Bæjarins besta


Bæjarins besta - 03.05.2007, Qupperneq 4

Bæjarins besta - 03.05.2007, Qupperneq 4
FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 20074 Framkvæmdir við Eyrar- dalsbæinn hefjast að nýju Framkvæmdir við gamla bæinn í Eyrardal í Álftafirði hefjast aftur nú með vorinu, en byrjað var að gera húsið upp á síðasta ári. Í húsinu er ætlunin að stofna fyrsta refa- setrið á Íslandi. Mikil undir- búningsvinna hefur verið unn- in fyrir verkefnið og hefur líf- fræðingurinn Ester Rut Unn- steinsdóttir m.a. komið að því. Ester hefur átt þátt í að rann- saka atferli og líf íslenska refs- ins, m.a. á Hornströndum. Gert er ráð fyrir að í húsinu verði aðstaða fyrir fræðimenn til að vinna að rannsóknum á refnum, ásamt aðstöðu til að fræða almenning um líf og hátterni refsins. Húsið, sem er friðað, var byggt undir lok 19. aldar, og þykir merkilegt fyrir margra hluta sakir, t.d. var rekið þar bakarí um árabil. Árið 2004 var haldið íbúaþing í Súðavík þar sem framtíð Eyrardalsbæj- arins var rædd. Þar komu fram afar skiptar skoðanir, en nið- urstaða fundarins varð sú að leita allra leiða til að lagfæra húsið. Undanfarin þrjú ár hef- ur fé verið úthlutað frá fjár- laganefnd Alþingis til að end- urbyggja Eyrardalsbæinn, en sem fyrr segir hófust fram- kvæmdir við húsið í fyrra og náðist þá að endurbyggja grunninn. Í sumar er gert ráð fyrir að loka húsinu að utan þannig að hægt verði að vinna inni í því í vetur. Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri Súðavíkur, gerir ráð fyrir því að refasetrið eigi eftir að vekja mikla athygli, bæði hjá leikum og lærðum, enda íslenski refurinn afar merkileg skepna. Ef vel geng- ur þá ætti að nást að vígja hús- ið samhliða því sem refasetr- ið verður opnað, eftir 2-3 ár. Til stendur að opna refasetur í Eyrardalsbænum í Álftafirði. Ekki fæst fjármagn frá Ísafjarðarbæ til að klára verkið í sumar, en gengið verður frá torginu til bráðabirgða. Edinborgartorgið ekki klárað í sumar Edinborgartorg er ekki nema hálfklárað, en framkvæmdir við gerð þess hófust í fyrrasumar. Ekki fæst fjármagn frá Ísa- fjarðarbæ til að klára frágang við svokallað Edinborgartorg í sumar, en gerð torgsins hófst fyrir ári. Torgið er staðsett við hlið Edinborgarhússins á Ísa- firði, en þar er m.a. ráðgert að verði bílastæði og aðstaða fyr- ir ferðafólk s.s. bekkir og borð. Fjármagn í lagfæringu gatna og gangstétta hjá Ísafjarðarbæ hefur verið skorið niður, en stærsta verkefni bæjarins um þessar mundir, bygging nýs húsnæðis við grunnskólann á Ísafirði, tekur sinn toll. Halldór Halldórsson, bæjar- stjóri Ísafjarðarbæjar, segir að þó að torgið verði ekki klárað í sumar, verði gengið frá því þannig að það nýtist sem bíla- stæði. Þá verður gengið frá merkingum og fleiru í kring- um torgið. Halldór ítrekar að frágangurinn fyrir sumarið verði til bráðabirgða, en tæknideild Ísafjarðarbæjar mun óska eftir fjármagni í verkið á næsta fjárhagsári. – tinna@bb.is

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.