Bæjarins besta


Bæjarins besta - 22.03.2007, Síða 9

Bæjarins besta - 22.03.2007, Síða 9
FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007 9 Meiraprófsnámskeið · leigubifreið · vörubifreið · hópbifreið · eftirvagn Ísfirðingar og nágrannar ath! Námskeið til aukinna ökuréttinda verður haldið á Ísafirði föstudaginn 30. mars næstkomandi. Ath! Verkalýðsfélög veita allt að 100 þúsund króna styrk. Sama verð og á höfuðborgarsvæðinu! Skráning í símum 581 2780, 822 2908 og 692 4124. Visa og Euro raðgreiðslur til allt að 36 mánaða. Ökuskóli S.G. Bolungarvíkurkaupstaður Útboð – Bygging dælustöðvar Vatnsveita Bolungarvíkur óskar eftir til- boðum í verkið „Dælubrunnur við Ljósa- land.“ Um er að ræða staðsteypta bygg- ingu á einni hæð. Bygginguna skal full- gera ásamt frágangi lóðar. Helstu magntölur: Stærð byggingar 12m² 52m³ Steypa 15m³ Mót 120m² Járn 900 kg. Verkinu skal að fullu lokið 1. sept.2007. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Bolungarvíkurkaupstaðar, Aðalstræti 10- 12 gegn 3.000.- króna greiðslu. Tilboð verða opnuð á skrifstofu Bolung- arvíkurkaupstaðar, Aðalstræti 10-12, mið- vikudaginn 4. apríl 2007 kl. 11:00. Tæknideild Bolungarvíkur. Bæjarráð Bolungarvíkur hefur kallað eftir aðgerðum stjórnvalda vegna þess ójafn- aðar sem atvinnulíf á Vest- fjörðum býr við, og vill fá aðgerðir nú þegar. „Sveitar- félögin á Vestfjörðum hafa lagt fram fyrir stjórn og stjórn- arandstöðu metnaðarfullar og raunhæfar tillögur til úrbóta. Þar komu m.a. fram tillögur um bættar samgöngur, jöfnun flutningskostnaðar með strand- siglingum, flutning opinberra starfa á svæðið og leiðréttingu á tekjustofnum sveitarfélag- anna. Staðan er öllum ljós og nú er kominn tími á aðgerðir,“ segir í bókun bæjarráðs Bol- ungarvíkur. Eins og greint hefur verið frá eru nokkrar áhyggjur af stöðunni á norðanverðum Vestfjörðum í kjölfar ýmissa áfalla undanfarnar vikur, og ber þar líklega helst að nefna gjaldþrot byggingarfyrirtæk- isins Ágústs og Flosa og ákvörðun hátæknifyrirtækis- ins Marels að flytja starfsstöð sína hér í bænum, sem eitt sinn hét POLS og var í eigu Ísfirðinga, suður á höfuðborg- arsvæðið. Þá hefur Síminn verið að draga úr starfsemi hér, rannsóknastofunni Agar var nýlega lokað og fleira mætti telja til. – eirikur@bb.is Kalla eftir aðgerð- um í atvinnumálum Ráðstefna um málefni innflytj- enda í Háskólasetrinu á Ísafirði Fjölmenningarsetrið og Há- skólasetur Vestfjarða ætla að halda ráðstefnu á Ísafirði dag- ana 26.-28. mars nk., þar sem margir helstu fræðimenn í málefnum innflytjenda og byggðaþróunar flytja erindi. Málefni innflytjenda hafa mikið verið í deiglunni upp á síðkastið og hafa margar spurningar vaknað um stöðu þeirra og hvert hlutverk stjórn- valda sé gagnvart þeim. Í til- kynningu vegna ráðstefnunn- ar segir m.a.: „Ákveðinn ótti hefur einkennt umræðuna, meðal annars hvort íslenskt samfélag geti tekið við þeim fjölda innflytjenda sem hefur flust til Íslands síðastliðið ár eftir frekari opnun Evrópu. Hafa innflytjendur eitthvað fram að færa til samfélagsins eða eiga þeir að samlagast þjóðfélaginu? Á sama tíma og landsbyggðin glímir við fólks- fækkun hafa innflytjendur flust á landsbyggðina og að einhverju leyti stemmt stigu við þessari þróun. En hver eru áhrifin? Eru innflytjendur hvalreki eða ógn fyrir samfé- lög á landsbyggðinni?“ Meðal þeirra sem ætla að hafa skoðun á þessum mál- efnum eru breski sendiherrann Alp Mehmet og Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegs- ráðherra. Þá mun Philomena de Lima greina frá stöðu far- andverkafólks í dreifbýli á Bretlandi. De Lima mun einn- ig fjalla um orðræðuna sem á sér stað í Bretlandi um þessar mundir. Hún segir neikvæða orðræðu um innflytjendur oft vatnstengda samanber „flood- ed“ og „swamped“ í ensku. Á Íslandi tengist orðræðan einn- ig vatni, svo sem þegar talað eru um „mikið flæði“ af inn- flytjendum og „stríðan straum“ af erlendu vinnuafli. David Bruce mun kynna verkefni í Kanada þar sem markvisst var unnið að því að laða innflytjendur til þeirra sveitarfélaga þar sem fólks- fækkun var mikil. Hvað var gert og skilaði það árangri fyr- ir byggðarlagið? Geta sveitar- félög hérlendis nýtt sér reyn- slu Kanadamanna? Norska fræðakonan Marit Anne Aure segir frá rannsókn sinni á að- stæðum farandverkafólks í norðurhluta Noregs, á bak- grunni þess og stöðu, af hverju einstaklingur gerist farand- verkamaður og hvaða áhrif það hefur á líf hans. Nátengdur umfjöllunarefni Marit Anne Aure er fyrirlestur Unnar Dísar Skaptadóttur og Önnu Wojtynsku sem fjallar um innflytjendur á Vestfjörð- um, „Vestfirðir, heimili eða verbúð?” Þær spyrja hvernig reynslan við að flytja til nýs staðar hefur áhrif á sjálfsmynd einstaklings og hvaða hópi hann tilheyrir. Þetta eru að- eins nokkur dæmi um þá áhugaverðu fyrirlestra sem verða á ráðstefnunni. Á vef Háskólaseturs Vestfjarða má fá nánari upplýsingar um er- indi Berglindar Ásgeirsdóttur, Brendu Grzetic, Rolands Beshiri, Barböru Neis, Hafliða H. Hafliðasonar, Magnfríðar Júlíusdóttur, Wolfgangs Boss- wick og Sigríðar Elínar Þórð- ardóttur. Magnús Stefánsson félags- málaráðherra mun setja íbúa- þing sem verður haldið í tengslum við ráðstefnuna þar sem stjórnmálaumræðan verð- ur tekin fyrir. Ráðstefnan hlaut styrk frá Evrópusambandinu í tengslum við vitundarvakn- ingu í samfélögum. – eirikur@bb.is fyrir hvert tonn af afla, en árið áður fengust að meðaltali 86.923 krónur fyrir hvert tonn af afla. Aukningin er 42% á milli ára. Þó ber að hafa í huga að fleira kemur inn í en afurðaverð, eins og til dæmis skipting afla, gjaldeyrisstaða og fleira. Til samanburðar má nefna að á sama tímabili dróst veiði Alls var landað 3.114 tonn- um af afla á Vestfjörðum í nýliðnum desember mánuði, og er það nokkuð minna en var landað í sama mánuði árið áður, þegar 4.393 tonn komu á land. Samdrátturinn er 29% á milli ára. Ekki segir það þó alla söguna því afurðaverð er með þeim hætti að dálítið meira fé fékkst fyrir þann fisk sem kom á land í desember 2006, en í desember 2005. Aflaverðmæti í nýliðnum desember var ríflega 384 milljónir króna, en á sama tíma árið áður var aflaverð- mæti að upphæð tæplega 382 milljónum króna. Aukning í aflaverðmæti er upp á 0,6%. Í desember árið 2006 fengust að meðaltali 123.395 krónur á höfuðborgarsvæðinu saman um 28,5%, og aflaverðmæti dróst saman um 9%. – eirikur@bb.is Ríflega þrjú þúsund tonn- um af afla landað í desember Ísafjarðarhöfn.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.