Bæjarins besta - 22.03.2007, Qupperneq 13
FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007 13
Skrifstofustarf
Heilbrigðisstofnunin Ísafjarðarbæ aug-
lýsir starf við bókhald og launavinnslu á
skrifstofu stofnunarinnar laust til umsókn-
ar. Um er að ræða full starf. Í starfinu felst
færsla bókhalds, launavinnsla, afstemm-
ingar og almenn skrifstofustörf.
Góð bókhaldsþekking, tölvukunnátta og
þjónustulund er nauðsynleg í þessu starfi.
Reynsla mikilvæg og þekking á Oracle
kerfi ríkisins er kostur.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Fé-
lags opinberra starfsmanna á Vestfjörðum
og stofnanasamningi HSÍ.
Nánari upplýsingar veitir Sigrún C. Hall-
dórsdóttir, skrifstofustjóri í síma 450 4500
(camilla@fsi.is). Vinsamlegast sendið um-
sóknir til Heilbrigðisstofnunarinnar Ísa-
fjarðarbæ, Torfnesi, 400 Ísafirði fyrir 13.
apríl.
Umsóknareyðublað er að finna á vefnum
www.fsi.is undir viðkomandi starfsauglýs-
ingu og í afgreiðslu Fjórðungssjúkrahúss-
ins á Ísafirði. Öllum umsóknum verður
svarað þegar ráðning hefur verið ákveðin.
Starf í eldhúsi
Starfsmaður óskast til afleysinga í eld-
húsi Fjórðungssjúkrahússins á Ísafirði.
Vinnutími er frá kl. 07:00 til 15:00.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Verka-
lýðsfélags Vestfirðinga og stofnanasamn-
ingi HSÍ. Umsóknareyðublöð fást í af-
greiðslu Fjórðungssjúkrahússins á Ísafirði.
Öllum umsóknum verður svarað er ráð-
ið hefur verið í starfið.
Frekari upplýsingar gefur Birgir Jónsson,
matreiðslumeistari í vs. 450 4560.
Umsóknarfrestur er til 29. mars nk.
ÚTBOÐ
Ísafjarðarbær óskar eftir tilboðum í
verkið „Niðurrif húsa við Árvelli.“
Ofangreindu verki skal vera að fullu
lokið eigi síðar en 28. júlí 2007.
Útboðsgögn eru til sölu á kr. 3.000.-
hjá Ísafjarðarbæ, Hafnarstræti 1, 400
Ísafirði.
Tilboðin verða opnuð þriðjudaginn
3. apríl nk. kl. 11:00 að viðstöddum
þeim bjóðendum sem þess óska.
Tæknideild Ísafjarðarbæjar.
Óskað hefur verið eftir því
að Byggðasafn Vestfjarða taki
að sér undirbúning þess að
taka við veglegu harmonikku-
safni Ásgeirs Sigurðssonar á
Ísafirði, en það telur um 130
harmonikur. Ásgeir hefur ver-
ið með um 50 harmonikkur til
sýnis á heimili sínu síðustu
árin. Elsta harmonikkan í safni
hans er frá árinu 1830, og er
því frá upphafsárum hljóðfær-
isins í því formi sem það þekk-
ist í dag.
Í bréfi sem bæjarstjóri Ísa-
fjarðarbæjar, Halldór Hall-
dórsson, skrifar bæjarráði
vegna þessa máls segir meðal
annars: „Af og til hafa undir-
ritaður og Ásgeir rætt um
möguleika þess að koma safn-
inu fyrir hjá Ísafjarðarbæ. Ás-
geir hefur áhuga á því að gefa
safnið með skilyrðum um að
það fái góðan stað, verði til
sýnis og fái góða umhirðu.“
Þá kemur fram í bréfinu að
á Íslandi, að sögn Ásgeirs, er
ekkert eiginlegt hljóðfæra-
safn. „Í Árborg er tónminja-
safn til minningar um Pál Ís-
ólfsson og Ísólf Pálsson, föður
hans. Í Keflavík er poppminja-
safn. Á báðum þessum stöð-
um eru einhver hljóðfæri. Að
öðru leyti er Ásgeiri ekki
kunnugt um hljóðfærasafn.“
Einnig segir að án efa sé
harmonikkusafn Ásgeirs mjög
verðmætt og mikilvægt sé að
varðveita það hér í bænum og
stilla því upp til sýnis. „Sér-
staða safnsins er mikil og þess
vegna getur það verið áhuga-
vert fyrir gesti sem hingað
koma. Þá getur það verið
grunnur að stærra hljóðfæra-
safni sem yrði hér í tónlistar-
og menningarbænum Ísa-
firði.“
Bæjarráð vísaði erindinu til
umsagnar í stjórn Byggða-
safns Vestfjarða og í menn-
ingarmálanefnd og verður af-
staða til þess tekin innan tíðar.
– eirikur@bb.is
Hefur áhuga á að koma harmo-
nikkusafni fyrir hjá Ísafjarðarbæ
Mest andstaða við kvóta-
kerfið í Norðvesturkjördæmi
Um 70% landsmanna eru
andvíg kvótakerfinu ef miðað
er við niðurstöður nýlegrar
skoðanakönnunar Blaðsins.
Könnunin náði til 800 manns
og sögðust rúm 20% vera hlut-
lausir og 8% óákveðnir. Af
þeim sem tóku afstöðu voru
tæp 30% hlynnt kerfinu. And-
staðan við kvótakerfið var
mest í NV-kjördæmi og voru
fleiri konur andvígar en karlar.
Einar Kristinn Guðfinnsson
sjávarútvegráðherra segir
þessa könnun vera í samræmi
við það sem áður hefur birst.
Hann segist ekki hafa áhyggj-
ur af þessum niðurstöðum og
segir ýmis fyrirtæki á Vest-
fjörðum hafa verið að bæta
við sig kvóta að undanförnu
og hin almennu rekstrarskil-
yrði í fiskiðnaðinum séu
þokkaleg um þessar mundir
og segir hann allar forsendur
fyrir því að sjávarútvegsfyrir-
tæki ættu að spjara sig vel.
Á fundinum Lifi Vestfirðir
sem haldinn var í Hömrum
mátti greina mikinn hita í
nokkrum ræðumönnum varð-
andi kvótamál, Einar Kristinn
segir það vel skiljanlegt þar
sem svæðið hafi farið mjög
illa út úr kvótakerfinu á sínum
tíma. Kannski má draga þá
ályktun af niðurstöðum könn-
unarinnar að ekki hafi gróið
um heilt hjá Vestfirðingum
eftir að þeir horfðu á eftir stór-
um hluta fiskveiðikvótans frá
byggðunum vestra eftir að
hann var settur á um miðjan
níunda áratug síðustu aldar.
Umhverfisnefnd Ísafjarðar-
bæjar fellst ekki á byggingu
einnar hæðar verslunarhúss á
lóðinni Hafnarstræti 15-17 á
Ísafirði, en fyrirspurn um slíkt
hús var lögð fram á fundi
nefndarinnar á dögunum. Fyr-
irspurnin barst frá Tækniþjón-
ustu Vestfjarða ehf. fyrir hönd
Íslenska eignafélagsins ehf.
og Skúla Gunnars Sigfússon-
ar. Í fundargerð segir að sam-
kvæmt skipulagsskilmálum
fyrir lóðina sé gert ráð fyrir
húsi með 1-2,5 hæðir. Um-
hverfisnefnd féllst þó ekki á
einnar hæðar hús á þessum
stað þar sem sú nýting lóðar
er ekki í samræmi við mark-
mið deiliskipulags.
Á svæðinu er bílastæði sem
Landsbankinn lét útibúa fyrir
níu árum, og er bærinn með
samning við bankann um lóð-
ina, og fara þarf yfir þann
samning áður en hægt er að
gera eitthvað annað við svæð-
ið, en eins og sagt hefur verið
frá sóttist Hallvarður Aspe-
lund eftir lóðinni í fyrra fyrir
hönd Íslenska eignafélagsins
til byggingar húss sem á meðal
annars að innihalda útibú frá
alþjóðlegu skyndibitakeðj-
unni Subway.
– eirikur@bb.is
Fallast ekki á einnar hæðar
verslunarhús við Hafnarstræti
Umrædd lóð er við hliðina á nýbyggingunni við Hafnarstræti.