Bæjarins besta - 22.03.2007, Side 2
FIMMTUDAGUR 22. MARS 20072
Þennan dag árið 1972 kom í ljós að Geirfugladrangur,
vestur af Eldey, hafði hrunið eða sokkið í sæ. Drangurinn,
sem er grunnlínupunktur landhelginnar var áður um tíu
metra hár en kemur nú aðeins upp úr sjó á fjöru.
Dagurinn í dag
22. mars 2007 – 81. dagur ársins
Ekki háð-
ar mati
Umhverfisnefnd Ísa-
fjarðarbæjar telur að Selja-
dalsleið og Skarfaskers-
leið séu ekki háðar mati á
umhverfisáhrifum, en Skipu-
lagsstofnun óskaði nýver-
ið umsagnar Ísafjarðar-
bæjar um hvort og á hvaða
forsendum jarðgöng á
milli Bolungarvíkur og
Ísafjarðar skuli háð mati á
umhverfisáhrifum.
Hvað varðar Hnífsdals-
leið, þá telur umhverfis-
nefnd að hún sé háð mati,
á þeirri forsendu að hún
hafi í för með sér meira
inngrip í umhverfið og
vegna nálægðar við byggð.
Umhverfisnefnd bendir á
að þegar leið hefur verið
valin er þörf á að fara í
breytingu á aðalskipulagi.
Það er skoðun umhverfis-
nefndar að ef Seljadalsleið
eða Skarfaskersleið verði
valdar, ætti Djúpvegur að
liggja á uppfyllingu neðan
byggðar.
Jón Kristmannsson á
Ísafirði hefur boðið Ísa-
fjarðarbæ að kaupa hest-
hús sitt að Hauganesi í
Skutulsfirði. Í bréfi sem
hann hefur skrifað bæjar-
yfirvöldum kemur fram
að hesthúsið er 137,2 m²
að stærð. Fasteignamat
þess er 1.450.000 krónur,
en brunabótamat 5.160.
000 krónur.
Fram kemur í bréfinu
að náist samningar um
kaup á eigninni hefur eig-
andi hússins hug á að
flytja hesta sína í hest-
húsahverfið í Engidal.
Bæjarráð fjallaði um er-
indið á fundi sínum í byrj-
un vikunnar, og fól bæjar-
stjóra að ræða við bréfrit-
ara.
Vill selja
bænum
hesthús
Stjörnubílar og Vesturferðir semja
Rútufyrirtækið Stjörnubílar og ferðaskrifstofan Vesturferðir hafa náð samningum um akstur
skemmtiskipafarþega í sumar. Samningurinn felur í sér að Stjörnubílar sjá um allan akstur sem
tengist skemmtiskipum á vegum Vesturferða, bæði með eigin rútum og rútum samstarfsaðila. Í
frétt á heimasíðu Vesturferða segir að það sé von beggja aðila að samningurinn veiti báðum aðilum
öryggi og festu í því mikla starfi sem framundan er við þjónustu við skemmtiskipafarþega. Í sumar
er áætlað að 28 skemmtiferðaskip komi til Ísafjarðar, það fyrsta kemur 25. maí og það síðasta
kemur 2. september. Farþegafjöldinn á skipunum er samtals tæp 19.000 manns.
Lilja Rafney Magnúsdóttir,
varaþingmaður VG í Norð-
vesturkjördæmi fékk sam-
þykkta þingsályktunartillögu
um þjónustumiðstöð fyrir
útgerð og siglingar í Norður-
höfum á lokadegi Alþingis,
sem var síðastliðinn laugar-
dag. Tillagan var samþykkt
samhljóða með 53 atkvæðum
en 10 þingmenn voru fjarver-
andi.
Samkvæmt tillögunni felur
Alþingi ríkisstjórninni að gera
úttekt á möguleikum þess að
efla norðanverða Vestfirði
sem miðstöð þjónustu við
Austur Grænland og skoða
sérstaklega þann kost að þjón-
ustumiðstöð og umskipunar-
höfn fyrir siglingar í Norður-
höfum verði á Vestfjörðum.
Kemur fram í tillögunni að
hafa eigi samráð við heima-
menn við gerð úttektarinnar.
Segir Lilja Rafney að ánægju-
legt sé að málið hafi fengið
svo skjóta afgreiðslu og verið
sett í forgangsröð í þinglok.
„Enda er það gott innlegg í þá
vinnu sem er í gangi að hálfu
sveitarfélaga á Vestfjörðum
og ríkisvaldsins um eflingu
atvinnulífs á Vestfjörðum“,
segir Lilja Rafney.
Gera á úttekt á eflingu Vestfjarða sem
þjónustumiðstöðvar fyrir Austur Grænland
Fjölmörg verkefni á Vestfjörð-
um styrkt af Ferðamálastofu
Ferðamálastofa hefur af-
greitt umsóknir um styrki til
úrbóta í umhverfismálum.
Fjölmörg verkefni á Vest-
fjörðum fá styrk að þessu
sinni. Þannig fær Ísafjarðar-
bær einnar milljónar króna
styrk til að koma upp þurrsal-
erni í Hornvík. Ferðamála-
samtök Vestfjarða fá 1,5 millj-
ónir til gerðar gönguleiða-
korta. Víkingaverkefni um
Gísla sögu Súrssonar fær eina
milljón í söguskilti. Þá verða
veittar 500.000 krónur til
Ferðaþjónustunnar Grunna-
vík til að bæta aðgengi að
lendingarstað í Grunnavík.
Sjóferðir Hafsteins og Kidd-
ýjar ehf fá 400.000 krónur til
lendingarbóta í Aðalvík, Hlöðu-
vík og Hornvík. Fleiri sem fá
styrk eru t.d. Ævintýradalur-
inn ehf og Guðmundur J. Hall-
varðsson. Þó nokkrir styrkir
falla í hlut Strandamanna. Sem
dæmi má nefna að Stranda-
galdur ses. fær úthlutað einni
milljón til umhverfisbóta við
Kotbýli kuklarans á Klúku í
Bjarnarfirði. Eins fær Ásbjörn
Magnússon eina milljón til
umhverfisbóta í Grímsey á
Steingrímsfirði.
Ferðamálastofu bárust 131
umsókn um styrki til úrbóta á
ferðamannastöðum á yfir-
standandi ári en 62 hlutu styrk
að þessu sinni. Til úthlutunar
voru um 48 milljónir króna
sem skiptast í fjóra flokka.
Við úthlutun að þessu sinni
var sérstaklega horft til úrbóta
í aðgengismálum á áninga- og
útivistarstöðum.
Á heimasíðu Ferðamála-
stofu segir að til viðmunar við
úthlutun er stuðst við reglur
um forgangsröðun styrkja.
Mikilvægi verkefna er vegið
eftir því hver áhrif fram-
kvæmdarinnar eru á náttúru
og umhverfi.
– tinna@bb.is
Ferðaþjónustan Grunnavík fær hálfa milljón til að bæta aðgengi að lending-
arstað. Á myndinni er Friðrik Jóhannsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins.