Bæjarins besta


Bæjarins besta - 08.02.2007, Síða 9

Bæjarins besta - 08.02.2007, Síða 9
FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2007 9 Kvensjúkdóma- læknir á Ísafirði Kristín Jónsdóttir, kvensjúkdómalæknir verður með móttöku á Ísafirði dagana 7. til 10. febrúar. Tímapantanir í síma 450 4500 á milli kl. 08:00 og 16:00 alla virka daga. Óska umsagnar um reykingabann Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið hefur óskað eftir umsögn Ísafjarðarbæjar um drög að reglugerð um takmarkanir á tóbaksreykingum. Í reglugerðinni eru tekin upp ákvæði laga um tóbaksvarnir sem takmarka eða banna tóbaksreykingar. Helsta nýmæli reglugerðarinnar lýtur að nánari útfærslu á banni við tóbaksreykingum í þjónusturýmum stofnana, fyrir- tækja og félagasamtaka, svo sem á veitinga- og skemmtistöðum. Samkvæmt lögunum eru tóbaksreykingar óheimilar í þjónusturými stofnana, fyrirtækja og félagasamtaka, svo sem á veitinga- og skemmtistöðum og þar sem menningar- og félagsstarfsemi fer fram, þ.m.t. íþrótta- og tómstundastarf. Sama gildir um tilsvarandi svæði utan húss séu þau ekki nægilega opin til að tryggja viðunandi loftstreymi. Óskað er eftir því að umsögn Ísafjarðarbæjar berist fyrir 12. febrúar. Ljósastaurar fluttir vegna kvartana húseigenda að Túngötu 1 á Ísafirði Verið er að endurskipu- leggja staðsetningu ljósa- staura við bæjarbrekkuna á Ísafirði. Í ágúst síðastliðnum barst bæjarfélaginu erindi frá eigendum húseignarinnar við Túngötu 1, undirritað af Ragn- heiði Hákonardóttur og Guð- bjarti Ásgeirssyni, þar sem staðsetningu nýs ljósastaurs er mótmælt. Segir í bréfinu að miklu muni um nýja staurinn, sem staðsettur var á horni Túngötu og Hafnarstrætis, þar sem hann falli þvert yfir garð- myndina, séð út eftir götunni, ólíkt því sem eldri ljósastaur við Túngötu gerir. „Nýi ljósa- staurinn sker því götumyndina og verður ávallt í forgrunni, bæði við hús og götu og rýfur friðhelgi götumyndarinnar.“ Þá segir einnig í bréfinu: „Í bæjarbrekkunni var áður einn staur staðsettur rétt við lóðar- mörk Túngötu 1 og Sóltúns. Breyting hefur nú orðið á þar sem reistir hafa verið þrír staurar í brekkunni. Það skal tekið fram að ekkert samráð var haft við eigendur Túngötu 1 um þetta staðarval fremur en aðrar framkvæmdir við lóð og nágrenni húss.“ Nú verða fjarlægðir tveir ljósastaurar í brekkunni, og verður einn staur settur í staðinn og fer hann niður ofar í brekkunni. Í sumar munu svo gatnamótin löguð, og ljósastaur sem stendur við Hafnarstræti, tæp- um tíu metrum frá gatnamót- um Túngötu og Hafnarstrætis, færður nær Túngötu. Að sögn Jóhanns Birkis Helgasonar, bæjartæknifræð- ings Ísafjarðarbæjar, er útlit fyrir að framkvæmdin verði verulega kostnaðarsöm. „Þetta er gröftur innan um vatnslagn- ir, háspennustrengu og ljós- leiðara“, segir Jóhann og enda hafi ekki verið haft sam- ráð við íbúa þegar nýr ljósa- staur þar var settur niður. „Þeg- ar kvörtunarbréf okkar er tekið fyrir vorum við búin að hafa samband við bæjartæknifræð- ing og bæjarstjóra, og óska eftir viðræðum“, segir Ragn- heiður. „Við komum úr sum- arfríi og urðum þess vör að búið var að grafa frá allri girð- ingunni svo ekki var mannfært inn í húsið, sem er í útleigu. Þetta verk var framkvæmt án samráðs við okkur, hvað þá að við hefðum verið látin vita. Við óskuðum eftir viðræðum um þetta mál, en okkur var ekki ansað með það. Litlu seinna sé ég að verið er að leggja fyrir staurunum. Í kjölfar þessa ítrekum við fyrirspurn um viðræður, þar sem sýnt var að staurarnir voru ekki settir niður með þeim hætti að þeir fylgdu samþykkt Ísafjarðarbæjar um friðaða götumynd Túngötu. Friðuð götumynd þýðir að þær kvaðir eru lagðar á húseigendur við kveður verkið vandasamt. „Það má segja að það þurfi að handgrafa þetta.“ „Kostnaðurinn skrifast alfarið á bæjaryfirvöld“ Ragnheiður Hákonardóttir segir að kostnaður við breyt- ingarnar sé ekki á sína sök, þessa götu að þeir mega ekki hrófla við eða breyta götu- mynd eða ásýnd götunnar Túngötumegin frá“, segir Ragnheiður, en umræddur staur var settur niður Túngötu- megin á horni Hafnarstrætis og Túngötu. „Við óskuðum eftir viðræðum um þetta, og vildum í rauninni fara fram á að staurarnir yrðu ekki settir niður með þessum hætti, en því var ekki sinnt.“ Þá segir Ragnheiður að kvörtunarbréf hafi verið skrif- að. Fengust þær upplýsingar bréfið yrði tekið fyrir í bæjar- ráði. „Síðan heyrði ég í for- manni bæjarráðs sem sagði að samkomulag væri um að leysa þetta mál, svo bréfið var ekki tekið fyrir strax. Samt sem áður er bréfið tekið fyrir nokkru seinna, þar sem ekkert hafði orðið um efndir í viðtöl- um við bæjarstjóra og bæjar- tæknifræðing, enda hafði verkinu allan tímann verið haldið áfram þrátt fyrir þessar málaleitanir. Okkur var líka sagt það af bæjartæknifræð- ingi að okkur kæmi þetta ekki nokkurn skapaðan hlut við.“ Segir Ragnheiður að þau hafi fengið skriflegar upplýs- ingar um niðurstöðu bæjar- ráðs, sem var á þá leið að settur skyldi niður staur ofar í brekkunni. „Ég sá svo í gær (þriðjudag í síðustu viku) að verið var að setja niður staur þétt við hliðstólpann, og tók myndir af því verki. Ég hef ekki gert athugasemdir við þessa ákvörðun bæjarráðs, en það var ljóst frá upphafi að sá kostnaðarauki sem Jóhann Birkir, bæjartæknifræðingur, vísar til væri alfarið sök bæj- arins, vegna þess að ekki var gengið í þetta verk í upphafi eins og við höfðum farið fram á. Með því hefði mátt koma í veg fyrir þennan kostnað. Þess vegna er það bæði rangt og ósanngjarnt að bæjartækni- fræðingur skuli, með orðum sínum, varpa slíku yfir á okkur til að hleypa illu blóði í fólk. Ég tel nóg hafa verið gert í sumar þegar bæjarstjóri og bæjartæknifræðingur kenndu okkur um að ekki væri hægt að lýsa Hlíðarveginn í viðtöl- um við íbúa þar. Það er óþol- andi í litlum samfélögum að starfsmenn bæjarins skuli etja íbúum saman með svona fram- komu og ósannsögli.“ Jóhann Birkir segist aldrei hafa sagt að kostnaður við flutning ljósastaura við Tún- götu væri sök þeirra sem kvörtuðu, líkt og Ragnheiður Hákonardóttir, húseigandi Túngötu 1, heldur fram hér að ofan. „Ég vil koma því á fram- færi að þar sem talað er um kostnað við færslu tveggja staura, að ég hef aldrei sagt að kostnaður við færslu þeirra væri sök þeirra sem kvört- uðu“, segir Jóhann Birkir. „Enda var bara óskað efir því að það yrði gert. Bréfið var tekið fyrir í bæjarráði sem ákvað að staurarnir yrðu færð- ir og þar af leiðandi er það ákvörðun bæjarins að fara út í þann kostnað.“ – eirikur@bb.is Túngata 1 og staurinn sem hefur nú verið fjarlægður.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.