Bæjarins besta


Bæjarins besta - 03.05.2007, Qupperneq 1

Bæjarins besta - 03.05.2007, Qupperneq 1
Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 300 m/vsk Fimmtudagur 3. maí 2007 · 18. tbl. · 24. árg. – Grímur Atlason hefur setið veturlangt í bæjar- stjórastól Bolungarvíkur. Mikið er í deiglunni í Vík- inni en þar eru fyrirhugaðar miklar framkvæmdir, þar á meðal gerð jarðgangna milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur. Bæjarins besta leit yfir farinn veg með bæjarstjóranum og ræddi m.a. við hann um fyrirhugaðar framkvæmdir, íbúaþing og tónlistina sem hann hefur brennandi áhuga fyrir. Sjá nánar viðtal í miðopnu. Hjólin snúast í Bolungarvík Bakkavík segir 48 manns upp störfum Bakkavík hf., í Bolungarvík hefur sagt upp 48 starfsmönn- um af 60 í landvinnslu félags- ins. Ástæða uppsagnanna er afar erfiður rekstur rækju- vinnslu undanfarin ár. „Bakkavík hefur ekki farið varhluta af því og hefur þung- ur rekstur bitnað á lausafjár- stöðu félagsins. Til að geta staðið í skilum við skuldbind- ingar hefur stjórn félagsins gripið til þess ráðs að selja hlut sinn útgerðarfélaginu Rekavík. Sala hlutabréfanna gerir Bakkavík kleift að borga upp lausaskuldir. Hins vegar hefur sala á hlut félagsins í Rekavík þau áhrif að óvissa skapast um hráefnisöflun fyrir fiskvinnslu félagsins, segir í frétt frá fyrirtækinu. „Frá ársbyrjun hefur verið erfitt að afla hráefnis fyrir rækjuvinnslu og það sem hef- ur verið á boðstólum hefur verið of dýrt til þess að láta enda ná saman. Rækjuveiði við Ísland hefur dregist mikið saman, var innan við 1.000 tonn á síðasta ári sem er veru- legur samdráttur frá 70.000 tonna veiði fyrir áratug. Á sama tíma hefur veiði minnk- að í Barentshafi og á Flæm- ingjagrunni en aukist við Kan- ada og Grænland þar sem Ís- lendingar hafa litla möguleika á að kaupa hráefni. Nú er svo komið að einungis sjö verk- smiðjur eru eftir hér á landi og tvær í Noregi. Fyrir fimm árum voru yfir 20 rækjuverk- smiðjur hér og 10 í Noregi. Í ljósi ofangreinds er stjórn Bakkavíkur knúin til þess að taka þá ákvörðun að segja upp 48 starfsmönnum af 60 í land- vinnslu félagsins. Stjórnendur vonast til þess að það takist að afla hráefnis svo vinnsla geti hafist á ný.“ segir í til- kynningu frá Bakkavík.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.