Bæjarins besta - 22.03.2007, Side 10
FIMMTUDAGUR 22. MARS 200710
„Vagninn hefur verið mikill skóli fyrir mig í því að koma fram. Ég
veit ekki hversu oft ég hef spilað þar. Ég söng til dæmis fyrst á
Vagninum, en það hefur mér alltaf þótt mjög erfitt. Það er bara
eitthvað við þennan stað, hann er svo miklu meira en pöbb. Það
hreinlega varðar byggðamál að halda svona stað gangandi.“
„Bakgrunnur okkar gerir
okkur að því sem við erum“
Æskudraumurinn
„ Ég ætlaði alltaf að verða
kokkur og fékk samning á
Hótel Sögu. Þá var ég 17 ára
og fluttist til höfuðborgarinn-
ar. Ég hef verið á nokkru
flakki á milli síðan, en þarna
fyrst var ég í tvö ár og kom
svo aftur. Núna er ég svo í
Reykjavík – en bý samt þannig
lagað séð á Flateyri. Ég er
með lögheimili mitt að Ólafs-
túni 6 og þannig vil ég alltaf
hafa það.“
– Ætlaðirðu alltaf að verða
kokkur?
„Það er ágætis saga á bak
við það að ég ætlaði að nema
kokkafræðina á sínum tíma.
Þegar ég var 10 ára fékk ég
kokkabókina „Mikki eldar“ að
gjöf, en þar var Mikki mús að
elda fyrir gesti. Ég eldaði í
framhaldinu kjöthleif fyrir
fjölskylduna. Eftir gjörning-
inn settist öll fjölskyldan að
borðum og beið þess spennt
að borða matinn sem kokkur-
inn verðandi hafði reitt fram,
þess er skemmst frá að segja
að maturinn var vægast sagt
ógeðslegur. Þetta reyndar drap
ekki drauminn, ég ætlaði aldrei
að vera neitt annað en kokkur
þar til ég varð 18 ára gamall.
Ég var búinn að fást við elda-
mennsku af ýmsum toga. Ég
var að vinna í mötuneytinu
þegar verið var að byggja
snjóflóðavarnirnar á Flateyri
og ég hef örugglega bakað 50
pizzur á kjaft á Flateyri. Ég
sver það að ég fylgdi pizzaofn-
inum í öll hús sem hann fór í á
Flateyri. Ég bakaði fyrstu
pizzuna mína þegar ég var 13
ára gamall, en það æxlaðist
þannig að sá sem átti að baka
hana var þunnur og mætti ekki
í vinnuna og ég fenginn til að
gera hana í staðinn, hún var
viðbjóðsleg. Hinni Kristjáns
á Flateyri fékk svo þessa bless-
uðu pizzu og hann kom brun-
andi til baka með hana og
spurði hvað í ósköpunum
þetta væri. Þannig að það er
óhætt að segja að ég hafi lært
það „erfiðu leiðina“ að baka
pizzur.“
– En hvernig fór svo fyrir
kokkanáminu?
„Það varð heldur enda-
sleppt, ég hafði ekki lengur
tíma til að spila á gítar. Ég var
að vinna frá fimm á morgn-
anna til eitt á nóttunni 7 daga
vikunnar og léttist um 30 kíló
Halldór Gunnar Pálsson er Vestfirðingur í húð og hár. Hann er sonur Páls
Sigurðar Önundarsonar frá Flateyri og Magneu Kristjönu Guðmundsdóttur frá
Ingjaldssandi. Halldór Gunnar er næst elstur fjögurra systkinum, þeirra Ön-
undar Hafsteins, Hákons Þórs og Birnu Drafnar. Hann er í sambúð með
Svandísi Lilju Níelsdóttur. Halldór Gunnar ólst upp á Flateyri og var þar til
ársins 1998 er hann hleypti heimdraganum og fór til náms í höfuðborginni.
Hann hefur þó ekki slitið sig alfarið frá æskuslóðunum og er svo að segja
alltaf með annan fótinn „fyrir vestan.“ Hann hefur marga fjöruna sopið á
tiltölulega stuttri ævi, en í viðtalinu ræðir hann um æskudrauma, vináttuna,
vinnuna og tónlistina sem skiptir hann miklu máli. Á síðasta ári stofnaði hann
kór með æskufélögunum frá Flateyri, samdi tónlist á heila kóraplötu ásamt
félaga sínum og gaf svo afraksturinn út á geislaplötu fyrir jólin. Þar er einung-
is talið upp lítið brot af því sem hann hefur verið að fást við því drengurinn er
með eindæmum iðinn og ávallt með mörg járn í eldinum.
fyrsta eina og hálfa mánuð-
inn.“
– Þetta hefur verið púl.
– Já. Ég bjó þarna við hlið-
ina á Hótel Sögu og eina sem
ég gerði var að labba í vinnu
og vera þar. Ég átti auðvitað
bara að vinna venjulegar vakt-
ir, en síðan var alltaf bara sagt
við mig „já og þú ert að vinna
á morgun.“ Það var s.s. aldrei
spurt, bara skipað. Það endaði
auðvitað með því að ég hætti
bara. Ég kann að elda og það
er nóg fyrir mig.“
– Það er kannski óhætt að
segja að þrældómurinn hafi
drepið drauminn?
„Já. Mig langaði ekki einu
sinni til að prófa að fá samning
á öðru hóteli, þó þetta hefði
verið draumurinn í öll þessi
ár. Hann bara fuðraði upp í
púlinu. Ákvörðunin var ekki
mjög flókin. Ég einfaldlega
verð að hafa tíma til að spila,
annars líður mér illa.“
Tónlistin
– Hvenær byrjaðir þú að
garfa í tónlist?
„Hún hefur verið hluti af
lífi mínu frá því að ég man
eftir mér. Það er svo fyndið
að nýverið komst ég yfir um-
sögn um mig frá tónlistarskól-
anum á Flateyri þegar ég var
10 ára píanónemandi og þar
var sagt „Halldór Gunnar er
mjög hæfileikaríkur ungur mað-
ur, en hann þarf að hafa stjórn
á skapi sínu og æfa sig heima.“
Annars fór ég þessa hefðbundnu
leið í tónlistarskóla þar sem
ég lærði á blokkflautu og píanó.
Þegar ég var 12 ára, var Stína
amma með umboð fyrir ein-
hverja kassagítara á Flateyri.
Hún kenndi mér fyrstu gripin
og lánaði mér Gítarskóla Ólafs
Gauks, sem ég gleymdi að
vísu alltaf að skila, þar lærði
ég að spila Stína var lítil stúlka
í sveit til að mynda. Önni
bróðir var að spila á trommur
og mig langaði alltaf til að
spila á trommur líka, en síðan
sá ég bara hvað hann var fer-
lega góður og snarhætti við.