Bæjarins besta - 22.03.2007, Blaðsíða 6
FIMMTUDAGUR 22. MARS 20076
Orkubúið
Ritstjórnargrein
Sundahöfn eða olíumúli
Á þessum degi fyrir 21 ári
Útgefandi: H-prent ehf., kt. 600690-1169, Sólgötu 9, 400 Ísafjörður, sími 456 4560, fax 456 4564 · Ritstjóri:
Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892 5362, bb@bb.is · Blaðamenn: Eiríkur Örn Norðdahl, símar 456 4694 og 845
2685 eirikur@bb.is – Thelma Hjaltadóttir, símar 456 4693 og 849 8699, thelma@bb.is – Anna Sigríður Ólafs-
dóttir, símar 456 4680 og 860 6062, annska@bb.is · Tinna Ólafsdóttir, sími 868 5963, tinna@bb.is · Ritstjóri
netútgáfu bb.is: Sigurjón J. Sigurðsson · Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson, sími 894 6125, halldor@bb.is
· Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór Sveinbjörnsson · Lausasöluverð er kr. 300 eintakið með vsk.
Veittur er afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti. ·
Önnur útgáfa: Ferðablaðið Á ferð um Vestfirði. · ISSN 1670 - 021X
Það kom greinilega í ljós á fundi sem hafnarnefnd Ísafjarðar
boðaði til á Hótel Ísafirði sl. laugardag, að nokkuð er fjarri því
að Ísfirðingar séu sammála um það hvernig eigi að standa að
uppbyggingu hafnarinnar og leysa þar með þann gífurlega
vanda sem nú er vegna þrengsla. Á fundinum skiptust menn á
skoðunum um það og gagnrýndu sumir mjög það sem þeir
kölluðu fyrirhyggjuleysi við skipulag og ákvörðun um Sunda-
höfn. Hermann Guðjónsson forstöðumaður tæknideildar Vita-
og hafnamálastofnunar hafði framsögu um málið og gat þess
fyrst hve fjárframlög ríkisins hefðu dregist saman á undan-
förnum árum og eru nú einungis 74 milljónir króna á þessu ári,
eða um 1/3 þess sem var að meðaltali árin 19-75-84. Hann
rakti hve umferð um Ísafjarðarhöfn hefði aukist um svipað
árabil: skipakomum fjölga um nær 100%, landaður afli aukist
um rúm 30%. Á sama tíma hefur viðlegupláss í höfninni auk-
ist um rúma togaralengd. Unnið hefur verið fyrir 84 milljónir
á þessum árum og þar af hafa 34 milljónir farið í 1. áfanga
vöruhafnar á Sundasvæðinu.
Alþingi Íslendinga hefur verið frestað fram yfir kosningar
12. maí en eftir það ber þinginu að koma saman innan 10
vikna frá kjördegi. Margir gamlir jaxlar hverfa nú af þingi,
fólk með áratuga setu sem þingmenn og ráðherrar og þeim
fylgja nokkrir sem teljast verða nýliðar miðað við þá
reynslumestu. Kosningarnar í maí kunna svo að leiða það
af sér að fleiri veðri að taka pokann sinn en ætluðu.
Síðustu dagar þingsins voru í takt við fyrri tíma; annríki
og átök við að koma sem flestum málum í gegn. Þrátt fyrir
nefndarstörf, umræður og fyrirspurnir þingtímann út í
gegn eru stærstu og þýðingarmestu málin afgreidd á hunda-
vaði á næturfundum síðustu daga þingsins. Afleiðing:
Ólög sem leiddu til mestu eignaupptöku Íslandssögunnar,
gjafakvótans, svo dæmi sé tekið.
Frestur er á illu bestur. Þegar útséð er að menn snúi ekki
frá villu síns vegar er frestun á vitleysunni oft besta ráðið í
stöðunni. Dæmi í þessa veru átti sér stað við þinglokin að
þessu sinni þegar fyrirætlun iðnaðarráðherra um að koma
Orkubúi Vestfjarða fyrir í einni af sjálfsagt mörgum skúffum
Landsvirkjunar var slegið á frest. Þetta er fagnaðarefni.
Frestunin á þessari fráleitu fyrirætlan vekur vonir. Hugmynd
fyrrverandi iðnaðarráðherra að sölsa Orkubúið undir Rarik
og Norðurorku fékk sem betur fer hægt andlát. Ástæðan
fyrir hugmynd ráðherrans fyrrverandi var augljós. Ástæða
núverandi iðnaðarráðherra fyrir að ætla að troða Orkubúinu
,,proforma“ undir hatt Landsvirkjunar hefur ekki verið
útlistuð á skilanlegu máli. Æði margir hneigjast að þeirri
kenningu að slök eiginfjárstaða Landsvirkjunar valdi þessu
brölti. Þessu hefur ekki verið mótmælt svo mikið hafi borið
á.
Vestfirðingar voru tilneyddir að selja Orkubúið. Því olli
slök fjárhagsstaða sveitarfélaganna, sem að verulegu leyti
var til orðin vegna félagslega íbúðakerfisins, sem ríkissjóður
taldi sig ekki bera neina ábyrgð á þegar afleiðingarnar
hömlulausra íbúðabygginga, nánast um land allt, nýttust
ekki sem skyldi þar sem eftirfylgnina, atvinnutækifæri
fyrir fólkið sem húsnæðið átti að laða á viðkomandi staði,
vantaði.
Þar sem svo vel tókst til að Orkubúinu var forðað frá því
á elleftu stundu að lenda í Landsvirkjunarskúffunni verða
talsmenn okkar, sem nú sitja að borði með fulltrúum ríkis-
valdsins í sérskipaðri nefnd í kjölfar baráttufundarins í
Hömrum, að sjá til þess að málefni Orkubúsins verði tekið
á dagskrá og óvissunni um framtíð þess eytt.
Við þurfum á öflugu Orkubúi að halda á Vestfjörðum.
Meini stjórnvöld eitthvað með yfirlýsingum sínum um efl-
ingu byggðakjarna á Vestfjörðum eiga þau að efla Orkubúið,
færa því aukin verkefni. s.h.
4.836 tonnum af þorski landað í febrúar
Alls var 4.836 tonnum af þorski landað á Vestfjörðum í febrúar og er það nokkru minna
en árið áður, þegar 5.676 tonnum var landað. Samdrátturinn er 15%. Af ýsu var landað
2.370 tonnum í ár en 2.219 tonnum í fyrra, og eykst veiði því á milli ára um 6,8%.
Karfaveiðin tvöfaldast tæplega á milli ára, fer úr 140 tonnum árið 2006 í 277 tonn í ár.
Þá er sömuleiðis mikil aukning í steinbítsveiði, en í fyrra komu 712 tonn á land miðað við
1.009 tonn í ár, en aukningin er um tæplega 42%. Í febrúar í ár komu þá 281 tonn af
grálúðu á land á Vestfjörðum, á miðað við 189 tonn í fyrra, og er aukningin um 48,6%.
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar
lagði á dögunum til að bæjar-
stjóra og bæjartæknifræðingi
yrði falið að hefja viðræður
við sýslumanninn á Ísafirði
og Slysavarnafélagið Lands-
björgu vegna mögulegrar
byggingar á sameiginlegri
slökkvistöð, björgunarmið-
stöð og lögreglustöð fyrir
svæðið. Á fundi bæjarráðs á
dögunum gerði Sigurður Pét-
ursson, bæjarfulltrúi Í-listans,
athugasemd við fyrirhugaðar
umræður og lét bóka að hann
teldi ekki rétt að bæjarstjórn
eða bæjarstjóri Ísafjarðarbæj-
ar hefði frumkvæði að við-
ræðum um byggingu lög-
reglu-, slökkvi- og björgunar-
miðstöðvar í Ísafjarðarbæ.
Í bókun Sigurðar segir m.a.:
„Ekkert formlegt erindi hefur
borist bæjarráði um þetta mál
frá sýslumannsembættinu eða
öðrum aðilum. Engar áætlanir
um slíka byggingu hafa verið
ræddar í nefndum eða ráðum
bæjarins eða sýnt fram á brýna
þörf málsins. Staða bæjarsjóðs
leyfir ekki stórfelld útgjöld á
þessu málasviði þegar önnur
verkefni standa fyrir dyrum svo
sem bygging nýrrar sundhall-
ar.“ Lagði Sigurður til að mál-
inu yrði frestað um sinn, og
samþykkti bæjarráð það en
bókaði jafnframt að bæjaryfir-
völd skyldu gæta þess að vera
samstíga öðrum aðilum í málinu.
Fresta viðræðum um sameiginlega
lögreglu-, slökkvi- og björgunarmiðstöð
„Bæjarstjórn Ísafjarðarbæj-
ar fagnar því frumkvæði íbúa
að halda opinn borgarafund
undir yfirskriftinni „Lifi Vest-
firðir.” Fundurinn var afar vel
sóttur og málefnalegur þar
sem vandamál og ekki síst
tækifæri Vestfjarða voru til
umræðu. Bæjarstjórn Ísafjarð-
arbæjar tekur heilshugar undir
ályktun fundarins sem sam-
þykkt var samhljóða.“ Þetta
er meðal efnis í tillögu sem
Arna Lára Jónsdóttir bæjar-
fulltrúi lagði fram fyrir hönd
Í-lista á fundi bæjarstjórnar.
Arna Lára segir mikilvægt
að taka undir ályktunina og
sýna þannig stuðning í verki
en tillagan var samþykkt 8-0.
Í bókun segir einnig „fulltrúar
Í- listans í bæjarstjórn Ísafjarð-
arbæjar lýsa yfir furðu sinni
vegna skipan nefndar á vegum
ríkistjórnarinnar sem hefur
það hlutverk að fjalla um leiðir
til að styrkja atvinnulíf á Vest-
fjörðum.
Telja þau það vera tímasóun
að skipa nefnd til að fjalla um
tillögur sem liggja nú þegar
fyrir, í því samhengi má nefna
þær tillögur sveitarstjórna á
Vestfjörðum sem lagðar voru
fyrir ríkisstjórnina í byrjun
febrúar og tillögur verkefnis-
stjórnar um byggðaáætlun
fyrir Vestfirði.“
„Við teljum að skipun nefnd-
arinnar sé til þess gerð að tefja
málin þar sem að kröfur okkar
eru mjög skýrar og margar
fyrirliggjandi tillögur sem eru
raunhæfar og haldgóðar. Bók-
unin beinir því jafnframt til
þeirra ágætu manna er starfa í
nefndinni að hraða störfum
sínum.“ – annska@bb.is
Tímasóun að skipa nefnd til að fjalla
um tillögur sem þegar liggja fyrir
Fulltrúar Í- listans í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar lýsa yfir furðu sinni vegna skipan nefndar á vegum
ríkistjórnarinnar sem hefur það hlutverk að fjalla um leiðir til að styrkja atvinnulíf á Vestfjörðum.