Bæjarins besta - 22.03.2007, Síða 3
FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007 3
Upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn
Bæjarráð Bolungarvíkur hefur lagt til við bæjarstjórn að opnuð verði upplýsingamiðstöð fyrir
ferðamenn í bænum og á að taka hana í gagnið ekki síðar en þann 1. júní nk. Félagar í
handverksfélaginu Drymlu verða fengnir til að taka að sér rekstur upplýsingamiðstöðvarinnar
og hefur bæjarstjóra verið falið að ganga frá samningi við félagið. Til stendur að félagar fái
aðstöðu undir starfseminu á neðri hæð hússins við Hafnargötu 9 í Bolungarvík. Þá gerði
bæjarráð það einnig að tillögu sinni að ráðinn verði sumarstarfsmaður til starfa í upplýsinga-
miðstöðinni í sumar, auk þess sem hann á að sinna öðrum ferðamálum fyrir svæðið.
Útboð
Hafnarstjórn Ísafjarðarbæjar óskar eftir
tilboð í verkið: Suðureyri, dýpkun smá-
bátahafnar.
Helstu magntölur:
Dýpkun 4000m³
Grjótfláar 100m³
Fylling 30m³
Rif á eldri bryggju
Verkinu skal lokið eigi síðar en 20. maí
2007. Útboðsgögn verða afhent á bæjar-
skrifstofum Ísafjarðarbæjar og á skrifstofu
Siglingastofnunar, Vesturvör 2, Kópavogi,
frá og með föstudeginum 23. mars gegn
5.000 króna greiðslu.
Tilboð verða opnuð á sömu stöðum
þriðjudaginn 3. apríl 2007 kl. 11:00.
Brýnt að þingmenn NV-kjördæmis taki sam-
an áherslur til að leggja fyrir ríkisstjórnina
Þingmenn sem sátu fundinn
Lifi Vestfirðir í Hömrum, hitt-
ust í síðustu viku og ræddu sam-
eiginlegan tillöguflutning um
atvinnumál á Vestfjörðum.
Guðjón Arnar Kristjánsson
tók að sér að boða til fundarins
og segir hann vilja til þess að
hittast á framhaldsfundi með
öllum þingmönnum Norð-
vesturkjördæmis. „Við þurf-
um að taka saman einhverjar
áherslur til að fara með til
ríkisstjórnarinnar, kannski
ekki of marga málaflokka,
heldur einbeita okkur að at-
vinnumálunum og því sem
kæmi sér best fyrir svæðið.
Mér finnst skipta miklu máli
tengja saman norður- og suð-
urfirðina og að Vestfirðir verði
settir á flýtiáætlun, því það
verður að vera greiður að-
gangur á milli fólks.“
Guðjón Arnar segir einnig
miklu máli skipa fyrir atvinnu-
lífið á svæðinu að það komi
einhvers lags vilyrði fyrir end-
urgreiðslu á flutningskostn-
aði, eða styrkir til strandflutn-
inga. „Við verðum líka að
horfa ákveðið til þess að há-
skólasetrið verði að háskóla
og að það gerist sem fyrst.
Við sjáum það hafa virkað
vel á öðrum stöðum. Það þarf
að hella sér í skólamálin mark-
vissari hætti,“ segir Guðjón
Arnar um uppbyggingu há-
skóla á svæðinu, en raddir um
sjálfstæðan háskóla voru há-
værar á fundinum í Hömrum.
„Kannski getum við náð
saman um þessa þætti,“ segir
Guðjón Arnar og bætir við.
„Það er ekki gott að vera í
þessari stöðu í aðdraganda
kosninga, því þetta er ekki
auðveldasti tíminn til að kom-
ast að samkomulagi– en það
liggur mikið við og við gerum
það sem við getum.“Guðjón Arnar Kristjánsson á fundinum í Hömrum.
Árið 1997 voru yngstu íbúar
Vestfjarða, frá 0-9 ára gamlir,
16,6% íbúa. Samkvæmt tölum
sem miða við síðustu áramót
eru íbúar á þessum aldri nú
12,9% af heildaríbúafjölda og
hefur fækkað úr 1.439 í 964,
eða um 33%. Til aldurshóps-
ins 10-19 ára töldust 1.513
einstaklingar árið 1997, sem
gerir 17,5% af heildaríbúa-
fjölda, en við síðustu áramót
voru þeir 1.221, sem gerir
16,4%. Fækkaði þeim um
19% frá 1997.
Íbúar á þrítugsaldri voru
1.225 árið 1997, eða 14,2%
íbúa, en hefur fækkað í 1.017,
sem gerir 13,6%. Fækkaði
íbúum á þrítugsaldri um 17%
á tímabilinu. Á fertugsaldri
voru 1.411 íbúar árið 1997,
eða 16,3%, en eru nú 917, eða
12,3%. Íbúum á fimmtugs-
aldri hefur fjölgað á svæðinu,
úr 1.149 árið 1997, eða 13,3%
íbúa, í 1.155 nú um áramót,
eða 15,5% íbúa. Íbúum á sex-
tugsaldri hefur sömuleiðis
fjölgað, úr 711, eða 8,2% af heild-
aríbúafjölda, í 924, eða 12,4%.
Íbúum á sjötugsaldri hefur
fækkað úr 606 árið 1997, eða
7% íbúa, í 569 nú um áramót,
eða 7,6% íbúa. Íbúum á átt-
ræðisaldri hefur fjölgað úr
380, eða 4,4% íbúa, í 465 nú
um áramót, eða 6,2% íbúa.
Íbúum á níræðisaldri hefur þá
einnig fjölgað, úr 183 í 200,
en íbúum á tíræðisaldri hefur
fækkað úr 37 í 28. Tveir voru
yfir 100 ára aldri árið 1997,
en einn nú um áramót.
Íbúum á aldrinum 0-9 ára hefur
fækkað um 33% frá árinu 1997
Fela bæjarstjóra
að ræða við OV
Bæjarstjórn Ísafjarðar-
bæjar hefur falið bæjar-
stjóra að óska eftir viðræð-
um við Orkubú Vestfjarða
á grundvelli niðurstaðna
nýrra skýrslna um hitastig-
ulsboranir í Bolungarvík og
Álftafirði, sem framkvæm-
dar voru síðasta sumar.
Þær niðurstöður gefa til
kynna að miklar líkur séu á
því að heitt vatn sé að finna
bæði í Tungudal og Engidal
og í ljósi þess, sé rétt að
ræða við forsvarsmenn
Orkubúsins um næstu skref
í þessu stóra hagsmunamáli
sveitarfélagsins.
Arna Lára Jónsdóttir
bæjarfulltrúi Í-lista lagði
fram bókun þessa efnis á
síðasta fundi bæjarstjórnar
og var tillagan samþykkt
einróma. Arna Lára segir
það afar mikilvægt að
þessu máli sé haldið á lofti.
– annska@bb.is
Orkubú Vestfjarða.
Gert er ráð fyrir að fram-
kvæmdir við snjóflóðavarn-
argarð í Bolungarvík hefjist
um mitt sumar. Að sögn Þráins
Sigurðssonar, aðstoðarfor-
stjóra Framkvæmdasýslu rík-
isins, er búið að hanna garðinn
en eftir á að setja verkið í
umhverfismat og bjóða það
út. Á borgarafundi sem hald-
inn var í nóvember sl. var gert
ráð fyrir að framkvæmdir við
garðinn myndu hefjast í maí
og því er ljóst að einhverjar
tafir hafa orðið. Grímur Atla-
son, bæjarstjóri Bolungarvík-
ur, segir gríðarlega mikilvægt
að framkvæmdir hefjist sem
fyrst, og ekki aðeins við varn-
argarð heldur einnig gerð
Óshlíðarganganna.
Grímur vonar að fram-
kvæmdir fari af stað fljótlega,
enda myndi það ekki aðeins
auka öryggi íbúa svæðisins
heldur einnig tryggja uppgang
í atvinnulífinu. Varnargarð-
urinn í Bolungarvík á að vera
um 18-22 metra hár og 700
metra langur þvergarður, stað-
settur þar sem Dísarland er
nú. Auk þess verða 8 keilur
ofar í fjallinu. Áætlað er að í
varnarvirkin fari um 400 þús-
und rúmmetrar af fyllingarefni
sem reiknað er með að fáist
innan framkvæmdasvæðisins.
Áætlaður heildarkostnaður
við byggingu varnarvirkjanna
er 750 milljónir króna en end-
anlegur kostnaður ræðst þó af
þeim tilboðum sem berast í
verkið. Gert er ráð fyrir að bygg-
ing varnanna taki um 2-3 ár.
Gerð snjóflóðavarnargarðs
í Bolungarvík hefst í sumar