Bæjarins besta


Bæjarins besta - 22.03.2007, Qupperneq 1

Bæjarins besta - 22.03.2007, Qupperneq 1
„Bakgrunnur okkar gerir okkur að því sem við erum“ Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 300 m/vsk Fimmtudagur 22. mars 2007 · 12. tbl. · 24. árg. Segir ályktun sjávarútvegsklasa um mun á flutningskostnaði rétta Jón Örn Pálsson, klasastjóri sjávarútvegsklasa Vestfjarða, segir að litlu skipti hvort lengra sé til Ísafjarðar en til Hornafjarðar þegar litið er til flutningskostnaðar á staðina, en eins og sagt hefur verið frá er 25% dýrara að flytja eitt tonn af vörum með flutninga- bíl frá Reykjavíkur til Horna- fjarðar en til Ísafjarðar. Þessu mótmælti Kristín Hálfdánar- dóttir, rekstrarstjóri Samskipa, á dögunum og benti á að vega- lengdin væri töluvert meiri, auk þess sem hér væri yfir erfiðari vegi að fara. „Málið er að það skiptir engu hvort það er lengra til Hornafjarðar, það er þá bara 25% dýrara miðað við vega- lengd en til Djúpavogs“, segir Jón Örn. Þá segir hann að reikningarnir séu gerðir út frá skýrslu nema við háskólann á Bifröst og leggur áherslu á að þó tölurnar komi úr skýrslunni séu útreikningar þeir sem vitn- að hefur verið til frá sjávarút- vegsklasanum. „Það er ekkert í skýrslunni sem segir að það sé 25% dýrara til Ísafjarðar en Hornafjarðar. Nemandinn ályktaði ekkert um það, heldur dró sjávarútvegsklasinn þá ályktun út frá skýrslunni.“ Niðurstaðan var fengin að sögn með því að bera fram þær verðskrár sem skýrslu- höfundur leggur fram, sem munu vera gildandi verðskrár flutningafyrirtækjanna. „Verðskrá Eimskipa og Sam- skipa í skýrslunni segir að það sé 25% dýrara að senda vörur til Vestfjarða en til Suðaustur- lands“, segir Jón Örn. „Enda staðfestir Kristín á bb.is að það sé 25% dýrara að reka bíl til Vestfjarða. Ályktun sjávar- útvegsklasans er því kórrétt, það er 25% dýrara að senda eitt tonn af vörum til Vest- fjarða en til Hornafjarðar og niðurstaðan er sú að erfiðari vegir og meiri kostnaður í við- haldi bíla sé orsökin.“ – eirikur@bb.is Guðbjartur Ólafsson Alls féllu tíu snjóflóð á vegi á norðanverðum Vestfjörðum um helgina. Samkvæmt upp- lýsingum frá Vegagerðinni féllu þrjú flóð á Kirkjubólshlíð í Skutulsfirði á laugardag og tvö á sunnudag. Þá féllu tvö flóð á Súðavíkurveg á sunnu- dag, en maður á snjóruðnings- tæki varð fyrir öðru þeirra. Ökumanninn, Guðbjart Ólafs- son, sakaði ekki. Á Hnífsdalsveg féllu tvö flóð aðfaranótt sunnudags. Á veginn um Óshlíð féll eitt flóð en sex önnur flóð sem féllu úr hlíðinni lentu á stálþiljum og netakössum sem komið hefur verið upp til að verja veginn. – tinna@bb.is Tíu snjóflóð féllu um helgina Leiðin frá Ísafirði til Súðavíkur lokaðist á sunnudag vegna snjóflóða. – sjá viðtal í miðopnu við Halldór Gunnar Pálsson, tónlistarmann með meiru frá Flateyri

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.