hafa gott pláss
undir hann í staðinn fyrir að
hola honum niður í verk-
smiðjuhverfi. En þetta eru
náttúrulega allt langtímaáætl-
anir og fyrsta tillaga er nú
ekkert heilög. Menn þurfa að
spekúlera í því hvernig eigi
að gera þetta allt saman. Þetta
er bara spurning hvernig við
viljum hafa bæinn okkar. Eig-
um við að stækka hann að
norðanverðu þar sem nepjan
er, eða eigum við að stækka
hann inn í Pollinn þar sem oft
er logn og gott veður. Hvernig
sjá bæjarbúar Pollinn fyrir
sér? Væri hann eitthvað minna
fallegur ef hann væri minnk-
aður örlítið með brattari bakka,
fallegum gróðri, steinum og
göngustíg þar á ofan? Ég sé
ekki að hann yrði eitthvað
verri ásýndar þótt við mynd-
um breyta aðeins laginu á hon-
um. En ég er Hnífsdælingur
og kannski eru ekki allir sam-
mála mér“, segir Sævar og hlær.
„En ef við myndum breyta
eyrinni í upprunalegt horf þá
byggju ekki margir á henni.
Ansi mörg hús væru þá komin
í kaf.“
Best að vera heima
– KNH er að vinna út um
allt land, er þetta ekki mikið
Gríp tækifærin þegar ég