Bæjarins besta


Bæjarins besta - 08.02.2007, Qupperneq 15

Bæjarins besta - 08.02.2007, Qupperneq 15
FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2007 15 Blaðamaður Blaðamaður óskast til starfa á Bæjarins besta og fréttavefinn bb.is. Um er að ræða fullt starf frá mars-apríl 2007. Viðkomandi þarf að hafa gott vald á ís- lensku og góða almenna þekkingu, eink- um á vestfirsku samfélagi. Jafnframt þarf hann að vera framtakssamur og áræðinn. Nánari upplýsingar gefur Sigurjón J. Sig- urðsson í síma 456 4560. Flestar nýskráningar til smábátaútgerða Eins og sagt hefur verið frá voru nýskráð hlutafélög og einkahlutafélög á Vestfjörðum á nýliðnu ári 57 talsins. Langflestar voru nýskráningar smábátaútgerða, eða alls 21 talsins. Næstflest voru hluta- félag sem stunda leigurekstur atvinnuhúsnæðis, eða 4. Þrjú hlutafélög um húsbyggingar og aðra mannvirkjagerð voru stofnuð. Tvö hlutafélög voru stofnuð um hvern eftirtalinna rekstra: Leigu á vinnuvélum með stjórnanda; bílaviðgerðir og viðhald; matsölustaðir; leigu á íbúðarhúsnæði; og rekstur eignarhaldsfélaga. Eitt hlutafélag var stofnað í hverjum af nítján öðrum flokkum. Tölur þessar koma frá Hagstofu Íslands og miðast við nýskráningar hlutafélaga og einkahlutafélaga á síðasta ári. Fegurðarsamkeppni Vest- fjarða verður haldin á Ísafirði 4. apríl og er undirbúningur keppninnar þegar hafinn. Samkvæmt venju á keppnin að vera haldin annað hvert ár en ekki fengust nógu margir þátttakendur í fyrra og var hún því blásin af. Nokkrar stúlkur hafa nú þegar samþykkt þátt- töku en enn er leitað eftir fleiri keppendum. Metþátttaka var í síðustu keppni sem haldin var 2004 þar sem níu stúlkur tóku þátt. Af þeim tóku þrjár stúlkur þátt í keppninni um titilinn Ungfrú Ísland sem haldin var í Reykjavík þar sem tvær vestfirskar stúlkur kom- ust í fyrstu fimm sætin sem er besti árangur fulltrúa Vest- fjarða í keppninni til þessa. Þá vakti hin ísfirska Ásdís Svava Hallgrímsdóttir mikla athygli í fegurðarsamkeppn- um á síðasta ári þar sem hún keppti fyrir hönd Íslands í Ungfrú Heimi og Ungfrú Evr- ópu eftir góðan árangur hér heima í keppnunum um titil- inn Ungfrú Reykjavík og Ungfrú Ísland. Í viðtali sem birtist í BB í nóvember segir Ásdís Svava: „Það hefði verið gaman að taka þátt í Ungfrú Vestfirðir en það var því miður ekki haldin nein keppni í ár. Ef svo hefði verið hefði ég tekið þátt í henni.“ Óhætt er að segja að margir bíði spennt- ir eftir að sjá hver árangur vest- firsku stúlknanna verður í ár. Tekið er á móti ábendingum um vænlega þátttakendur í Stúdíó Dan í síma 456 4022 eða hjá framkvæmdastjóra keppninnar í ár, Rakel Magn- úsdóttur, í síma 867 5161. Fegurðarsamkeppni Vestfjarða haldin í apríl Félagar í Verkalýðsfélagi Vestfirðinga eru ánægðir með störf sín Margir ósáttir við launin Mun fleiri félagar í Verka- lýðsfélagi Vestfirðinga, eða 44%, telja líklegt að þeir verði í sama starfi en hjá öðrum félögum SGS. Þetta kemur fram í niðurstöðum kjara- og viðhorfskönnunar sem Capa- cent Gallup vann fyrir Starfs- greinasamband Íslands í haust. Að öðru leiti var útkoman svip- uð hjá Verk-Vest og öðrum aðildarfélögum Starfsgreina- sambandsins. Þó voru mun fleiri félagsmenn Verk-Vest ekki sáttir við laun sín en aðrir. 25% þeirra Verk-Vestfélaga sem svöruðu könnuninni sögð- ust vera mjög ósáttir við laun sín. Ánægja með launin er því varla ástæðan til að fólk telur líklegt að það verði í sömu vinnu eftir þrjú ár. Rétt er að taka fram að ekki kom fram marktækur munur á meðal- launum milli Verk-Vest og annarra félaga SGS. Á vef Verk-Vest er tekið fram að grennslast hefur verið eftir því hvort launahækkun 1. júlí sl. hafi skilað sér til félaganna. Ekki hafa komið í ljós teljandi misbrestir á því. Hið sama virðist eiga við um önnur félög Starfsgreinasam- bandsins, en u.þ.b. 40% þeirra sem þátt tóku í könnuninni töldu að þeir hefðu ekki fengið hækkun eins og þeim bar. Hlutfallið var svipað hjá Verk- Vest og öðrum í SGS hvað þetta snerti. Niðurstöður könnunarinnar voru kynntar á fundi trúnaðar- mannaráðs Verk-Vest. Var það Þórhallur Ólafsson starfs- maður Capacent Gallup sem kynnti helstu niðurstöður fyrir fundarmönnum. Alls voru nýskráð 57 hluta- félög og einkahlutafélög á Vestfjörðum í fyrra, en árið þar á undan voru skráð félög 61 talsins. Aðeins einu sinni frá árinu 1999 hafa nýskrán- ingar verið færri, en það var árið 2004 þegar 49 félög voru skráð. Alls voru nýskráningar hlutafélaga og einkahlutafé- laga í ár 3.191, og voru því 1,8% nýskráðra félaga skráð á Vestfjörðum. Til saman- burðar má geta þess að Vest- firðingar eru um 2,4% lands- manna. Nýskráð fyrir á hverja 1.000 íbúa voru þannig 8 á Vest- fjörðum en 10 á landsvísu. Undanfarin þrjú ár hafa ný- skráð félög á Vestfjörðum ver- ið færri en nýskráð félög á landsvísu en á árunum frá 1999-2003 voru þau jafnan fleiri á Vestfjörðum en á landsvísu. Flestar voru ný- skráningar árið 2002 þegar alls 128 félög voru nýskráð, eða 16 á hverja 1.000 íbúa. Voru þá 4,1% nýskráðra fyrir- tækja skráð á Vestfjörðum. Tölurnar hér að ofan eru frá Hagstofu Íslands og eiga allar við nýskráningar hlutafélaga og einkahlutafélaga á tímabil- inu 1999-2006. – eirikur@bb.is Nýskráningum hlutafélaga og einka- hlutafélaga fækkar á Vestfjörðum Ísafjörður.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.